Harmonikublaðið - 01.06.2003, Side 7
HARMONIKUBLAÐIÐ
Lagahöfundur
Hopp og hí eftir Aðalstein ísfjörð
Lagahöfundurinn 13 ára með 120 bassa Castelfidardo.
Lagahöfundur blaðsins að
þessu sinni er Aðalsteinn ís-
fjörð á Húsavík. Hann er harm-
onikuunnendum að góðu kunn-
ur enda búinn að vera með
harmonikuna í fanginu frá
unga aldri. Hann hefur leikið á
dansleikjum víða um land auk
þess að koma fram við margs-
konar tækifæri bæði hér á
Iandi og erlendis. Þó harmon-
ikan sé hans aðal hljóðfæri í
dag, hefur hann leikið á mörg
önnur um dagana. Hér segir
hann frá því helsta í leik og
starfi.
Ég er fæddur á Húsavík 1947 og hef
verið þar síðan.
Fyrstu kynni mín af harmoniku voru
þegar ég var 7 ára, þá fékk ég að spila á
þetta hljóðfæri sem ég kolféll fyrir. Ég
eignaðist fljótlega Weltmeister, 32ja
bassa, sem seld var tveimur árum seinna
í næsta hús, en ég fékk hana að gjöf nú
fyrir tveimur árum eða um 46 árum frá því
ég seldi hana. Ég fékk mér síðan 80 bassa
Scandalli, átti hana þar til ég fékk mér
stórmerkilega harmoniku sem hét Castel-
fidardo 120 bassa hún var ein 18 kg. Ég
átti hana mjög stutt, því ég lánaði hana
vini mínum á síldarbáti og sá hana aldrei
aftur, mér var sagt að skipsfélagar hafi
hent henni í sjóinn.ekki veit ég hvort það
er satt. Ég var síðan harmonikulaus í ein-
hver ár, þá fékk ég í afmælisgjöf frá kon-
unni minni 5 kóra 120 bassa Royal stand-
ard nikku og seinna fékk ég mína fyrstu
hvítu nikku Exelsior 120 bassa, síðan hef
ég yfirleitt verið með hvítar þar
til nú.
Hljómsveitarferill minn byrjaði strax í
barnaskóla, síðan í gagnfræðaskóla og þá
byrjaði ég í Lúðrasveit Húsavíkur spilaði
á clarinett og lærði nótur.
Hljómsveitirnar hafa verið margar, og
með ýmsum, en frægust var hljómsveitin
Húsavíkur - Haukar, þar spilaði ég á allt-
og tenor-saxófóna ásamt clarinettu og
harmoniku. Og einnig spilaði ég á hljóm-
borð og trommur, að vísu aðeins hálfan
vetur.
Ég hef spilað við hin ýmsu tækifæri
nánast um allt land og einnig
erlendis. Undirleikari hjá
Karlakórnum Hreim í Suður
Þingeyjarsýslu hef ég verið
núna í ein 10 ár.
Ég kenndi við Tónlistarskóla
Húsavíkur sem stundakennari
á harmoniku, clarinett, saxófón
og blokkflautu frá 1978-1983.
Fyrstu kynni mín af plötu-
upptöku voru þegar F.H.U.R.
gaf út sína fyrstu plötu. Þá fór
ég til Reykjavíkur, fékk lánaða
harmoniku og spilaði inn á
plötuna, „Flöktandi augu", sem
er mitt fyrsta frumsamda lag.
Þetta tókst með hjálp góðra
manna í F.H.U.R.
Ég spilaði inn á plötu fyrir
Tónaútgáfuna ásamt lóni
Hrólfssyni, sem bjó á Kópa-
skeri og fékk platan nafnið
„Samspil". Síðan gaf ég út
geisladiskinn „í Ásbyrgi" árið
2000.
Þrisvar sinnum hef ég tekið þátt í laga-
keppni, fyrst árið 1993 á landsmóti
S.Í.H.U. á Egilsstöðum, með lagið „Æsku-
ást" við texta Þórgríms Björnssonar, og
hlaut það fyrstu verðlaun í flokki sung-
inna laga. Síðan sendi ég lagið „Haust-
minningu" við texta Þórgríms Björnsson-
ar í keppni hjá H.F.H. árið 1996 og fékk
þar þriðju verðlaun og síðast árið 2002
spilaði ég og Tatu Kantomaa lagið „Hopp
og hí" sem hann útsetti og var það valið
lag kvöldsins. Nú síðan hafa bæst við tvö
lög sem Tatu er að útsetja.
Ég byrjaði ungur að vinna við hand-
lang í múrverki hjá föður mínum og fór
síðan á samning 1974 og fékk meistara-
réttindi 1980. Ég hef unnið við múrverk
síðan. Árið 1983 fékk ég mér tæki til
steypusögunar og kjarnaborunar og vinn
við það í dag ásamt múrverki.
Ath. Hægt er að nálgast útsetningar af
laginu „Hopp og hf' fyrirtværharmonikur
hjá höfundi í síma 464 1541 og 894 1541.
L
Hljómsveitin Haukar á dansleik á Hólmavaði 1965. Frá vinstri: Aðalsteinn ísfjörð saxófónn,
Steingrímur Hallgrímsson trommur, Árni Gunnar Sigurjónsson orgel og Grétar Berg Hallsson
gítar.