Harmonikublaðið - 01.06.2005, Blaðsíða 7

Harmonikublaðið - 01.06.2005, Blaðsíða 7
HARMONIKUBLAÐIÐ Lagahöfundur Þorlákur Friðriksson (Lalli) á Skorrastað Þorlákur Friðriksson. Þorlákur Friðriksson hefur unnað tónlist allt frá barn- æsku og marga hefur hann glatt með harmon- ikuleik sínum gegnum árin. Hann ætlar nú að svara nokkrum spurning- um fyrir blaðið. - Hvar og hvenær ert þú fædd- ur og hverjir voru foreldrar þínir? „Ég er fæddur á Eskifirði 15. jan- úar 1927. Foreldrar mínir voru Elín- borg Kristín Þorláksdóttir og Friðrik Árnason." - Var tónlist og söngur á þínu æskuheimili? „Faðir minn lék á orgel auk þess sem hann var ágætur söngmaður. Þess vegna var mikið um söng og tónlist á heimilinu. Við systkinin vorum níu og stóðum gjarnan öll í kringum orgelið hjá pabba, á góðum stundum og sungum með honum." - Hvenær byrjaðir þú að ná lagi á harmoniku? „Fyrstu harmonikuna eignaðist ég þegar ég var 17 ára gamall. Áður var ég búinn að læra að spila á nikkuna hjá hin- um og öðrum." - Hvenær byrjaðir þú að leika fyrir dansi? „Fyrsti dansleikurinn sem ég lék á var þegar ég var 13 ára gamall. Þá var ég í sveit á Svínhólum í Lóni. Eftir þetta fór ég að leika á dansleikjum, fyrst á Eski- firði, en síðar víðar um Austurland." - Voru samgöngur ekki erfiðar á þessum árum? „Jú, þær voru það. Ég lenti oft í því á þessum árum að bera harmonikuna á bakinu yfir bratta fjallvegi, bæði Odd- skarð og Staðarskarð til Fáskrúðsfjarðar." - Hvar hefur þú svo búið um ævina? „Ég fluttist árið 1948 að Skorrastað í Norðfirði og hef búið þar síðan. Konan mín, Jóhanna Ármann er þaðan og eigum við 6 börn." - Hélstu áfram að leika á harmonik- una eftir að þú fluttir til Norðfjarðar? „Já, ég gerði það, spilaði á velflestum þorrablótum og öðrum samkomum bæði í sveitinni og kaupstaðnum. Stundum einn en oft með öðrum tónlistarmönn- um." - Tókst þú þátt í félagslífinu í Norð- firði? „Já, ég var félagi í ungmennafélaginu og lék í leikritum og tók þátt í flestu öðru sem þar fór fram. Árið 1966 söng ég fyrst gamanvísur fyrir orð vinar míns Tryggva Vilmundarsonar. Með þessu hófst langt samstarf okkar Tryggva, hann orti og ég söng. Þessa samstarfs minnast menn og muna í Norðfirði enn í dag." - Hvað finnst þér í minningunni skemmtilegast af því sem þú gerðir í tónlistarmálum? „Þegar ég stundaði kennslu við skól- ann okkar í sveitinni og sagði börnum til í dansi, söng og hljóðfæraleik. Þetta er mér eftirminnilegur tími og börnin minn- ast hans gjarnan líka." - Hefur þú eitthvað átt við að semja lög? „Þegar um hægðist í búskapnum fór ég að fá meiri tíma fyrir sjálfan mig. Ég lærði aldrei að lesa nótur, því var þetta laust í reipunum til að byrja með, en árið 1993 sendi ég tvö lög í keppni, hjá Harmoníku- félagi Héraðsbúa við texta eftir bróðir minn, Helga Seljan. Þessi lög fengu 1. og 2. verðlaun, og varð það mér hvatning til þess að halda áfram. Síðan höfum við bræður haldið þessu samstarfi okkar áfram og eigum nú orðið talsvert safn laga og texta, sem óvíða hafa komið fram. En draumurinn er að koma þessu út á disk." - Hefur þú fengið einhverja við- urkenningu fyrir þessi störf þín? „Já. Árið 2001 ákvað Menningar- nefnd Neskaupstaðar í samstarfi við fjölskyldu mína og vini að efna til skemmtisamkomu sem hlaut nafnið Lallakvöld. Það kvöld lán- aðist afar vel og skildi eftir dýr- mætar minningar." - En hvað ert þú að gera ann- að í dag en að semja lög? „Ég er löngu orðinn löggilt gamalmenni, og uni mér best í fé- lagi eldri borgara. Harmonikan er aldrei langt undan og í dag æfi ég með félaga mínum sem spilar á mandolín. Við höfum spilað saman í nokkur ár og komið fram á samkomum hjá eldri borgurum bæði hér heima og á Hótel Örk í Hveragerði." Samtal þetta viö Þorlák er tekið af Hálfdáni Haraldssyni á Kirkjumei í Norðfirði. VERKSTÆÐITIL ALHLIÐA VIÐGERÐA Á HARMONIKUM AÐ KAMBASELI 6, RVK HAFIÐ SAMBAND VIÐ GUÐNA í SÍMA 567 0046 0®

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.