Harmonikublaðið - 01.12.2005, Síða 5

Harmonikublaðið - 01.12.2005, Síða 5
HARMONIKUBLAÐIÐ Fróðleikur Fánafhending. F.v. Hermóður Alfreðsson, Sören Brix og Ómar Skarp- héðinsson. vitaskuld án meðleikara - en lokadans- leikurinn hófst kl. 22:00. Eftir hljómleik- ana talaði Bragi Hlíðberg um hina miklu ieikni Sörens og var afar ánægður með frammistöðu hans, sem er ekki lítið hrós frá virtasta harmóníkuleikara íslendinga og er gott veganesti fyrir hinn unga mann. Ég frétti að finnska harmonikuleikar- anum Tatu Kantomaa, sem er íslending- um að góðu kunnur, hefði þótt leitt að vera ekki á mótinu, en vegna misskilnings fórst það fyrir hjá honum. Upphaflega kom Tatu, hinn hugprúði og flinki harm- óníkuleikari til fslands á landsmót. Eyþór H. Stefánsson, læknir í Svíþjóð, hafði milligöngu um það og komu þeir Tatu og sænski harmóníkuleikarinn Dani- el Isaksson á fimmta landsmót SÍHU á Egilsstöðum 1.-3. júlí 1993. Eyþór Haukur Stefánsson, er ættaður af Fljótsdalshéraði, f. í Reykjavík 7. nóv. 1939, og ólst upp í Flögu í Skriðdal, hjá kjörforeldrum. Áður en hann hélt utan til Svíþjóðar 1971 í sérnám í skurðlækning- um, var hann kunnur harmóníkuleikari eystra og hefur haldið því áfram og kynnst mörgum listamönnum í tóniist þarlendis. Hann hefur verið búsettur ytra frá því hann fór í sérnámið og er nú yfir- læknir á skurðdeild handlækninga á Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg. Eyþór H. Stefánsson hefur átt þátt í að útvega harmóníkuleikara á fleiri lands- mót og einnig þess utan. M.a. Nils Flacke á landsmótið á Laugum í Þingeyjarsýslu 22.-23. júní 1990 og á mótið á ísafirði fyr- ir þremur árum 4.-7. júlí 2002, þar sem þau voru heiðursgestir: Annika Anders- son, Lars Karlsson, sem leikur á díatón- íska harmóníku og bróðir Anniku, gítaristinn Thom- as Andersson. Annika var þá á fslandi í þriðja sinn. Hún heim- sótti landið fyrst 1991, þá 17 ára ásamt þremur öðrum og 1995 ásamt Anders Larsson. Þess má geta, að Lars Karlsson er einnig ágætur rafbassaleikari. Foreldrar hans leika báðir á harmóníku og starfrækja tónlistarfyrirtæki í litlu bæjarfélagi rétt fyrir utan Gautaborg - Karlssons musik í Fjarás. Mikill vinskapur er á milli þeirra og foreldra Sörens Brix, sem einnig leika báðir á harmóníku. Um fleiri listamenn, sem Eyþóri hefur tekist að fá til íslands, má lesa í Svíþjóð- arbréfi hans í Harmonikublaðinu, 1. tbl. 1. árg. apríl 2002. íslendingar mega vera Eyþóri H. Stefánssyni þakklátir fyrir að kynna listamenn í fremstu röð. - Mig hef- ur lengi dreymt um að koma með góða listamenn héðan frá Danmörku til ís- lands og gerði það nokkrum sinnum fyrr meir og má þar nefna: Poul Uggerly, sem nú er látinn, Lille Palle Andersen og Kurt Marcussen. Árið 1998, kom út 15 laga geisladiskur með Poul Uggerly, sem nefn- ist: Min Trækharmonika gennem 60 ár. Það þarf líka að selja miða og fl. Þær stöllur Elín Ólafsdóttir og Guðrún M. Jóhannsdóttir. Það munu vera 19 félög í SÍHU, en ekki sáu þau sér öll fært að mæta. En tónleik- ar félaganna, sem fóru fram mótsdagana sýndu öflugt og þróttmikið starf á lands- byggðinni. Viku fyrir landsmótið fór hóp- ur harmóníkuunnenda frá íslandi til Fær- eyja með Norrænu frá Seyðisfirði, sem kom til baka í byrjun móts ásamt 15 manna hópi frænda vorra þaðan, sem setti skemmtilegan blæ á velheppnað landsmót. Heimferðin Seinasta morguninn á hótelinu knúði ég þéttingsfast á dyrnar hjá Sören, sem þá svaf standandi í baðinu! Hann hrökk upp og vaknaði og sagði hátt og snjallt: „)á!" - Um nóttina svaf ég ekkert, en Sören í 15 mínútur. Sigurjón Vilhjálmsson, minn Ijúfi vin- ur, tók á móti okkur á Reykjavíkurflugvelli og enn á ný nutum við gestrisni þeirra hjóna. En nú var miklu minni tími, en þegar við komum til landsins. Sigurjón ók okkur svo til Keflavíkur af sinni elsku- semi og þá var komið að kveðjustund. Við vorum komnir heim til Sörens um miðnætti að kvöldi 10. júlí. Pabbi hans gerði við miditækið svo Sören gat notað það daginn eftir við stúdíóupptökur. - Ljósmyndina á forsíðu Harmoniku- blaðsins 2. tbl. 4. árg. 2005, tók ég þegar Sören átti 10 ára afmæli sem harmóníku- leikari, þá einungis 15 ára. Þarna voru yfir 100 manns í matarboði. Foreldrar hans gáfu honum nýtt hljóðfæri. En eftir ís- landsferðina keypti hann sér nýja harm- óníku. í stuttu máli sagt, vorum við félagar mjög ánægðir með reisuna til Fróns og virtist vera áhugi á því, að fá Sören á önn- ur mót ellegar til hljómleikahalds og get- ur hann vel hugsað sér það. Eftir heim- komuna lék hann m.a. á Bindslevhátíð- inni, sem er stærsta mótið í Danmörku og einnig lék hann á tveimur mótum í Svíþjóð. Við þökkum ánægjulegt og gott sam- starf á íslandi. - Það er geymt en ekki gleymt. Ég lýk svo þessari samantekt á vísukorni sem ég lærði forðum daga norður í Hörgárdal. Allt er munað, allt er geymt, er áður vakti gaman. Engu tapað, engu gleymt, öllu haldið saman. Sören og Hermóður.

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.