Harmonikublaðið - 01.12.2010, Side 7
Gamansögur af séra Baldri í Vatnsfirði
Fyrir nokkrum árum hringdi séra Baldur í
lögregluna á ísafirði og kvaðst hafa fundið
dautt svín í vegkantinum skammt frá
Vatnsfirði og væri líkast sem ekið hefði
verið á það.
Halldór Jónsson (Dóri Jóns í Rit hf.) varð
fyrir svörum:
Hvern andskotann ertu að hringja f okkur
út af þessu? Við getum ekki verið að skipta
okkur af dauðu svíni inni í Djúpi.
Prestur svaraði: Já, já, góði. Þetta er nú
allt í besta lagi. En það hefur nú verið
venjan hér í prestakallinu að láta þá nán-
ustu vita þegar dauðsfall verður.
Séra Baldur átti um skeið Austin Gypsy
jeppa er var orðinn nokkuð dyntóttur og
þurfti meðal annars að troða bremsurnar
ótt ogtítt efstöðva átti bílinn ísnarheitum.
Leið svo að árlegri skoðun jeppans og
kom bílaeftirlitsmaður frá ísafirði heim í
Vatnsfjörð að fullnægja þeirri kvöð.
Eftir að hafa kíkt undir bílinn og þjösnast
eilitið á dempurunum sest skoðunarmað-
urinn undir stýri og prestur ífarþegasætið.
Er svo ekið af stað og allt gefið í botn því
nú átti að kanna hemlunarvegalengd. í
fyrstu sat séra Baldur rólegur í sæti sínu,
en þegar bíllinn stefndi á hlöðuvegg og
skoðunarmaðurinn eldroðnaði við að
stfga bremsupedalann f botn án þess að
jeppinn hægði hið minnsta ferðina, æpti
Vatnsfjarðarklerkur í dauðans ofboði:
Pumpaðu, maður! Pumpaðu!
Einhverju sinni var séra Baldur að kvarta
undan vegalengdum ogerfiðum landsam-
göngum í prestakalli sínu. Er hann hafði
farið ófögrum orðum um hið vestfirska
vegakerfi og bölsótast út í hinar dreifðu
byggðir f sókninni, greip viðmælandi hans
fram í og spurði kankvíslega: Já en af
hverju styttir þú ekki ieið þína um sóknina
og gengur á vatninu eins og Kristur
forðum?
Séra Baldurvar skjóturtil svars ogsagði:
0, þeir höfðu nú léttara skótau íþá daga,
góði.
Kærar kveðjur. Frosti G.
Harmonikuviðgerðir
Tek að mér viðgerðir á harmonikum
Gunnar Kvaran sími: 824-7610
{( ( ) n
Sænskt harmonikufélag fær
9,3 milljónir í styrk
Ritstjórn var send mjög athyglisverð grein
úr Bændabtaðinu, þar sem greint er frá því
að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins
leggi fram í næsta mánuði tillögu um
endurskoðun á hinni sameiginlegu land-
búnaðarstefnu sambandsins, CAP, eftir
2013. Jafnframt segir að ekki verði þrauta-
laust að endurnýja CAP vegna fjármála-
kreppunnar sem herjað hefur víðar en á
íslandi. Landbúnaður tekur til sína tæpleg
40% af öllu fjármagni sambandsins.
Til þess að slá á vaxandi óánægju innan
sambandsins á að draga úr útgjöldum og
leggja nokkur lönd til verulegan niður-
skurð. Á sama tíma og þetta er í smíðum
hjá sambandinu kemurfram íþessari grein
að sænskt harmonikufélag hafi fengið
styrkfrá sambandinu upp á 59.585 evrur
(9.3 milljónir króna) og einnig að danskur
billiardklúbbur hafi fengið styrk upp á
31.515 evrur (um 5 milljónir króna).
Þegar maður sér svona frétt, kemur ýmis-
legt upp í hugann og þá fyrst og fremst
hvað áhugamannafélög um harmonikuleik
eins og við erum að reka um land allt eru
vanmáttug þegar tölur eins og að ofan
greinir eru veittar til félaga eins
og okkar. Vonandi kemur
betri tfð með blóm í haga.