Harmonikublaðið - 01.12.2010, Page 12
Breidir út bodskap harmonikunnar
Harmonikumeistari S.Í.H.U. 2010 með háskólagráðu á hljóðfærið
Myndin var tekin fyrir útskriftarbók LHÍ.
ísfirska tónlistarkonan Helga Kristbjörg
Guðmundsdóttir hefur um árabil glatt
vestfirska áheyrendur með harmonikuleik
sínum. Fyrstvakti hún verðskuldaðaathygli
utan heimabyggðar sinnar á Landsmóti
S.Í.H.U. á Siglufirði árið 1999 þegar hún
lék lagið Vorgleði eftir Braga Hlíðberg.
Síðustu þrjá vetur stundaði Helga nám við
Listaháskóla íslands og lauk þaðan B. Mus.
prófi síðastavor. Hún hélt útskriftartónleika
í Þjóðmenningarhúsinu í Reykjavík þann
8. maí síðastliðinn, sem vildi svo skemmti-
lega til að var Dagur harmonikunnar 2010.
Þar lék hún verkeftir Kuusisto, Bach, Albé-
niz, Piazzolla, Angelis, Semjonov og Gridin.
Þá frumflutti hún þarverkeftirskólabróður
sinn, Finn Karlsson, en hann samdi lagið
sérstaklega fyrir Helgu. Hún er fyrsti nem-
andinn sem lýkur háskólaprófi íharmoniku-
leikfrá Listaháskóla íslands.
Helga Kristbjörg stundaði nám við Tón-
listarskóla ísafjarðar nær óslitið 1995-2007
þar sem aðalnámsgrein hennar var harm-
onikunám. Fyrstu árin naut hún leiðsagnar
Messíönu Marzellíusdóttur en árið 1999
tókVadim Fjodorov við ogvorið 2003 lauk
hún 6. stigi á hnappaharmoniku. Veturinn
2006-2007 var Hrólfur Vagnsson kennari
hennarvið skólann. Hún stundaði einnig
píanónám um nokkurra ára skeið og lauk
miðprófi. Haustið 2004 stundaði Helga
tónlistarnám f Frakldandi við tónlistarskól-
ann Centre National & International de
Musique & d’Accordéon (la CNIMA) þar sem
aðalkennarar hennar voru J. Mornet, Roman
Jbanov og Domi Emorine. Helga Kristbjörg
hefur komið fram á fjöldmörgum tónleikum
og við ótal önnur tækifæri og hefur einnig
starfað sem harmonikukennari við Tón-
listarskóla ísafjarðar og Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar. Hún hefur fengist við ýmis
verkefni, m.a. lék hún þá harmonikutónlist
er hljómaði íkvikmyndinni Desember eftir
Hilmar Oddsson. Haustið 2007 hóf Helga
Kristbjörg nám við Listaháskóla íslands
undir handleiðslu Tatu Kantomaa og síðar
Vadims Fjodorov. Helga ber einnig titilinn
Harmonikumeistari S.Í.H.U. 2010.
Ég heimsótti Helgu á heimili foreldra
hennar við Aðalstræti 17 á ísafirði og fékk
að leggja fyrir hana nokkrar spurningar.
Hvernig kom það til að þú byrjaðir að læra
á harmoniku?
Þegar ég var 7 ára átti ég blokkflautu og
var farin að leika nokkur lög á hana upp á
eigin spýtur þegar ég vildi ólm fara í tón-
listarskóla. Mamma fór því með mig á
hljóðfærasýningu í Tónlistarskóla ísa-
fjarðar. Blokkflautan féll þar undir eins í
skuggann á flottasta hljóðfærinu á
staðnum, harmonikunni. Ég þekkti lítið til
hennar en valdi hana samt án umhugsunar.
Þar sem þetta hljóðfæri var svo heillandi
jókst áhuginn við nánari kynni. Tónlistar-
Iffið á ísafirði er blómlegt og ég fékk alltaf
mikinn stuðning.
Þú ert fyrsti nemandinn í harmonikuleik
sem útskrifast úr Listaháskóla íslands.
Hvernig er tilfinningin?
Það kom aldrei annað til greina en að halda
áfram námi hér á íslandi. Fyrir mig var það í
sjálfu sér eins og að flytjast erlendis því ég
flutti suður og rataði mjög lítið í borginni. í
byrjun var ég feimin að æfa mig í skólanum
og hafði það á tilfinningunni að allir væru að
hlusta á mig og dæma mig, enda var þetta
óvanalegt og nýtt hljóðfæri í þessu umhverfi
ogskólastofuralltíkringumæfingaherbergið.
Þegar líða tók á önnina lærði ég þó fljótt að
skólafélögum mínum fannst harmonikan
virkilega töff og skemmtileg og tónskáldin í
skólanum vildu mörg kynnast henni nánar.
Eftir það æfði ég mig alltaf í skólanum.