Harmonikublaðið - 01.04.2005, Page 5
HARMOIMIKUBLAÐIÐ
Fróðleikur
spila ég með Harmonikusveit Oslóar eða
Oslo trekkspillklubb og hef lært mikið af
því.
Um síðustu páska
fór ég með þeim til
Prag og tók þátt með
þeim í keppni sem var
haldin á hátíð fyrir
evrópskar harmoniku-
sveitir. Það var mjög
vel heppnuð og
skemmtileg ferð enda
Prag falleg borg, fín-
asta veður og mjög
gaman að fá að taka
þátt í keppninni. Þarna voru sveitir frá 8
löndum en við vorum eina sveitin frá
Norðurlöndum, einnig vorum við eina
hljómsveitin sem keppti bæði íklassíska
flokknum og í svokölluðum „underholdn-
ingsklasse" (fann ekkert íslenskt orð yfir
þennan flokk) Ekki varverra að okkurgekk
vel í keppninni, unnum klassíska flokkinn
og lentum í 4. sæti í hinum auk þess sem
stjórnandi hljómsveitarinnar var valinn
besti stjórnandi hátíðarinnar."
- Er mikill munur á tónlistarlífinu í
kringum harmonikuna í Noregi og á ís-
landi?
„Það er ekki eins mikill munur og ég
bjóst við. Noregur er náttúrlega fjöl-
mennara land og þess vegna kannski
fleiri sem spila og oftar eitthvað um að
vera en hér heima.
En samt er þetta frekar lítill heimur
þarna og ekkert endilega stærri en hér
heima miðað við fólksfjölda.
- Hvað ætlarðu svo að dvelja lengi í
Noregi?
Oddný fyrir miðju ásamt samnemendum sínum. Verið er að leika
svítu eftir Matyas Seiber.
,Ætli ég klári ekki skólann og svo sé ég
til hvernig staðan verður. Annars er ekk-
ert ákveðið en ég er opin fyrir ýmsu."
- Hvað er svo framundan hjá þér?
„Ég ætla að koma heim í sumar eftir
að ég hef spilað með Harmonikusveit
Óslóar í Noregsmeistarakeppni sem
verður haldin í Lillehammer í lok júní.
í ágúst ætla ég svo að halda tónleika
til minningar um Jón Árnason frá Kleifum
í Ólafsfirði sem lést fyrir tæpu ári síðan.
Hann hef ég þekkt síðan ég var lítil og við
alltaf spilað saman þegar við hittumst.
Tónleikarnir verða haldnir á tónlistarhá-
tíðinni Berjadögum á Ólafsfirði 13.ágúst.
Einnig stefni ég að því að halda tón-
leika í Laugarborg í Eyjafirði í september
ásamt fleirum. Svo er stefnan tekin út
aftur til að klára það sem eftir er af nám-
inu." ).).
Nokkrum árum síðar. Þessi er tekin 2003.
- Hvernig er námið byggt upp?
„Námið er alls 4 ár og skiptist í fyrri
hluta sem er 2 ár og seinni hluta sem ein-
nig er 2 ár. Hver hluti endar svo með
próftónleikum. í fyrri hlutanum lýkur
maður við flest allar fræðigreinar svo
sem tónfræði, tónheyrn, hljómfræði, tón-
listarsögu, kontrapunkt o.s.fr. En í seinni
hlutanum er miklu minni tímasókn en
þeim mun meiri æfingar. Nú er ég á 3. ári
af 4 svo ég býst við að lokatónleikarnir
verði vorið 2006.
- Hefur þú kynnst áhugaverðu fólki
frá því þú hófst námið?
„)á, ég hef kynnst mörgum, en þó sér-
staklega í kringum skólann og tónlistina.
Ég hef líka sungið í íslendingakórnum í
Osló og kynnst þar mörgu góðu fólki. Svo
Oddný og kennarinn hennar, Jon Faukstad.
nw