Harmonikublaðið - 01.11.2004, Side 3

Harmonikublaðið - 01.11.2004, Side 3
HARMONIKUBLAÐIÐ RITSTJÓRAPISTILL ISSN 1670-200X Ábyrgðarmaður : Jóhannes Jónsson Barrlundi 2 600 Akureyri Sími 462 6432, 868 3774 Netfang: johiId@simnet.is Ritvinnsla: Hildur Gunnarsdóttir Prentvinnsla: Ásprent Netfang: gudjon@asprent.is Meðal efnis • Félag Harmonikuunnenda Suðurnesjum • Grein (rá Helgu Kristbjörgu • Lag blaðsins • Færeyjaferð FHUE • Danshljómsveit á Akranesi • Karlarnir • Landsmót SÍHU 2005 Auglýsingaverð: Baksíða 1/1 síða kr. 12.000 1/2 síða kr. 6.000 Innsíður 1/1 síða kr. 1 1.000 1/2 síða kr. 5.500 1/4 síða kr. 3.500 „“„ 1/8 síða kr. 2.500 smáauglýsing kr. 1.500 Forsíðumynd: Sigurður Hallmarsson á Húsavík. ,— • Efni í næsta blað Þeir sem hugsa sér að senda efni í næsta blað, sem koma á út í aprfl n.k. þurfa að skila því fyrir 15. mars. Frá ritstjóra Ágæti lesandi! Þegar fresturinn til að skila inn efni í þetta blað rann út og ekki hafði borist nema sem nam efni á tvær blaðsíður fór ég að velta því fyrir mér hver tilgangurinn væri með útgáfunni. Til hvers að halda út blaði ef menn sjá sér ekki fært að senda efni í það. Eins og ég hef áður minnst á var það von okkar sem að útgáfu blaðs- ins stöndum, að lesendur og annað áhugafólk um málefni harmonikunnar léti í sér heyra og nýtti sér þannig blaðið til að miðla fróðleik sem það byggi yfir og tengdist harmonikunni, eða benti á efni, jafnvel áhugaverða viðmælendur, eða hvað annað, sem ætti heima í svona blaði. Hugsunin á bakvið útgáfu þess var einmitt sú að blaðið tengdi saman fólk sem hefði svipuð áhugamál með velferð harmonikunnar að leiðarljósi. Eins og reynslan sýnir virðist áhuginn ekki mikill eða annað hitt að fólk er orðið vant því að láta mata sig á efni, í stað þess að leggja sjálft eitthvað til málanna. Ég vona að svo sé ekki því þá er ég hræddur um að blaðið leggi fljótt upp laupana. En þrátt fyrir þessa stöðu hafa margir brugð- ist vel við á síðustu stundu og hefur það bjargað blaðinu fyrir horn í þetta sinni, þökk sé þeim. Ef við viljum halda útgáfu þess til streitu ættum við að velta þess- um staðreyndum fyrir okkur. En ef til vill ervandinn ekki svona mikill, kannski þarf að nota aðra aðferð við efnisöflun, hætta að binda sig við frestinn sem gefinn er til skila á efni í blaðið og vinna markvissar að efnisöflun. En nú er mál að taka upp léttara hjal. Mörgum hefur verið hugleikið það ástand sem var í harmonikumálum fyrir ekki svo mörgum árum, það er því ánægjulegt að vita af því að nú er margt af okkar unga fólki að hasla sér völl með- al þeirra bestu hér á landi. Má þar sem dæmi nefna Matthías Kormáksson sem farinn er til náms í Ameríku, þó ekki harmonikunám en mun hafa tekið hljóð- færið með sér til vonar og vara, Helgu Kristbjörgu frá ísafirði sem nemur á harmoniku í mjög þekktum skóla í Frakk- landi og Oddnýju Björgvinsdóttur frá Akranesi sem er á þriðja ári í Tónlistarhá- skólanum í Osló. Þetta er bara toppurinn á ísjakanum því fjöldi af ungu fólki er að ná góðum árangri á hljóðfærið, má þakka það fjölda góðra kennara sem hér starfa. Það má því segja að það séu jólin í þessu efni nú um stundir og með það í huga óska ég ykkur lesendur góðir gleðilegra jóla og velfarnaðar á landsmótsári. II. Kvöldljóð Nú nýverið kom út hljómdiskurinn "Kvöldljóð" þar sem Pálmi Stefánsson á Akureyri (Pálmi í Tónabúðinni) leikur á harmoniku og fl. hljóðfæri ásamt og við undirleik nokkurra félaga sinna. Diskur- inn hefur að geyma 15 lög bæði íslensk og erlend sem mörg hver hafa hljómað í eyrum landsmanna um árabil. Leikur Pálma svo og annarra hljóðfæraleikara er vandaður og gott jafnvægi er á milli hljóðfæranna. Diskurinn ber vitni um smekkvísi og vönduð vinnubrögð og er góður til hlustunar þeim sem unna hug- ljúfri tónlist. J.J.

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.