Harmonikublaðið - 01.06.2005, Blaðsíða 10
Hugleiðngar
HARMONIKUBLAÐIÐ
Hljóma hvað?
Þeir sem eitthvað hafa lært eða forframast í tónlist gagnrýna oft
hljómana hjá okkur sem lítið kunnum. Það var haft eftir þing-
eyskum spilamanni um annan, að þá sjaldan hann skipti um
hljóm, þá væri það til hins verra! Þetta virðist eiga jafnt við
hvort eru eldgömlu skandinavísku lögin eða gömlu frönsku lög-
in, hafa margir þá skoðun að nota skuli sjöund og minnkaða
sjöund hvarvetna sem það kann að eiga við. Gallinn er bara sá
að á harmonikunum sem algengastar voru og eru enn til og
töluvert vinsælar eru þessir hljómar ekki! Það er ekki aðeins í
Norðrinu sem þessi elskulegu (díatónísku) smáhljóðfæri ruddu
brautina fyrir léttari tónlist. Frakkland átti sína stórsnillinga
nægir að nefna Emil Vacher sem var dáður einleikari á fyrri
hluta liðinnar aldar. Eftir hann er lagið Plesant Fox sem er spil-
að hér sem ræll. Margir höfundar harmonikulaga svo sem
Andrew Walter hættu að gefa skrifuð hljómafyrirmæli og not-
uðu bókstafahljóma. Frakkar hafa ekki minnkaða sjöund á sín-
um harmonikum, hafa þess í stað þrjár sólóbassaraðir sem þó
aldrei kemur í stað hins. Ég átti sjálfur því láni að fagna að fá
léða tvöfalda Hohner harmoniku í nokkra mánuði þegar ég var
13 ára. Ég snéri henni nú fyrst öfugt, sem var leiðrétt og þá tók
við glíman að spila amerísku dægurlögin sem heyrðust æ og sí
í Óskalögum sjúklinga. Það var töluvert erfitt að finna eitthvað
Sorgarsaga
af harmonikuleikara
Miðaldra harmonikuleikari keypti sér nýjan Bens sport-
bíl.til að halda uppá það að konan fór frá honum.Fór svo í
bíltúr um kvöldið til að sýna sig og sjá aðra.
Topplúgan var dregin niður og vindurinn blés í hárlýjur,
sem ennþá prýddu höfuð hans. Hann gaf hressilega í og
þegar hraðamælirinn sýndi 180 km., sá hann skyndilega að
baki sér iögguna með blikkandi Ijósin.
Djöfullinn, sagði hann. Þeir ná mér aldrei á Bens og
hann gaf í... og gaf aftur í, en svo tók skynsemin völdin og
hann sagði við sjálfan sig, hvað er að mér og keyrði út í
vegarkant og stoppaði.
Löggan kom að honum, leit á ökuskírteinið og grand-
skoðaði bílinn. „Þetta hefur verið langur vinnudagur, sagði
hann, égerað ljúka vaktinni ogþaðerföstudagurinn 13. Ég
nenni ekki meiri pappírsvinnu og hef ekki áhuga á yfir-
vinnu, svo ég gef þér séns. Ef þú getur komið með eina
góða afsökun fyrir þessum ofsahraða, sem þú fórst á, betri
en ég hef nokkru sinni heyrt, þá læt ég þig sleppa í þetta
sinn.
Harmonikuleikarinn hugsaði sig um nokkra stund og
segir svo: Kellingin stakk af fyrir nokkrum dögum með lög-
reglumanni... og þegar ég sá bláa ljósið blikkandi á eftir
mér varð ég svo hræddur um að löggan væri að skila henni
aftur.J
Góða helgi! sagði löggan...
Högni jónsson
sem hljómaði við
þessar ljúfu laglínur
sem gældu við eyrun
og málamiðlunin hef-
ur verið af fátæklegra
tagi. En þegar ég loks
fékk sjálfur fullburða
nikku um síðir fór ég
að nota sitthvað sem
sest hafði að í hausn-
um á mér, og var varla
að smekk hljómvísra
sem lögðu sig í líma
að leiðrétta eða gagn-
rýna. Þó voru þeir til
sem líkaði þetta vel og
hvöttu mig. Ég hef því eina reglu; svo lengi sem þú spilar einn
láttu þá engan segja þér hvaða hljóma þú átt að spila! Sjálfur
Pietro Frosini lét smá grúppur sjá um hljóma og takt s.s. gítar,
píanó og banjó. Sá maður sem hvað mestum vinsældum hefur
náð á plötum hér, Örvar Kristjánsson kærir sig líka kollóttan um
smásmugulega bassanotkun og er það vel! Að lokum hvet ég
alla sem fást við nikkuna að láta feimni vegna óvissu með það
hvaða hljómar séu réttastir lönd og leið.
HJ
ú n íUnhátíð
ijk jaoíkfír 2005
Árbæjarsafni
sunnudaginn 17. júlí
Hópar og einleikarar
út um allt safn að venju
Minnum á hinar frábœru Golden Cup
harmonikur af ýmsum sfœrðum og gerðum
á ómófsfœðilegum verðum.
Einnig bjóðum við hinar vönduðu ítölsku
fantini og Brandoni harmonikur.
AT+H: Sérsmíðuð IG Model (A-A breyting á
nótnaborði fyrir harmonikur með 37 nótna
borð).
Harmonikumiðstöðin
simi : 5 5 3 4 0 7 6 • f a x : 5 5 3 4 0 7 2
jonatank@internet.is
www.thing.is/accordionfestival