Harmonikublaðið - 01.06.2006, Blaðsíða 13
Úlfur Kvaran og afi hans
Gunnar Kvaran.
Gudmundsson.
Dagur Atlason ásamt afa
sínum Ásgeir Stefánssyni.
fyrirsérá þesSu sviði. í loktónleikanna
spilaði Tatu Kantomaa nokkur lög við
mikla hrifningu ungu spilarana. Sýndi
hann fram á fjölbreytileika hljóðfærisins
er hann lék eftir hljóðum í flugu þar sem
hann setti saman 3 lög sem fjalla öll um
hljóð flugunnar, og einnig eftir lest í
laginu Oriental Express.
Að tónleikunum loknum tók við
dansleikur þar sem unga fólkinu stóð til
boða að spila fyrir dansi. Ekki treystu allir
sér til þess en tvíburarnir frá Hornafirði
þeir Andri Snær og Bragi Fannar báru
uppi spilamennskuna ásamt kennara
sínum Guðlaugi Þresti sem lék með þeim
á trommur. Öllum viðstöddum varð fljótt
það Ijóst að þarna voru á ferðinni öflugir
upprennandi dansleikjaspilarar. Þegar
þarna var komið var þreyta farin að segja
til sín eftir langan dag og þátttaka í
dansleiknum dræm. Lauk honum um
10.30 fóru þá margir að hvíla sig en aðrir
sátu lengur og spjölluðu.
Sfðan kom sunnudagurinn lokadagur
mótsins. Að loknum morgunverði hófst
dagskráin með þvf að sameiginleg lög
voru leikin undir styrkri stjórn Roars. Tatu
Kantomaa lék síðan nokkur lög. Mótinu
lauk svo með því að allir þátttakendur
fengu viðurkenningu sem Jónas Þór
Jóhannsson formaður Landssambands
harmonikuunnenda afhenti. Að því loknu
sleit hann mótinu. Áður en kveðjustund
rann upp var allur hópurinn myndaður í
bakogfyrirúti ísólogblíðu. Að því loknu
héldu allir heim og vonandi ánægðir með
skemmtilega helgi.
Samhliða mótinu var haldið kennara-
námskeið þar sem kennarar báru saman
bækur sínar undir leiðsögn Tatu Kant-
omaa. Námskeið sem þetta er til þess
ætlað að bæta kennsluhætti og auka
víðsýni þeirra sem kenna á þetta fjölhæfa
hljóðfæri.
Það er skoðun okkar sem stóðu að
þessu móti að mjög mikilvægt sé að
halda viðlíka mót ár hvert til að auka
áhuga og efla kynni bæði foreldra og
ungmenna. Að lokum vill mótstjórn færa
öllum þeim þakkir sem aðstoðuðu við
mótið og einnig þeim sem veittu styrki til
mótsinsenþeireru;Menningarmálanefnd
Akureyrar, Sparisjóður Norðlendinga,
Félag verslunar- og skrifstofufólks Akur-
eyri og Eining Iðja.
Einar Guðmundsson
Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir
Myndir: Einar Guðmundsson
Flemming Viðar
Valmundsson
Dagbjört Inga
Grétarsdóttir
Sigurður Már
Melsteð
Ari Magnússon
Dagrún Kristinsdóttir
Sólrún Rún Samúelsdóttir
13