Harmonikublaðið - 01.04.2005, Page 12

Harmonikublaðið - 01.04.2005, Page 12
Fróðleikur HARMONIKUBLAÐIÐ Jón Hrólfsson frá Sveinungsvík Ég er staddur á heimili harm- onikuleikarans Jóns Hrólfsson- ar og eiginkonu hans Helgu Þuríðar Jónsdóttur að Ránar- götu 28 Akureyri í þeim til- gangi að fræðast um lífshlaup hans tengt harmonikunni. Jón er lipur harmonikuleikari sem ekki tranar sér fram. Hann leikur aðallega skandi- navíska tónlist, hefur spilað inn á tvær hljómplötur, þá síð- ari ásamt Aðalsteini ísfjörð. Jón lék mikið fyrir dansi hér áður fyrr en hefur minna gert af því í seinni tíð. Hann féllst á að svara nokkrum spurning- um sem lagðar voru fyrir hann. - Hvar ertu fæddur og hverjir voru foreldrar þínir? „Ég er fæddur í Sveinungsvík í Þistil- firði 27. mars 1946. Foreldrar mínir voru Hrólfur Björnsson og lárnbrá Guðríður Einarsdóttir sem þar bjuggu." - Bjóstu lengi í Sveinungsvík? „Ég bjó þar til ársins 1972, en þá flutt- ist ég til Raufarhafnar eftir að hafa kynnst konu minni, Helgu Þuríði Jónsdóttur frá Lyngholti í Bárðardal, sem þá hafði kom- ið sem hjúkrunarfræðingur til Raufar- hafnar. Síðar bjuggum við í Sveinungsvík og aftur á Raufarhöfn þar til við fluttum til Kópaskers árið 1981 en þá tók konan mín við heilsugæslunni þar. Loks fluttum við til Akureyrar 1992, þar sem við búum í dag. Við eigum eina dóttur sem er fædd 1974 og heitir Járnbrá Björg, hún er nú kennari við Litlu-Laugaskóla í Reykjadal Suður Þingeyjarsýslu. Hún er gift Pétri Ingólfssyni frá Grundargili í Reykjadal." - Hvenær vaknaði áhugi þinn á harmonikuleik? „Hann vaknaði eftir að hafa heyrt þá Ormarslónsbræður leika saman á harmo- nikur í Ormarslóni, í gullbrúðkaupi for- eldra sinna, þá hef ég líklega verið svona 4-5 ára gamall. Það var í eina skiptið sem ég heyrði þá bræður leika saman. Síðar heyrði ég Þorstein Pétur nokkrum sinn- um leika einan og lóhann Óskar oft síðar." - Hvenær reyndir þú fyrst að ná lagi á harmoniku? „Ég var á áttunda ári og þá notaðist ég við harmoniku af gerðinni Hagström Granesso 80 bassa með sænskum grip- um, sem Einar bróðir minn hafði keypt 1953 af Ingimundi Björnssyni sem var lipur harmonikuieikari. Þetta var takka- nikka, það hefði eins getað verið píanó- nikka því aðalatriðið var að eignast nikku. Tveimur árum síðar eignaðist Einar nýja nikku af gerðinni Scandalli sem ég not- færði mér líka." -Hvenær eignaðist þú þína eigin harmoniku? „Það var veturinn 1960 hún var af gerð- inni Accordinola, 4 kóra 120 bassa. Síðan hef ég eignast nokkrar harmonikur en í Á árum áður. dag á ég Tombolini Extra professional." - Byrjaðir þú snemma að Ieika fyrir dansi? „Ég byrjaði 13 ára gamall og lék aðal- lega á Raufarhöfn fram um tvítugt og síð- ar víðar einn eða ásamt með fleirum. Síldarsumrin 1963-1965 var mikið spilað, stundum flest kvöld vikunnar og þá vor- um við fjögur, ég ásamt Skildi Björnssyni sem lék á saxofón, Signýju Einarsdóttur, sem lék á gftar og söng og Matthíasi Frið- þjófssyni sem lék á trommur. Oft var mik- ið fjör á þessum dansleikjum sem haldn- ir voru í Raufarhafnarbíó og var þá oft þröng á þingi. Dæmi eru um að selst hafi 625 miðar í húsið eitt laugardagskvöld, enda munu um 800 aðkomumenn hafa unnið á Raufarhöfn á þessum árum, fyrir utan þá sjómenn sem bættust við í land- legum. Á árunum 1977-1979, þegar Karl Jónatansson var skólastjóri Tónlistarskól- ans á Raufarhöfn, spilaði ég með honum fyrir dansi á Raufarhöfn og í nágranna- byggðum." - Voru margir harmonikuleikarar á Raufarhön á þeim tíma er þú varst að alast upp? „)á, þeir voru nokkrir, t.d. Hilmar Indriðason mágur minn, hann spilaði mikið fyrir dansi á Raufarhöfn og lærðum við bræður mikið af honum. Einnig lék Indriði faðir Hilmars mikið á árum áður, einnig nokkrir fleiri. - Hefur þú stundað tónlistarnám? „Um tvítugt fór ég í nám til Jóhanns í

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.