Harmonikublaðið - 01.12.2010, Síða 3
Frá ábyrgdarmanni
Harmonikublaðið
ISSN1670-200X
Ábyrgðarmaður:
Gunnar Kvaran,
Álfaland 7,108 Reykjavík
Sími 568 3670, netfang: alf7@mi.is
Prentvinnsla:
Héraðsprent, Egilsstöðum, www.heradsprent.is
Netfang: print@heradsprent.is
Forsíða: ingunn Þráinsdóttir
Meðal efnis:
- Krefjast þess að fá að spila í Óperunni
- Rekstrar- og efnahagsreikningar SÍHU
- Dansað á svelli - Nótur eftir Aðalstein ísfjörð
- Hver er fyrsti kvenformaður FHUR?
- Viðtal við Aðalstein ísfjörð
- Hamingjuóskir til Guðrúnar Guðjónsdóttur
- Viðtalvið Helgu Kristbjörgu Guðmundsdóttur
- Úrdráttur úr skýrslu stjórnar SÍHU 2009-2010
- Landsmót SÍHU á Hellu 2011
- Nýútkomnirgeisladiskar
- David Wahlén í óperu eftir Gísla Jóhann Grétarss.
- 30 ára afmæli FHUE
- Aðalfundur SÍHU að Hótel Örk 2010
- Harmonikumessa ÍÁrbæjarkirkju
Auglýsingaverð:
Baksíða 1/1 sída kr. 23.000
1/2 sída kr. 15.000
Innsíður 1/1 síða kr. 18.400
1/2 sída kr. 11.500
1/4 sída kr. 6.700
1/8 sída kr. 4.600
Smáauglýsingar kr. 2.500
Skilafrestur efnis fyrir næsta blað er
Nú erafstaðinn aðalfundursambandsins
og verð ég að viðurkenna að þetta er
einn sá besti aðalfundur sem ég hef
setið. Fundurinn var málefnalegur og
lögðust allir á eitt að gera hann sem
árangursríkastan.
Félag harmonikuunnenda f Reykjavfk á
heiður skilinn fyrir framkvæmdina á
fundinum og var allt skipulag frá þeirra
hendi til fyrirmyndar og einnig hvernig
tiltókst með að hafa ofan affyrir mökum
fundarmanna á meðan á fundinum stóð.
Ekki má gleyma þætti formanns félags-
ins, sem stóð sig með miklum sóma og
sá til þess að allt færi fram á sem bestan
hátt. Fyrir þetta ber að þakka og láta í
Ijós ánægju með hvernig til tókst.
Þetta er 3. tölublað Flarmonikublaðsins
árið 2010 og held ég að okkur sem
stöndum að blaðinu hafi tekist all vel til
með að afla efnis í blaðið á þessu ári og
að gera það aðlaðandi fyrir áskrifendur.
Ég hef fengið mjög góð viðbrögð frá
áskrifendum varðandi þau blöð sem við
höfum látið frá okkur fara og það hefur
gefið okkur byr undir báða vængi til að
gera enn betur.
Heimasíða sambandsins hefurverið mér
hugleikin síðustu vikurogtelégað það
sé algjör forsenda þess að hægt verði
að halda úti heimasíðunni að aðildar-
félögin nýti sér síðuna og láti setja inn
ýmiss konar fréttnæmt efni og myndir.
Ég hef fengið mánaðarlega sent frá vef-
stjóra síðunnar yfirlit yfir heimsóknir á
heimasíðu okkar og kemur þar fram að
mánaðarlega eru aðeins um fimmtíu
heimsóknir inn á síðuna.
Til að hægt verði að halda úti heimasíðu
sambandsins verða félögin að notfæra
sér hana betur þannigað það sé áhuga-
vert að skoða síðuna. Einnig þarf stjórn
sambandsins að vera duglegri við að
koma á framfæri ýmsum upplýsingum
inn á síðuna, má þar nefna lög sam-
bandsins ofl.
Það skal upplýst hér að ritstjórn og
annað er kemur að útgáfu Harmoniku-
blaðsins verður í höndum sömu aðila
næsta árið og er það metnaður okkar er
að blaðinu stöndum að það verði enn
betra og að félögin leggi sig fram um að
fjölga áskrifendum að blaðinu.
Gunnar Kvaran
Krefjast þess að fá að spila í Óperunni
„Við ætlum að fá að spila harmonikutónlist
íhúsinu hér fyrir aftan okkuren óperustjór-
inn Björn Simensen telur það ekki nógu
fínt að minnsta kosti enn sem komið er“
segir Atti Eikaas forsvarsmaður harmoniku-
félagsins í Lindesnes
Þann 15.03.2008 mótmæltu Atti ogfélagar
fyrir utan hið nýja og glæsilega óperuhús
Oslóborgar f Björvika. Meðlimir harmoniku-
félagsins höfðu lagt á sig 6 stunda rútuferð
til þess eins að koma sinni skoðun á fram-
færi við stjórnendur óperuhússins og stóðu
spilandi í sólskininu fyrir utan hið glæsi-
lega marmarabyggða óperuhús sem var
byggt árið 2007.
Þrátt fyrir léttleika í mótmælunum þá lá
ákveðin alvara að baki. Harmonikufélagið
sem hefur62 meðlimi telurað menningar-
elítan í Osló hafi í raun sniðgengið sig.
Félagið var meðal þeirra fyrstu til að bóka
sig fóperuhúsið. Menningarmálaráðherra
Noregs, Anne Enger, þakkaði þeim pent
fyrir áhugann en sagði að þau væru að
bóka sig of snemma. Hins vegar þegar ýtt
var á málið sjö til átta mánuðum seinna þá
kom svarið að nú væri harmonikufélagið
orðið of seint að bóka sig í húsið.
Spurning: Finnstykkur þið ekki vera tekin
alvarlega?
Svar: Já það er engin spurning. Núna
verður menningarelítan í Osló að vakna til
Iffsins ogtaka alvarlega þá menningu sem
harmonikutónlist í Noregi hefur að geyma.
Það er talað um að óperan sé ópera fólks-
ins en svo á að útiloka stóran hluta af
menningu almennings sem er jú nátengd
harmonikunni.
Það liggur hins vegar mikið undir hjá harm-
onikufélagi Lindesnes. Óperusöngvarinn
og tónskáldið Thomas Stanghelle er þegar
byrjaður að semja óperu sérstaklega með
harmonikuspil í huga. „Ég trúi að það sé
hægt að þurrka út bilið sem erá milli harm-
onikutónlistar og klassfskrar tónlistar og
jafnvel í eitt skipti fyrir öll með flutningi á
„harmoniku-óperu“.“
Rut Svinndal og Iver Karlstad gengu framhjá
mótmælendunum og stöðvuðu til að hlusta
á brot af nýskrifaðri harmonikuaríu sem
meðlimir Lindesnes ogThomas Stanghelle
fluttu fyrir utan óperuhúsið. „Mér þætti
frábært ef harmonikufélagið fengi að spila
í óperunni, hví ekki, mér Ifkar harmoniku-
tónlist og það á ekki bara að flytja óperur
í óperuhúsinu, það er gott að hafa ákveðna
fjölbreytni“ sagði Svinndal.
En hræðist Atti Eikaas ekkert létega aðsókn
á harmonikuóperu? Nei ekki aldeilis. „Við
getum auðveldlega fyllt 20-30 rútur með
áhugasömum áhorfendum af landsbyggð-
inni. Við vildum spila hér í óperunni í einn
mánuð því meiri tfma höfum við einfaldlega
ekki enda búin að bóka okkur í samkomu-
húsum ogtónleikahöllum bæði íNoregi og
Ameríku svo ekki sé talað um
elliheimilið i Vigeland."
Þessi grein birtist á norskum
netmidli 2008. Grein þýdd af
Fridleifi Kr. Friðleifssyni.