Harmonikublaðið - 01.12.2005, Page 6
Fróðleikur
HARMONIKUBLAÐIÐ
Nýr formaður SÍHU
Á aðalfundi SÍHU sem haldinn
var á Hellu í september síðast-
liðnum tók Jónas bór Jóhanns-
son Egilsstöðum við starfi for-
manns Lanssambandsins af
Jóhannesi Jónssyni Akureyri.
Stjórn sambandsins skipa auk
formanns, Guðrún Guðjóns-
dóttir Reykjavík varaformaður,
Egill Jónsson Neskaupstað rit-
ari, Gunnar Ágústsson Sauðár-
króki gjaldkeri og Alda Frið-
geirsdóttir Blönduósi með-
stjórnandi.
Blaðið náði tali af nýja formanninum
og bað hann að segja lítillega frá sjálfum
sér og hvernig hann sér mál harmon-
ikunnar fyrir sér á komandi árum.
Þegar lóhannes ritstjóri hafði sam-
band við mig og bað um að ég gerði
stuttlega grein fyrir mér og þeim hug-
myndum sem ég hefði um málefni harm-
onikunnar á komandi árum var mér nokk-
ur vandi á höndum. Ef ég reyni að gera
grein fyrir sjálfum mér þá er ég fæddur
seint á fyrrihluta síðustu aldar á Egils-
stöðum og ólst upp hjá foreldrum mín-
um á Breiðavaði í Eiðaþinghá við öll
venjuleg
sveitastörf,
sótti nám í
barnaskólan-
um á Eiðum og
síðar í Alþýðu-
skólanum á
sama stað og
lauk gagn-
fræðaprófi en
síðan lá leið í
iðnskóla. Ég
hef unnið ýmis
störf í gegnum
tíðina og vinn nú í Þjónustumiðstöð
Fljótsdalshéraðs. Ég er kvæntur Öldu
Hrafnkelsdóttur og erum við búsett að
Brávöllum 9 Egilsstöðum.
Hvað varðar málefni harmonikunnar
þá er skemmst frá því að segja að síðan
undirrituðum var fengið það vandasama
hlutverk að vera formaður S.Í.H.U. hefur
stjórn sambandsins komið saman til
stjórnarfundar á Akureyri til að fara yfir
málin. Þar tel ég mestu skipta að náðst
hefur samkomulag um að Félag harmon-
ikuunnenda við Eyjafjörð taki að sér ung-
lingalandsmót næsta vor. Ég tel að það
sé mikilsvert að vel takist til með mótið
og hvet félög, formenn og hinn almenna
félaga að gera allt sem hægt er til að
mótið verði sem glæsilegast og þátttaka
verði mikil því að við verðum að ná til
yngra fólksins ef vel á að fara.
Stjórnin er sammála um að efling
harmonikutónlistar verði best fram-
kvæmd af aðildarfélögunum og hvetur fé-
lögin að vinna að þeim þáttum hvert á
sínu félagssvæði í þeirri fullvissu að
heimaaðilar hljóti að þekkja best hvað
henti í þeim málum og hvernig það skuli
framkvæmt.
Á fundinum var ákveðið að taka boði
Harmonkufélags Reykjavíkur og Harm-
onkiufélags Selfoss um að halda næsta
haustfund S.Í.H.U. Dagsetning og staður
ekki ákveðinn en því verður komið á fram-
færi þegar nær dregur.
Ljóst er að þetta blað er það síðasta
sem Jóhannes lónsson ritstýrir og ekki
hefur fundist, þegar þetta er ritað, aðili
sem vill taka við blaðinu. Ég vil nota
þetta tækifæri til að þakka Jóhannesi og
Hildi fyrir frábært starf við blaðið og vona
að fram á sjónarsviðið komi einhver ein-
staklingur eða félag sem hefur metnað til
að taka að sér Harmonikublaðið.
Óska ykkur öllum gleðilegra jóla og
farsældar á komandi ári.
Jónas þór.
Landsmót ungra
harmonikuleikara
Árið 2004 var sú nýbreytni tekin upp hjá Sambandi íslenskra
harmonikuunnenda að halda landsmót fyrir unga harmoniku-
leikara. Fyrsta mótið var haldið í Félagsheimilinu Árgarði í
Skagafirði í maí það ár. Félag harmonikuunenda Skagafirði sá
um framkvæmd mótsins, sem þótti takast mjög vel. Minni þátt-
taka var í mótini en vænst var, en þeir sem þátt tóku héldu
ánægðir til sins heima að móti loknu. Nú er ákveðið að annað
landsmót ungra harmonikuleikara verði haldið dagana 12.-14.
maí 2006 að Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit sem er 12 km. sunnan
Akureyrar. Að Hrafnagili er grunnskóli, íþróttahús og sundlaug.
Einnig er þar heimavist sem notuð er sem hótel á sumrin, tjald-
svæði og aðstaða fyrir húsbíla, fellihýsi og tjaldvagna. Mótið er
hugsað fyrir börn og unglinga undir 20 ára aldri þar sem allir
geta tekið þátt, þótt skammt séu á veg komnir í spilamennsku.
Á dagská verða tónleikar með einleikurum, grúppum og svo
sameiginleg lög þar sem allir taka þátt og svo verður margt
fleira sér til gamans gert. Mótið byrjar seint á föstudegi og
stendur til sunnudags. J.J. E.G.
Frá fyrsta landsmóti ungra harmonikuleikara í Skagafirði.
Fyrirtækið sem tdk myndrnar af landsmdtinu og framleiðir diska og spólur heitir:
HS Myndatökur
sími 861 7040/898 1737
Þar eru í forsvari Hjalti Stefánsson og Heiður Úsk Helgadóttir
Netfang hjaltis@ruv.is
Einnig eru til nokkur eintök hjé SÍH0 og eru í minni umsjón.
Jónas Þór Jóhannsson
Sími 471-1465 eða 893-1001 - hletfang jonasjh@simnet.is