Harmonikublaðið - 01.11.2004, Blaðsíða 13
HARMONIKUBLAÐIÐ
Fróðleikur/Fréttir
heilu leiksýningunum, við jarðarfarir og
bara nefndu tilefnið. Og ætíð tekst þeim
að skynja andblæ hverrar stundar og
skapa viðeigandi stemmingu, finna þann
tón og þá túlkun sem hæfir hverju tilefni,
hvort sem gleðin rís í hæstu hæðir eða
sorgin ristir dýpst. Um það vitnar þessi
hljómdiskur betur en annað. Þar er hinn
rétti tónn sleginn - og ekki í fyrsta eða
síðasta sinn af Sigurði Hallmarssyni og
Ingimundi jónssyni. Þakkir flyt ég þeim
félögum. Og mæli þar fyrir munn svo ótal
margra.
)óhannes Sigurjónsson
Þegar hér er komið sögu, eða þann 24.
nóvember sl. átti Sigurður að baki þrjá
aldarfjórðunga en Ingimundur tæpa sjö
áratugi. Karlarnir eru eldhressir og disk-
urinn þeirra Ijúfur og áheyrilegur.
Ég vil að endingu þakka þeim kump-
ánum fyrir gott spjall um leið og ég óska
þeim til hamingju með diskinn og Sig-
urði með afmælið.
lóhannes Jónsson
Ábending
til lesenda blaðsins
Svanhildur Leósdóttir sem átti lag blaðsins í síðasta blaði vill benda
lesendum á að lagið geti verið jafn gott á hraðanum 60, þ.e. venjuleg-
ur vals, en lagið er merkt á hraðanum 48 í blaðinu, sem hægur vals.
Félag harmonikuunnenda við Eyjafjörð
Fyrirhugaðir dansleikir 2004 - 2005
Laugardaginn 25. september 2004
Laugardaginn 23. október 2004 Fyrsti vetrardagur
Laugardaginn 20. nóvember 2004
Laugardaginn 04. desember 2004
Fimmtudaginn 30. desember 2004
Laugardaginn 29. janúar 2005
Laugardaginn 19. febrúar 2005
Laugardaginn 12. mars 2005
Laugardaginn 2. apríl 2005 Árshátíð
Miðvikudaginn 20. apríl 2005 Síðasta vetrardagur
Laugardaginn 21. maí 2005
Allir ávallt velkomnir!
[ESt