Harmonikublaðið - 01.06.2006, Blaðsíða 9
heldurvar öllum sem áhuga höfðu, boðið
að nálgast eintak af honum hjá fjöl-
skyldunni. Þannig geta áhugamenn um
harmonikulög og aðrir þeir sem njóta
góðrar tónlista eignast eintak af „Lög-
unum hans Valda”.
Lögin hans Valda bera með sér að vera
samin af manni sem unni heimabyggð
sinni og í mörgum textanna má finna
samsvörun við það yndi sem hann hafði
af sjónum og öllu því sem tengdist
honum. Valdi átti árabát og stundaði
fiskveiðar, þegar tími gafst til, - sérstak-
lega á seinni árum ævinnar, þegar hann
hafði lagt múrskeiðina á hilluna. Hann
fiskaði vel og allir sem vildu fengu að
njóta aflans. Hann sagði oft að sfnar
bestu stundir væru tengdar sjónum og
því bregður fyrir sjávarseltu í mörgum
textum sem valdir voru við lögin hans.
Valdi var tónlistarmaður af Guðs náð
og notaði þær gáfur sínar til að létta lund
og töfra fram bros og bjartsýni hjá sér og
öðrum. Á legsteini hans, eins ogá
forsíðu hljómdisksins, má finna
grafskrift eftir EÍIert son hans sem
orti: „Tónar hans fengu töfrablæ.
Tendruðu gleði og söng í bæ.”
Tekið saman af
Guðmanni Þorvaldssyni