Harmonikublaðið - 01.06.2003, Page 6
FróðleiUur
HARMONIKUBLAÐIÐ
Harmonikuleikarar frá vinstri: Kjartan Erlendsson, Elín jóhannesdóttir, Margrét Halldórsdóttir,
Þórhallur Þorvaldsson og |ón Gíslason. Aftari röð: Jóhann Friðriksson trommur og Margeir
Friðriksson bassi.
F.V.: lón St. Gíslason harmonika, Kristján Þór Hansen bongótrommur, Jóhann Friðriksson
trommur, Stefán lónsson tromma, Margeir Friðriksson bassi, Kjartan Erlendsson gítar.
fengu gestir vöfflur með rjóma á meðan
þeir nutu tónleika hljómsveitar félagsins.
Einnig komu þar fram Alex Már Sigur-
björnsson 11 ára harmonikuleikari og
ingunn Kristjánsdóttir, 13 ára söngkona
sem söng nokkur iög með hljómsveitinni.
Hjá okkur var Sumargleði í félags-
heimilinu Miðgarði laugardaginn fyrir
sjómannadag, þ.e. 31. maí. Þar léku
hljómsveitir félagsins fyrir dansi ásamt
gestaspilurum sem voru að þessu sinni
hljómsveitir Félags harmonikuunnenda
við Eyjafjörð. Stefnum við að því að þetta
verði árlegur viðburður.
Síðasta uppákoma hjá félaginu Þetta
starfsár er svo Fjölskylduhátíð í Húnaveri
Jónsmessuhelgina 20.-22. júní og er hún
haldin í samvinnu með Blönduósingum
og Siglfirðingum. Hátíðin verður með
hefðbundnu sniði. Vonumst við til þess
að sjá ykkur þar sem flest.
Með kærri kveðju.
Gunnar R. Ágústsson,
formaður Félags harmonikuunnenda
í Skagafirði.
Kveðja úr Skagafirðinum
Aðalfundur FHS var haldinn þriðjudag-
inn 1. apríl 2003. Breyting varð í stjórn-
inni, hana skipa nú
Formaður: Gunnar Ágústsson
Ritari: Ragnheiður Guðmundsdóttir
Gjaldkeri: Kristján Þór Hansen
Meðstjórnandi: Kristín Snorradóttir
Fráfarandi voru Elín G. jóhannesdóttir
og Þórhallur Þorvaldsson og var þeim
þakkað samstarfið til margra ára. Á fund-
inum hjá okkur núna var samþykkt sú til-
laga að taka upp félagsgjöld. Ekki hafa
verið nein félagsgjöld hingað til en nú
ætlum við að tengja þau áskrift að Harm-
onikublaðinu. Félagsgjaldið verður því
kr. 1500,- eins og áskrift að blaðinu kostar.
Með þessu móti vonumst við til að hagur
Harmonikublaðsins eflist.
Fundir hjá stjórninni eru annað slagið,
hafa þeir þá gjarna tengst æfingum sem
eru einu sinni í viku. Mætum við þá að-
eins fyrir boðaðan æfingartíma og ræð-
um um það sem efst er á baugi í það
skiptið. Annars erum við með tvær
hljómsveitir, önnur æfir á þriðjudags-
kvöldum hin á fimmtudagskvöldum.
Sumir hljóðfæraleikaranna eru í þeim
báðum þannig að það eru stífar æfingar
hjá þeim.
Á síðasta aðalfundi Sambandsins að
Narfastöðum var rætt, en sú umræða
hafði reyndar komið fram á aðalfundi
árið áður að koma á ungiingalandsmóti
harmonikuleikara. Okkur Skagfirðingum
var falið að koma þessu á. Ekki tókst okk-
ur að koma þessu á í vor, en Tónlistar-
skóli Skagafjarðar ætlar að aðstoða okkur
ásamt fleiri aðilum við að koma þessu í
framkvæmd vorið 2004. Haft verður sam-
band við alla tónlistarskóla á landinu
núna áður en skólatímabilinu lýkur.
Einnig verður unnið að öðrum málum
tengdum þessu, s.s. húsnæði, fram-
kvæmd mótsins og fl., þannig að línurnar
verði nokkuð skýrar í byrjun næsta skóla-
árs. Því má segja að þetta sé í góðum far-
vegi.
Af starfsemi félagsins er það að frétta
að við fórum seint af stað í haust. Höfum
við því aðeins haldið tvo dansleiki auk
okkar árlega sunnudagskaffis, sem var að
þessu sinni sumardaginn fyrsta og var því
nokkurskonar sumarkaffi þetta árið. Þar
VERKSTÆÐITIL
ALHLIÐA VIÐGERÐA Á
HARMONIKUM AÐ
KAMBASELI 6, RVK
HAFIÐ SAMBAND VIÐ
GUDNAÍSÍMA
567 0046