Harmonikublaðið - 01.04.2005, Síða 11

Harmonikublaðið - 01.04.2005, Síða 11
HARMONIKUBLAÐIÐ Bréf mér til varnar, og alls ófær að tjá mig um það í bundnu máli, sem sumir aðrir hefðu átt létt með. Sýndist mér að þarna hefði eg sett svartan blett á ferðalagið sem lengi yrði í minnum hafður. En allt í einu datt mér í hug vísa eftir afa minn, Indriða Þórkelsson á Fjalli. Allir hafa einhvern brest öllum fylgir galli. Öllum getur yfirsést einnig þeim á Fjalli. Þessa vísu flutti ég nú ferðafélögun- um, og féll hún í góðan jarðveg, og eftir að bílstjórinn okkar hinn eini og sanni, Jón Árni Sigfússon hafði farið með lykil- inn á Hótel Selfoss og fengið loforð fyrir þvf að honum yrði komið í réttar hendur, voru allar áhyggjur á bak og burt og mér snarlega fyrirgefið. Oftast mæta á félagsfundina hjá okkur um 20 manns. Segja má að það sé kjarn- inn í félaginu, þ.e.a..s. þeir áhugasöm- ustu. Hinir eru alltof margir sem aldrei sjást á fundum. Það er slæmt, því þetta fólk þarf að kynnast því hve gaman er að starfa í svona góðum félagsskap. Hvað er hér til ráða? Ekki getum við skipað félögum okkar að mæta. En við gætum boðað til kvöldvöku með kaffiveit- ingum og félagar tækju með sér gesti. Harmonikuleikarar tækju lagið og einhverjir segðu gott orð. Þannig fengju hinir „óvirku" aðeins að kynnast félagsskapnum. Þetta er nú ekki ný hugmynd, en það verður að segjast eins og er að þessum þætti í starfi félagsins hefur - því miður - hnignað á undanförnum árum. Það geng- ur æ verr að finna pláss fyrir samkomur. Þvf betur er félagslíf það mikið og fjöl- breytt að um flestar helgar að vetrinum er eitthvað um að vera einhvers staðar í hér- aðinu og 5 þorrahelgar duga ekki til að blóta Þorra. Til þess að kaffikvöldin heyri ekki alveg sögunni til - það var reyndar eitt 5,desember .s.l. - hefur verið reynt að koma því á síðari hluta aprílmánaðar og þá er harmonikunemendum Tónlistar- skólans á Húsavík boðið að koma. Þá koma nokkrir krakkar og unglingar og spila fyrir okkur. Það er hin besta skemmtun. En eitt eða tvö kaffikvöld duga ekki til að laða krakkana að félag- inu. Miklu meira þarf til. Það þarf að koma á öflugu samstarfi milli félagsins og tónlistarskólanna. Takist það ekki sýn- ist mér að brátt sé úti um þenna ágæta félagsskap okkar, og svo mun vera víðar, verði ekki endurnýjun í liði harmoniku- leikara. Svo einfalt er það. Hér skal þess getið að félagið hefur styrkt tónlistarskóla í héraðinu, og þannig reynt að stuðla að harmoniku- kennslu, og er það vel. Sumarhátíð höfum við haldið á Breiðumýri allmörg ár í góðri samvinnu við F.H.U.E. Hafa þær verið mjög vinsæl- ar og vel sóttar af harmonikunnendum allsstaðar að af landinu. Á tímabili var áfengisneysla þartil ieiðinda, en það hef- ur sem betur fer lagast. Á þessum sam- komum hef ég kynnst mörgu ágætis fólki og á vináttu þess síðan. Ótalin er árshátíð félagsins sem venju- lega er höfð um eða upp úr miðjum nóv- ember. Hún er ómissandi þáttur í starf- inu. Þá er mikil matarveisla, sem Kristján Guðmundsson kokkur á Laugum og fé- lagi okkar sér um. Og þar er íslenska lambakjötið í þeim hávegum haft sem því sæmir. Fyrr á árum voru aðfengnir skemmtikraftar sem tróðu upp á árshá- tíðinni, en nú látum við okkur nægja heimafengið efni. Aðsókn ræðst að sjálf- sögðu af veðri og færi, en þar getur brugðið til beggja vona á þeim árstíma. Fundir okkar og samkomur í H.F.Þ. fara undantekningalítið fram á Breiðumýri. Það er okkar félagsheimili og hæfilega stórt, nema þegar sumarhátíðir eru haldnar. Þetta gamla, en endurbætta samkomuhús á framúrskarandi góðan anda og góða sál, því mér finnst það ætíð breiða út faðminn og bjóða okkur hjart- anlega velkomin. Og það er afar góð til- finning. Húsverðir hafa líka verið liðlegir og félaginu hliðhollir. Það hefur líka sitt að segja. Að endingu þetta: Kæru harmonikufélagar um land allt. Standið vörð um félagið ykkar, og reynið að vinna því allt það gagn sem þið getið. Þið fáið það ríkulega til baka. Ytra-Fjalli 20.febrúar 2005, ívar Ketilsson. Örlög mannskepnunnar Guð skapaði asnann og sagði við hann: „Þú verður asni. Þú vinnur baki brot- nu frá sólarupprás til sólarlags og berð þungar byrðar. Þú étur gras og státar ekki af neinum gáfum og lifir í 50 ár." Og asninn svaraði: „Ég skal vera asni ,en að lifa í 50 ár er alltof mikið, hafðu þau 20". Og Guð samþykkti það. Guð skapaði hundinn og sagði við hann: „Þú verður hundur. Þú gætir húss og mannsins og verður besti vinur hans. Þú þiggur leifarnar, sem hann réttir þér og lifir í 25 ár". Og hundurinn svaraði: „Ég skal vera hundur, en að lifa í 25 ár er alltof mikið, hafðu þau 10". Og Guð samþykkti það. Guð skapaði apann og sagði við hann. „Þú verður api. Þú sveiflar þér frá einu tré til annars og gerir ýmsar kúnst- ir. Þú verður skemmtilegur og lifir í 20 ár." Og apinn svaraði: „Ég skal vera api, en að lifa í 20 ár er alltof mikið. Hafðu þau 10." Og Guð samþykkti það. Að lokum skapaði Guð manninn og sagði við hann: „Þú verður maður, eina vitsmunaveran á jarðkringlunni. Þú not- ar gáfur þínar til að verða drottnari ailra dýra. Þú munt ráða yfir heiminum og lifa í 20 ár." Og maðurinn svaraði: „Ég skal vera maður, en að lifa í 20 ár er alltof stutt. Veittu mér að auki þau 30 ár, sem asninn vildi ekki, árin 15, sem hundur- inn vildi ekki og árin 10 sem apinn vildi ekki." Og Guð samþykkti það. Æ síðan lifir maðurinn í 20 ár eins og maður. Þá giftir hann sig og eyðir næstu 30 árum eins og asni, þ.e. vinnur baki brotnu frá sólarupprás til sólarlags og berð þungar byrðar. Þegar börnin eru flutt að heiman lifir hann í 15 ár eins og hundur: Gætir hússins og borðar allt sem að honum er rétt. Og eftir að hann er sestur í helgan stein, lifir hann eins ogapi síðustu lOárin, ferhús úrhúsi og gerir ýmsar kúnstir til að skemmta barnabörnunum. Hin árlega Breiðumýrarhátíö FHUE og HFÞ verður dagana 22.-24. júlí! ŒHt

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.