Harmonikublaðið - 01.11.2004, Blaðsíða 6

Harmonikublaðið - 01.11.2004, Blaðsíða 6
Bréf HARMONIKUBLAÐIÐ Castelfídardo - Larodde Helga Kristbjörg Guðmunds- dóttir frá ísafirði er einn af mörgum efnilegum nemendum í harmonikuleik. Hún byrjaði í námi 7 ára gömul hjá Messíönu Marzellíusdóttur og sló síðan eftirminnilega í gegn á Landsmótinu á Siglufirði 1999, þá aðeins 11 ára gömul. Síðustu ár hefur hún numið hjá Vadim Fjodorov en hann var einmitt gestaspilari á þessu sama landsmóti ásamt tvíbura- bróður sínum Yuri. Helga Kristbjörg brá sér til Ítalíu og Frakklands síðastliðið vor ásamt félaga sínum, Leifi Þor- bergssyni og kennaranum Vadim. Helga Kristbjörg, sem er nýorðin 17 ára, hefur nú hafið nám í hinum eftirsótta harmonikuskóla CNIMA í Larodde í Frakklandi. Hér á eftir segir hún frá ferðinni. Þann 29. maí síðastliðinn héldum við Leifur Þorbergsson og Helga Kristbjörg, nemendur við Tónlistarskóla ísafjarðar og kennarinn okkar Vadim Fjodorov upp í mikið og eftirminnilegt ferðalag. Við flug- um til Parísar og keyrðum svo af stað því ferðinni var heitið til Castelfidardo á ítal- íu til að láta stilla og yfirfara hljóðfærin okkar í verksmiðjunni Victoria Accord- ions. Eftir að hafa spurt nokkra ítali til vegar sem gátu fátt sagt á ensku nema „follow me" komumst við loksins á leiðarenda. Næstu vikuna eða á meðan við biðum eftir nikkun- um skoðuðum við nokkrar harmoniku- verksmiðjur, söfn og búðir auk þess sem við lágum á strönd- inni í Numano. í verksmiðjunum vöktu athygli mína þeir starfsmenn sem hafa þá atvinnu að „tuna" eða stilla allan daginn. Þeir spila, opna nikkuna og ýta við nokkrum nótum, loka aftur, spila, og þetta mörgum sinn- um þangað til þeir byrja á þeirri næstu. En eftir það keyrðum við aftur framhjá Ölpunum og til Frakklands í lítið sveita- þorp, Larodde, þar sem harmonikuleikur, kúabjöllur og engisprettur hljómuðu í takt. í Larodde er að finna einn besta og eftirsóttasta harmonikuskóla heims, CNiMA. Kennarar skólans eru margverð- launaðir auk þess að nemendur skólans eru þekktir fyrir fyrstu sætin í alþjóða- keppninni Klingenthal. Þar tókum við þátt í sumarnámskeiði í tvær vikur. Kennslustundir fóru fram nokkrum sinn- um á dag. Á morgnana var hópkennsla þar sem ég og Leifur lærðum grundvall- aratriði franska kerfisins hjá prófessor Mornet, því miklu máli skiptir að hafa það á hreinu. Eftir hádegismat tóku svo við einkatímar hjá hinum ýmsu kennur- um þar sem við fórum nánar í lögin sem við höfðum verið að æfa og skerptum á tækninni. Á kvöldin og um helgar heim- sóttum við meðal annars sérstakan harmonikubar, spiluðum boccia við aðra nemendur skólans, syntum í risastóru stöðuvatni við hliðina á höllinni Chateau Einn af yfirkennurum skólans. Jacques Mornet. Nokkrir af nemendum skólans og nemendum á námskeiðinu. Krjúp- andi eru kennararnir Domi og Roman. Helga Kristbjörg, Vadim og Leifur að taka því rólega í la Bourbulle. de val og æfðum okkur eins og brjálæð- ingar. Lokaverkefnið var svo að halda smá tónleika í kirkjunni og það tókst mjög vel. Einnig er gaman að geta sagt frá því að þau Domi Emorine og Roman Jbanov, kennarar í CNIMA héldu tónleika hér á ís- landi dagana 16,- 27. ágúst, eins og sum- ir hafa kannski tekið eftir, við góðar und- irtektir. En námsferðin okkar heppnaðist með ólíkindum vel, þetta var skemmtileg upplifun og við lærðum margt nýtt. Það sem kom mér mest á óvart var hvað margt og misjafnt fólk hefur áhuga á harmonikunni og hvað margir krakkar leggja hana fyrir sig að loknum eða óloknum grunnskóla. Það er auðvitað endalaust hægt að bæta sig og ég hvet alla sem hafa áhuga, að skella sér næsta sumar eða um vetur eins og ég hef hugs- að mér að gera. Ég vil enda á því að þakka þeim sem gerðu ferðina okkar mögulega og ekki síst kennaranum okkarVadim Fjodorov. Helga Kristbjörg Guðmundsdóttir. Harmonikusafnið í Castefidardo.

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.