Harmonikublaðið - 01.04.2003, Qupperneq 12
FRASAGNIR
HARMONIKUBLAÐIÐ
Harmonikustelpan
Það er alltaf ánægjulegt þegar
ungt fólk á sér draum og fylgir
honum fast eftir. Það gerði
Oddný Björgvinsdóttir, sem
dreif sig í tónlistarháskóla í
Noregi á síðastliðnu sumri.
Hún segir okkur hér söguna
af því.
Eftir að hafa verið á tónlistarbraut við
tónlistarskólann á Akranesi, langaði mig
að læra aðeins meira í tónlist og taka mér
frí frá hinum hefðbundnu fögum í fjöl-
brautarskólanum. Ég ákvað þess vegna að
spreyta mig á inntökuprófi við tónlistarhá-
skólann í Olsó með harmoniku sem aðal-
hljóðfæri. Ég flaug út til að taka prófið í
mars fyrir ári síðan eftir talsvert mikinn
undirbúing við að ná prógramminu sem
ég ætlaði að spila. Auk þess las ég tón-
fræði á norsku til að geta tekið inntöku-
próf á því máli sem kennt væri á ef svo
færi að ég kæmist inn. Kennararnir í Tón-
listarskólanum voru tilbúnir að aðstoða
með allt mögulegt og undirbúningurinn
dugði til að mér var boðin skólavist. Auð-
vitað hafði ég vonað það, en samt sem
áður var ég ekki alveg búin að reikna
dæmið til enda því til þess að mega byrja
í skólanum þá þarf maður að hafa lokið
stúdentsprófi, Ég setti allt á fullt og tók
nokkur fög utanskóia yfir sumarið til að ná
stúdentsprófi svo ég kæmist út um haust-
ið. Það var frekar knappt að ég næði þessu
Oddný skemmtir sér í Vigelandsgarðinum í
Osló.
Oddný við Ráðhúsið í Osló.
á tíma en ég lauk síð-
asta prófinu utanskóla
15. ágúst og byrjaði í
tónlistarskólanum 19.
ágúst. Núna er ég á
annari önn í Norges
musikkhogskole og
hérna er skemmtilegra
að vera en ég nokkurn-
tíma þorði að vona.
iafnvel þó ég reikni ekki
með því að verða hvorki
atvinnumanneskja eða
tónlistarkennari, hugsa
ég þetta ár mest til
kynningar og svigrúm
fyrir mig til að hugsa um hvað ég vil gera í
framtíðinni.
Námið eða námsbrautin sem ég er á
kallast kandidatstudiet i utoving og tekur
4 ár og endar með cand. mag. gráðu. En
skólinn býður einnig upp á framhaldsnám
þar sem hægt er að taka eitt ár í viðbót til
að öðlast kennararéttindi. Einnig er hægt
að taka diplomanám eða doktorsnám við
skólann.
Prófessor á harmoniku við skólann er
)on Faukstad. Við harmonikunemarnir í
deildinni erum öll mjög ánægð með
kennarann, enda er hann mjög flinkur og
góður kennari. Nemarnir í skólanum sem
hafa harmoniku sem aðalhljóðfæri eru 6
talsins, og eru þeirýmist á klassískri braut
eða á folkemusikk-braut.
Við „nikkararnir" höfum það mjög
skemmtilegt saman, við förum á tónleika,
æfum saman, skiptumst á að spila fyrir
hvort annað í skólanum og höldum saman
tónieika. Núna erum við t.d. að æfa fyrir
sameiginlega tónleika harmonikudeildar-
innar sem verða rétt eftir páska. f október
á síðustu önn fórum við nokkur saman í
helgarferð til Danmerkur til að fylgjast
með harmonikukeppni sem var haldin í
Kaupmannahöfn. Það var mjög skemmti-
leg ferð og gaman var að heyra í öllum
þessum góðu harmonikuleikurum. Um
þessar mundir eru svo nemarnir í norsk
folkemusik í námsferð í Finnlandi þannig
er alltaf eitthvað skemmtilegt um að vera.
Auk þess sem við erum í tímum á aðal-
hljóðfærið lærum við líka ýmislegt annað
en að spila t.d. tónlistarsögu, hljómfræði,
tónheyrn, upptökutækni og að vinna með
tónlist í tölvum, improvisasjon og æfing-
artækni svo nokkur dæmi séu nefnd.
Tímasóknin er ekki mjög mikil, því ætlast
er til þess að nemendur noti tímann til æf-
inga þannig að hinn hefðbundni skóla-
dagur er kannski einn tii tveir fyrirlestrar
eða tímar og afgangurinn af skóladeginum
fer í æfingar.
Ferðalangur.
Það er nú samt fínt að mestur tími fer
í æfingar en ekki verkefni, því það getur
stundum verið strembið að skrifa löng
verkefni á norsku. Námið er frekar krefj-
andi en mér finnst það í alla staði mjög
skemmtilegt og ég finn mig vel í því sem
ég er að gera. Hingað til hefur þessi vetur
í skólanum verið ótrúlega lærdómsríkur
og skemmtilegur. Svo er bara að sjá hvern-
ig framhaldið verður en ég er ennþá ekki
búin að ákveða neitt hvar ég verð niður-
komin næsta vetur. Þess vegna ætla ég
bara að njóta þess að vera fátækur náms-
maður í útlöndum og fá sem mest út úr
þessu.
Ef einhver hefur áhuga á að fræðast
meira um skólann þá er heimasíða hans:
www.nmh.no