Harmonikublaðið - 01.06.2003, Side 5
HARMONIKUBLAÐIÐ
Fróðleikur
Karl Karlsson
ellegar Carl Jularbo
Karl lularbo.
flesta tónlistarskóla í sýslunni og fengið
nemendur til að koma á svokölluð kaffi-
kvöld þar sem þeir spila fyrir gesti og okk-
ar spilarar leika einnig. Félagið sá um
landsmót S.Í.H.U. (Sambands íslenskra
harmonikuunnenda) sem var haldið að
Laugum í Reykjadal 1990, einnig sá félag-
ið um aðalfund S.Í.H.U. 2002.
í tilefni af 20 ára afmæli félagsins 1998
var farið í að safna upptökum frá RUV. og
félagsmönnum H.F.Þ. Kristján Edelstein
tók þetta og hreinsaði og var síðan gefinn
út geisladiskur með þessu efni. Allt efnið
er geymt á geisladiskum.
Félagshljómsveit hefur verið starfandi
frá 1980 til dagsins í dag og hafa verið í
henni allt að 15 spilarar og niður í 2.
Dansleiki höfum við haldið í héraði og
víðar allt frá stofnun félagsins, stundum í
samvinnu við hin ýmsu félög t.d. Karla-
kórinn Hreim, vísnafélagið Kveðanda,
Gömludansaklúbbinn o.fl. Einnig hafa fé-
lagar spilað við hin ýmsu tækifæri.
Árshátíð höfum við haldið árlega allt
frá stofnun og oft fengið til okkar gesta-
spilara. Eins og áður segir er félagið nú
25 ára og af því tilefni verða haldnir tón-
leikar og dansleikur á Húsavík 16. ágúst.
Þar koma fram Reynir lónasson, Grettir
Björnsson og félagar úr F.H.U.N. Afmæl-
ishátíðin verður síðan haldin 4. okt. n.k.
og er búist við fjölmenni. Formenn allra
félaga fá nánari upplýsingar þegar nær
dregur. Þá hefur verið unnið að því að
taka spilara upp á myndband og er það
langt komið. Félagafjöldi er nú um 95.
Núverandi stjórn skipa: Aðalsteinn ís-
fjörð formaður, Sigurður Ólafsson ritari,
Dagur Jóhannesson gjaldkeri, Jón Sigur-
jónsson og Kjartan Sigurðsson með-
stjórnendur.
Að lokum sendum við ykkur öllum
sem þetta lesið bestu kveðjur og þakk-
læti fyrir ánægjulegar stundir á liðnum
árum. Vonast til að sjá ykkur sem flest á
Breiðamýri á útileguhátíð 25.-27. júlí.
Húsavík f maí 2003.
F.h.stjórnar H.F.Þ., Aðalsteinn ísfjörð
Efni í næsta blað!
Þeir sem hugsa sér að senda efni
í næsta blað sem koma á út í
október nk„ þurfa að skila því
fyrir 25. september.
Hann fæddist 1893 á þjóðhátíðardaginn
6. júlí, í þorpinu Jularbo sem er í Dölun-
um og tók sér sfðar nafn eftir því. Faðir-
inn var umferðarsölumaður sem átti
harmoniku, en drengurinn fékk ekki að
snerta hana. Það hvíldi engin dul né
rómantík yfir æsku hans og honum var
ekki hugsað neitt hlutverk, né að reyna
að spila á harmonikugarminn sem faðir
hans átti, það var því í óleyfi að hann
stalst til að æfa sig þegar pabbinn var í
söluferðum.
Svo var það, að haldið var samkvæmi
í húsum foreldranna. Faðirinn mun hafa
ætlað að spila fyrir dansi, en fyrir þrá-
beiðni móðurinnar fékk Kalli litli að
reyna sig og eftir það snerti pabbinn
aldrei harmoniku. Ekki gaf nú þetta sára
frumstæða hljóðfæri með fáeinum
hnöppum í einni röð og tveimur bössum
fyrirheit um mikla tónlist. Tónninn var
mjór eða öllu heldur skrækur.
Ég sá Carl lularbo spila nokkur lög í
kvikmynd, sem um hann var gerð og þar
gaf að heyra valsinn, Min första kompo-
sition (Mitt fyrsta lag), leikinn á þetta
gamla hljóðfæri.
En 1914 lék Juiarbo á sína fyrstu plötu
þá þegar orðinn margfaldur sigurvegari í
'keppnum og á góðri leið að verða hvað
frægastur norrænna spilara rúmlega tví-
tugur að aldri. Hann var ekki einungis
dáður í sínu heimalandi, heldur náði
frægð hans til annarra landa svo sem
Englands og Þýskaiands sem hann heim-
sótti til tónleikahalds og hljómplötu-
gerðar, en ails mun hann hafa spilað
á milli fimmtán og sextán hundruð
plötur.
Sögur eru sagðar um tilurð laga hans,
þá er sennilega þekktust sú sem segir frá
norsku stúlkunni Elínu sem sagt er að
Carl Jularbo hafi átt í ástarsambandi við.
Þegar hann kom eitt vorið að spila í Nor-
egi, var hún dáin úr berklum. Hann
samdi Drömmen om Elin til minningar
um hana.
Jularbo dó sjálfur 1966. Hann er einn
sá þekktasti allra norrænna harmoniku-
leikara og lög hans mala gull í digra
sjóði.
Högni Jónsson.
QÍS'