Harmonikublaðið - 01.12.2005, Side 13

Harmonikublaðið - 01.12.2005, Side 13
HARMONIKUBLAÐIÐ Fróðleikur Af harmonikumálum í Húnavatnssýslum Samkórinn Björk. Félag harmonikuunnenda í Húnavatns- sýslum var stofnað I. maí 1981 og fyllir því aldarfjórðung á næsta ári. Fyrir ári síðan festi félagið kaup á húsnæði á Blönduósi. Það voru nokkrir félagsmenn sem lögðu þessu máli sérstakt lið svo af því gæti orðið. Húsnæðið er með 90 fm. sal með góðum hljómsveitarpalli, rúm- lega 30 fm. eldhúsaðstöðu, snyrtingu og góðri geymslu m.a. fyrir hljómfiutnings- tæki o.fl. Borð og stólar eru fyrir 90 manns og borðbúnaður fyrir 60 manns. Opnunarhátíð var 12. mars á þessu ári Kennaratríóið. F.v. Skarphéðinn Einarsson, Þórhallur Barðason og Benedikt Blöndal. þar sem félögum og gest- um var boðið að þyggja veitingar. Margt var um manninn þennan dag þar á meðal undirritaður sem var boðið ásamt eigin- konu sinni. Meðan á borð- haldi stóð heiðraði Sam- kórinn Björk félagið með nærveru sinni og söng nokkur lög undir stjórn Þórhalls Barðasonar við undirleik Þóris lóhanns- sonar á harmoniku, en hann var lengi formaður félagsins. Þrfr kennarar frá Tónlistarskólanum á staðn- um, þeir Skarphéðinn Einarsson, áður- nefndur Þórhallur og Benedikt Blöndal skemmtu með spili og söng í léttum dúr. Að lokum steig á svið hljómsveit félags- ins og skemmti viðstöddum með léttum harmonikuleik. Ég mælti mér mót við for- mann félagsins Öidu Friðgeirsdóttur nú nýverið og spurði hana um félagsstarfið. Starfsemin hefur verið með nokkuð hefðbundnu sniði sagði Alda. Hljóm- sveitin æfir reglulega einu sinni í viku yfir vetrarmánuðina en lítið yfir sumarið þó nýttu félagarnir sér nýja húsnæðið vel í sumar. Fé- lagið er í góðum tengslum við Tónlistarskólann á staðnum og heldur m.a. Bollukaffi þar sem ungir tónlistarmenn koma fram. Svo höfum við verið með Hagyrðinga- kvöld og dansleik síðasta vetrardag mörg undanfarin ár að ógleymdri Fjölskylduhátíð- inni í Húnaveri um Jónsmessuhelgina ásamt Skagfi rðing- um. Svo spiluðum við í Ketilási í sumar. Félagið hefur stutt tónlist- arnám í sýslunni og m.a. harmonikur gaf félagið píanó og píanóstól í Félags- heimilið auk þess að leggja peninga í hljóðkerfið þar. Það má því segja að fé það sem félagið hefur aflað á liðnum árum hafi runnið til tónlistarmála f hér- aðinu á einn eða annan hátt.. - Hvernig hefur gengið með nýja húsnæðið? Það hefur gengið mjög vel og hefur haft hvetjandi áhrif til æfinga, því nú geta menn æft í sínni eigin aðstöðu. Húsnæð- ið hefur líka orðið til þess að betra er að halda utan um starfsemina. Áður æfðum við aðallega í Félagsheimilinu á staðn- um. Til að afla fjár upp í kaupin höfum við leigt það út fyrir ýmiskonar samkvæmi. Félagsmenn eru 25 og einn heiðursfélagi. Stjórn félagsins skipa auk mín, Sigurður Pálsson gjaldkeri, Þórir Jóhannsson ritari og Óli J. Björnsson meðstjórnandi. Hljómsveit félagsins. F.v. Einar Þorláksson, jón Kristjánsson, Þórir jóhannsson, Rúnar Agnarsson, Björn Pétursson og Óli ). Björnsson. F.v.: Helga Guðmundsdóttir, Sigurbjörg Hafsteinsdóttir, Margrét Björnsdóttir, Ingibjörg Kristjánsdóttir, Arndís Þor- valdsdóttir, Alda Friðgeirsdóttir formaður félagsins, Sigríður Pálsdóttir og Hildur Gunnarsdóttir. I). gefið til ROMAN JBANOV I„teri««r Þessi diskur barst blaðinu í hendur með ósk um að koma honum á framfæri. Jbanov kom til landsins í ágúst 2004 ásamt Domi Emorine, héldu þau m.a. Masterclass-námskeið og tónleika. Áhugasamir geta komist inn á heimasíðu hans kennslu í Tónlist- arskólum, einnig www. accordions. com/duo Netfangið er roman.jbanov@libertysurf.fr

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.