Harmonikublaðið - 01.06.2005, Blaðsíða 14

Harmonikublaðið - 01.06.2005, Blaðsíða 14
Fróðleiksspjall HARMONIKUBLAÐIÐ „Höskuldur við orgelið í Norðfjarðarkirkju". Þetta voru skemmtileg ár Hann minnist á hljómsveitirnar: „Svo kom H.G. (Með Haraldi Guðmundssyni) og við fórum í ferð um landið, H.G. sextettinn og þar kom Árni Elfar inn líka um leið og ég. Síðar kom H.S. kvintett. Þá var Haraldur Guðmundsson hættur, er við stofnuðum þessa sveit. Það var spilað í þó nokkur ár. í henni voru Svavar Lárus- son á gítar, Lárus Sveinsson á trompet, Ottó Sigurðsson á kontrabassa, |ón Barðason á trommur og |ón Lundberg á básúnu og svo auðvitað harmonikur. Þetta voru skemmtileg ár og margs að minnast". Hér berst talið að lúðrasveitarárunum. „|á þau voru góð. Við vorum tólf í lúðrasveitinni. Við eigum nú hljóm- disk með orginal- upptökum frá þess- um tíma, líklega fimmtíu ára gamalt, frá 1954 þegar við spiluðum á bæj- arafmælinu og komum fyrst fram. Og þetta hefur ver- ið geymt öll þessi ár, en við létum bandið ganga með- an spilað var og enginn mundi eftir því að þetta væri til. Svo kom bara mað- ur með þetta um daginn, á heilum diski, allt mjög gott efni". Hvaðan fenguð þið hljóðfærin? spurði einhver: „Við fengum hljóðfærin frá Seyðisfirði og Eskifirði, gamla herlúðra og þeim var eiginlega safnað svona hér og hvar, og sumt þurfti að lóða saman eða rétta. Hljómsveitin var bara þriggja mánaða þegar við spiluðum fyrst, en æfðum bara svona einn vetur. Við spiluðum fyrst á bæjarafmælinu Svo kom bæjarafmælið og þá spiluðum við í fyrsta sinn 1954. Upptakan er m.a. frá þeim tíma. Svo líður tíminn, öll þessi ár og seinni upptakan, en þá vorum við að spila á Landsmótinu á Eiðum og út- varpið tók það upp. Þá var Lárus Sveins- son kominn í hóp- inn. En allt þetta maður, já, það voru góðir tímar. Það var gaman hvernig Lár- us byrjaði, hann var þrælklár á munn- hörpu og hafði mik- ið vald á henni og fékk mjög fallegan hljóm. Við létum hann fá Horn eða Kornett og það fór vel af stað. Síðar fór hann til Vínarborgar og þegar hann kom þaðan, spilaði hann með okkur. Lárus var orðinn svaka flínkur. Heyrðu, og svo spiiuðum við í fínum lúðrasveitarfötum, allir svaka fínir, og svo áttum við þessar líka fínu upptökur. Þetta er ómetanlegt. Svaka gaman að því". Hvernig gekk í byrjun að fá menn til að blása saman og ná lagi? „Það voru nú ýmsir byrjunarefiðleikar hjá okkur í fyrstu. Við vorum held ég bún- ir að reka fyrsta stjórnandann áður en við spiluðum opinberlega fyrst", bætir |ón Lundberg við og rifjar upp ýmislegt frá þessum tíma þegar þeir voru að byrja. Og Höski bætir við: „]á, svona er lífið." Við nikkunnar óm Höskuldur er nú spurður um organista- starfið í Norðfjarðarkirkju. „)á, ég var org- anisti í fjöldamörg ár. Ég sá mjög mikið eftir kirkjunni gömlu eins og hún var áður en hún var endurnýjuð. Það var stundum að ég var að æfa mig, að þá komu stund- um góðglaðir náungar inn og settust á bekk og svo bara leið tíminn og ég varð að vekja þá þegar ég hætti að spila. Það var geysigóður tími, og orgelið var alveg prýðilegt í þá daga í kirkjunni og kórinn góður. Þetta gekk alveg upp allt saman". Talið berst að harmoniku í eigu Hösk- uldar sem hann kallar Gretti. Hann keyp- ti hana af Gretti Björnssyni og hefur spil- að á hana lengi. „Það er geysigóð nikka", segir Hösk- uldur og brosir. Og menn rifja upp ýmis lög sem hann hefur spilað og útfærslur á ýmsum lögum. Spjallið er komið langt út fyrir ram- mann og Höski er sannarlega í essinu sínu og rifjar upp hvert atvikið á fætur öðru um menn og tónlist, lög og hljóð- færi enda ferillinn langur. Hann varð 75 ára 21. maí sl. og þrátt fyrir að veikindi hafi steðjað að á síðustu misserum, spil- ar hann enn og gleður með tónlist. Von- andi fáum við að heyra hann taka lagið um ókomin ár með sínum fagmannlegu töktum sem einkenna góðan hljómlistar- mann. Og eftir viðtalið settist Höski við píanóið og sveitin spilaði nokkur lög og menn hurfu á vit tónlistarinnar. Það sýndi sig og sannaði að Höskuldur hefur engu gleymt. Það var sannarlega lifandi tónn í þessu viðtali. Við þökkum Höskuldi fyrir og vonandi hefur tekist að fanga stemmninguna með einhverjum hætti, líkt og tónlistinni sem leikin er af fingrum fram. Við nikkunnar óm... Viðtalið hljóðritaði Egill lónsson en Sigurður Rúnar Ragnarsson skráði. Höskuldur Stefánsson, 75 ára, með nikkuna.

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.