Harmonikublaðið - 01.11.2004, Síða 14
Fróðleikur
HARMONIKUBLAÐIÐ
Landsmót SÍHU 2005
Á komandi sumri verður lands-
mótið haldið í Neskaupstað
dagana 7.-10. júlí. Sú breyt-
ing verður frá fyrri Iandsmót-
um að í sumar hefst landsmót-
ið á fimmtudegi og líkur á
laugardegi.
Maður er manns gaman og dagskráin
orðin það viðamikil að lítill tími hefur
gefist til að hitta kunningjana og spjalla á
síðustu landsmótum. Þetta er jú á þeim
tíma sem margir eru í sumarfríi og hvers-
vegna þá ekki að slaka á og njóta mótsins
einum degi lengur. Stefnt er að því að
mótið verði sett kl. 20:00 á fimmtudags-
kvöld með tónleikum 5-6 félaga. Síðan
verði glaðst að hætti harmonikuunnenda
á eftir eins og stemming verður fyrir. Á
föstudag verða síðan tónleikar næstu 5-6
félaga og dansleikur um kvöldið. Á laug-
ardag verði tónleikar félaga. Seinnipart-
inn verða svo tónleikar Sören Brix sem
verður sérstakur gestur mótsins. Mótinu
verði svo slitið með hefðbundnum
stórdansleik í íþróttahúsinu á laugar-
dagskvöld.
Sören Brix er ungur Danmerkurmeist-
ari í harmonikuleik og er hann aðeins 17
ára. Hann hefur getið sér gott orð og
margir hafa heyrt til hans af hljómdiski
sem seldur var hér á síðasta sumri. Ég
sjálfur hef ekki heyrt hann spila á tónleik-
um en meðal annara heyrðu Eyþór Stef-
ánsson læknir og Hilmar Hjartarson til
hans á tónleikum síðasta sumar í Svíþjóð
og luku miklu lofsorði á piltinn. Sören er
núna um þessar mundir að vinna að
næsta diski og kemur með hann ferskan á
Landsmótið. Það hefur verið mikið fjallað
um Sören og telst hann einn sá efnileg-
asti í dag. Pilturinn er jú mjög ungur en
er í mikilli framför ætlar sér stóra hluti í
harmonikuheiminum. f Neskaupstað er
Sören Brix, Danmerkurmeistari í harmoniku-
leik.
mikil stemming fyrir landsmótinu og við
höfum góðan stuðning Fjarðabyggðar þó
þar sé í mörg horn að líta um þessar
mundir.
í Neskaupstað er margt skemmtilegt
að sjá t.d. Náttúrugripasafn, safn Jósafats
Hinrikssonar og málverkasafn Tryggva
Ólafssonar. Að ganga út í Nípu utan við
tjaldsvæðið er líka stórfengleg upplifun.
Svo verða Harmonikuunnendur aufúsu-
gestir á öldurhúsum staðarins sem og
kaffihúsum og hvar sem er. í Neskaup-
stað er sundlaug í hjarta bæjarins og fal-
legur skrúðgarður við hliðina. Svo hafa
hinir tveir kjarnar Fjarðabyggðar Eski-
fjörður og Reyðarfjörður upp á margt að
bjóða. Takið því frá góðan tíma og njótið
þess sem Fjarðabyggð hefur uppá að
bjóða.
Mjög fljótlega eftir áramótin verða
send bréf til allra aðildarfélaga SÍHU þar
sem greint verður betur frá umgjörð,
dagsskrá og fl. sem mótið varðar. Ég vona
að unga fólkið okkar sem er í harmoniku-
námi sjái sér sem flest fært að taka þátt í
mótinu. Ég veit að það eru miklar fram-
farir og gróska hjá þeim og vonandi er að
koma ný kynslóð sem tekur okkur þeim
eldri fram um flesta hluti.
Félag Harmonikuunnenda Norðfirði
hefur opnað heimasíðu og er slóðin
www.harmonika.is. Þar eru upplýsingar
og myndir og fl. Þegar líður nær lands-
móti mun verða sett inn dagsskrá og fl.
sem varðar framkvæmdina. Ef þið hafið
spurningar um mótið er ég með netfang-
ið omars@harmonika.is. Einnig má
hringja í mig í síma 893 3323 eða heim í
564 6684. Einnig er hægt að leita beint til
formanns FHUN Guðmundar Skúlasonar
í síma 891 1851.
Með harmonikukveðjum,
Ómar Skarphéðinsson,
framkvæmdastjóri landsmóts
SÍHU 2005.