Harmonikublaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 9

Harmonikublaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 9
Ungir og upprennandi hljódfæraleikarar 12-13 óra, Þórhallur og Aðal- steinn. Var sú sveit gífurlega vinsæl allt fram til ársins 1970, og rifjar Alli upp ballferðir í nánast hvern fjörð og hvert félagsheimili á þessum árum enda var hljómsveitin tvö sumurá stöðugu ferðalagi með Framsókn- arflokknum á héraðsmótum um allt land ásamt skemmtikröftunum Ríó tríói, Jörundi eftirhermu ogýmsum fleirum. - Eitt allraeftirminnilegasta ball sem við spiluðum á var þorrablót í Skúlagarði í Kelduhverfi, líklega einhverntíma í kringum 1966 en þá brastá með glórulausa stórhríð á meðan á blótinu stóð og það var gjör- samlega ómögulegtað nokkurfæri frá hús- inu. Við vorum orðnir býsna þreyttir og ætluðum rétt að slaka á og leggja okkur aðeins um sjöleytið um morguninn, en vorum bara sóttir og sagt að halda áfram að spila. Og auðvitað var ekki neitt annað hægt að gera og við spiluðum fram undir hádegi á sunnudag, en þá var líka farið að rofa svolítið til, komin jarðýta til að ryðja svo að hægt var að keyra fólkið heim. En þeir voru Ifka svona álíka endingargóðir á Jökuldalnum fyrir austan, því að mér finnst í minningunni að böllin þar hafi alltaf staðið alveg þangað til karlarnir þurftu að fara heim í fjósið, segir Alli og hlær að þessum gömlu minningum. Undir 1970 telur Alli að vegur harmonik- unnar fari heldur þverrandi, nema á ein- stökum skemmtunum, svo sem þorra- blótum og árshátíðum þar sem gömlu dansarnir voru í hávegum hafðir, og þessvegna var hún alltaf með þó almennar vin- sæidir hennar minnkuðu. Eftir Haukaárin kom hljóm- sveitin Ólafía 1971, Bergmál 1973, Villi, Alli og Halli 1974, llli (lllugi Þórarinsson) og Alli 1977 ogStuðlari978. Átökvið bæjarstjórann Alli rifjar upp skemmtilegt atvik frá Haukaárunum, en þannig var að bandið lét taka afsérmyndtilaðsetjaá plakat vegna héraðsmótanna og var Grfmseyjarbjarndýrið fræga í forgrunni myndar. Húsavíkurbær hafði hinsvegarkeypt þetta dýrtil náttúrugripa- safns síns þegar það hafði verið stoppað upp, og bæjarstjórinn sem var krati kunni illa við að eigur bæjarfélagsins væru not- aðar f auglýsingum fyrir Framsóknarflokk- inn og krafðist þess að öll plakötin yrðu gerð upptæk og filma Ijósmyndarans eyðilögð, enda hefði ekki verið gefið leyfi til myndatöku inni á safninu. Haukarnir svöruðu þvítilað myndin hefði ekki verið tekin á safninu heldur inni í æfingarsvæði bandsins, enda stæði bjarndýrið þar, hafði verið dregið þangað með ærinni fyr- irhöfn. Voru myndirnar notaðar hvað sem hver sagði og Ijósmyndarinn gaf dauða og djöful í að farga filmunum sínum. Segja má að eftir 1980 hafi ferli Alla ísfjörð í hljómsveitarbrans- anum raunar lokið og eftir það er frekar um að ræða tilfallandi hljómsveitarstofnanir f kring um einhverjar sérstakar uppákomur eða tilefni þar sem aðeins var komið fram einu sinni eða tvisvar. Öll spilamennska ogtónlistariðkun var nú í lágmarki, alvara lífsins tekin við, en Alli hafði á rúntinum á Húsavík kynnst bráðfallegri ungri stúlku Unni Sigfúsdóttur frá Sandhólum á Tjörnesi og það var í þessu tilviki eins og stundum áður að hér varð ekki aftur snúið og árið 1967 giftu þau sig þegar hann stóð á tvítugu, en hún var nítján. á danshúsum, sem hefur heldur ekki þótt sérlega fjölskylduvæn atvinna og nú brugðu þau Unnur og Alli á það ráð að byggja sér íbúðarhús og hann fór og lærði múrverk. Þessa iðn stundaði hann um tíu ára skeið frá 1973 er hann lauk námi og til '83, en brá þá á það ráð, sá annar er slíkt gerði hérlendis, að kaupa tæki til steypusögunar og kjarnaborunar og snéri sér nú alfarið að þeirri iðju. Er skemmst frá að segja að mjög mikið var að gera og eins og í tóntistinni áður ferðaðist nú Alli landshorna á milli, sagaði og boraði og hafði undir allt frá syðstu Vestfjörðum austur um Norðurland, austur og suður á Djúpavog. Á síðustu árunum í múrverkinu hafði heldur minnkað að gera og um haustið 1981 kom ÚlrikÓlafsson skólastjóri Tónlistarskólans á Húsavík og falaðist eftir því að Alli tæki að sér tónlistarkennslu við skólann. Þetta aftókAlli með öllu, sagði sem var að varla gæti hann kennt nemendum að leika eftir nótum á hljóðfæri, maður sem ekki væri almennilega læs á þær sjálfur. En Úlrik lét sig ekki, enda kennarar ekki á hverju strái og sagði Alla að hann skyldi hjálpa honum ígegnum þetta, skipulagið yrði á þann veg, að kennarinn yrði alltaf fjórum blaðsíðum á undan nemandanum í bókinni. - Og svei mér þá, segirAlli, þetta gekkupp og þarna lærði ég alveg heilmikið f nótnalestri og áreiðanlega í sumum tilvikum mun meira en nemendurnir. Kennstan ítónlistarskólanum stóð í tvö ár eða til vors 1983 og þar kenndi Alli á blokk- flautu, Idarinett, saxófón og harmoniku. En réttindi hafði hann engin og þvf var ekki um áframhaldandi starf að ræða þegar bauðst réttindamaður til kennslu og þá snéri okkar maður sér að steypusögun og borun og var í vinnu uppfyrir haus. Haukarum 1966 Grétar, Steingrímur, Aðalsteinn, jóhann ogÁrni Gunnar. Húsavíkur-Haukar um 1970. Aðalsteinn, jóhann, Karl og Bragi. Múrverk, tónlistarkennsla og kjarnaborun En ungur maður með nýstofn- aða fjölskyldu sem sannanlega stóð til að mundi stækka, þurfti að hafa eitthvað trygg- ara til framfærslu en spilverk Lausamennska og nýtt hljóðfæri Allt frá þessum tíma hefur Alli ísfjörð verið lausamaður í bransanum, gripið í hin ýmsu hljóðfæri hérogþarefþannighefur staðið á, meira að segja tekið í trommur ef slíkan tónlistarmann vantaði í það eða það sinnið.

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.