Harmonikublaðið - 01.12.2010, Qupperneq 11

Harmonikublaðið - 01.12.2010, Qupperneq 11
Hamingjuóskir til Guðrúnar Guðjónsdóttur Mikið gladdi það mig að lesa grein þína í Harmóníkublaðinu ogsjá að þú hefurtekið upp hanskann fyrir okkur harmóníkukenn- ara og harmóníkunemendur innan S.Í.H.U., þar sem ég skitdi hann eftir í hreinni upp- gjöf fyrir nokkrum árum, hrakinn ogsmáður af þér og fleirum í ræðu og riti. Nú hefur þetta breyst til hins betra fyrir mig, mín vinkona Guðrún Guðjónsdóttir er orðinn samherji minn, farin að útbreiða fagnaðar- erindið um harmóníkuna f leikskólum þessa lands. Frábært framtak. Fastur í hlutverki leiðbeinandans og brenn- andi áhuga fyrir starfi mínu sem harmón- íkukennari, og í hjartans einlægni, langar mig að benda þér á grundvallaratriði í sam- skiptum við kennara og nemendur þeirra, sem ekki verður framhjá gengið, og að ég tali nú ekki um foreldra nemendanna sem öllu stjórna. Alls ekki rigsast áfram með hornin úti, heldur vingast við þá sem þú ætlar að fara að vinna með, láta sjá að þú hafirtakmarkalausa þolinmæði, hlustir vel á allar óskir og hugmyndir þeirra. Þá farn- ast þér vel og getur komið mörgu góðu til leiðar. Ég skil manna best vonbrigði þín vegna ungmennalandsmótsins sem mistókst í fyrra. Kenndu þér ekki um það, en hugsaðu um það út frá þvf sem ég var að segja hér á undan. Ekki efast um að harmóníkukenn- arar hafi haft áhuga á landsmótinu. Það voru gildar ástæður fyrir því að það gekk ekki, sem ég skal nú rekja fyrir þér. 1. Strangar sóttvarnarreglur vegna geisandi svínaflensu (um helmingur minna nem- enda veikir). skera niður starfshlutfall tónlistarskóla- kennara um 10% og laun þeirra eins og mögulegtvar. Þarsem þátttaka kennara, í mótum sem þessu, hérá Reykjavíkursvæð- inu er sjálfboðavinna, var það ekki vel séð íþessari stöðu aðstanda íhenni. Þráttfyrir það vann ég heilshugar að undirbúningi nemenda minna fyrir þetta mót og ætlaði að mæta. En foreldrarnir sem að sjálfsögðu öllu ráða á endanum ákváðu að fara ekki, með fyrrgreindar ástæður í huga, þrátt fyrir frábært tilboð Félags harmóníkuunnenda í Reykjavík um að greiða þátttökugjöldin. Ég geri ráð fyrir að svipaðar aðstæður hafi verið hjá fleiri kennurum. En hugsaðu. Fall erfararheill, ogsegðu við sjálfa þig, ég trúi á málstaðinn á hverju sem gengur og læri af mistökunum. Það væri ekki gott að lifa Iffinu án þeirra. 2. Mjög erfiður fjárhagur hjá mörgum for- eldrum. 3. Varðandi tónlistarkennara f Reykjavík. Reykjavíkuríhaldið sá það að tónlistar- kennarar höfðu haft „veltigróða" á árunum fyrir hrun, og töldu hann ástæðu þess númer eitt. Það sá sér leik á borði að ná honum aftur. Það var því fyrsta aðgerð að Égvilað lokum ftreka hamingjuóskirmínar til þín, með von um að við getum tekið saman höndum við að gera góða hluti harmóníkunni, og ungum verðandi harm- óníkuleikurum til vegsauka f framtíðinni. Með vinsemd og virðingu, Guðmundur Samúelsson, formaður Harmóníkuakademfunnar á íslandi. Viðurkenning til handa Þóri Magnússyni stór-trommara Mér undirrituðum, í forföllum formanns S.Í.H.U., hlotnaðist sá heiður að veita vini mínum Þóri Magnússyni viðurkenningu fyrir hans framlag f þágu harmonikunnar til fjölda ára á árshátíð F.H.U.R. sem haldin var 20. nóvember 2010. Þórir Magnússon er einn af stofnendum Félag harmonikuunnenda í Reykjavík og hefur hann starfað frá upphafi sem einn af ötulustu hljóðfæraleikurum félagsins. Þórir hefur í gegn um árin verið sá félagi sem hægt hefurverið að leita tileftrommu- leikara hefur vantað á skemmtanir félags- ins. Þórir hóf ungur að leika á trommur og hefur hann í gegn um árin teikið með fjölda hljómsveita sem hlotið hafa vinsældir meðat tónlistarunnenda. Þórir er einn af þeim sem ég hef kynnst í gegn um árin sem hefur þann eiginleika að geta aldrei sagt nei, ef hann er beðinn um að setjast við trommurnar og spila, jafnvel þó að hann hafi aldrei séð þá hljóðfæra- leikara sem á sviðinu eru með honum. Samband íslenskra harmonikuunnenda þakkar Þóri fyrir hans framlag og dugnað við að breiða út þá tónlist sem okkur er svo hjartfólgin. Það er von okkar að við fáum að njóta krafta Þóris sem lengst. Gunnar Kvaran * 11

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.