Harmonikublaðið - 01.12.2010, Síða 13

Harmonikublaðið - 01.12.2010, Síða 13
Útskriftartónleikar mínir í Þjóðmenning- arhúsinu voru lokapróf mitt úr skólanum, það sem ég hafði í raun undirbúið og stefnt að í þessi þrjú ár. Á bak við svona tónleika liggur mikil vinna. En auk þess að æfa sig mikið skiptir máli á tónleikum að hafa gott sjálfstraust og útgeislun. Það getur smitað út frá sér í salinn og eins hefur góður salur mjögjákvæð áhrif á flytjandann. Það gerir oftgæfumuninn. Efmanni sjálfum líðurvel þá líður áheyrendum vel. Ég var virkilega sátt með tónleikana og tilfinningin var stórkostleg þegar þessu markmiði var náð. Ég vil nýta tækifærið og þakka öllum þeim sem sáu sér fært að mæta á þessi tímamót mín fyrir komuna. í umsögn frá prófdómara tónleikanna, Matti Kallio, segir m.a.: „ Tónleikar Helgu sýndu harmonikuleikara sem hefurmikla hæfileika -jafnttæknilega sem og listrænt séð. Hún tekur tónlistina af alvöru og stefnir af öllu að dæma á atvinnumennsku í harmonikuleik. Tón- teikaprógram hennargafmerki um mikinn metnað, með tilliti til þeirra tæknilegu krafna sem varða hæfni til Bakkalársprófs. Það sýndi fjölbreytni og marga mismunandi tónlistarstíla, alltfrá prelúdíu ogfúgu eftir Bach að nútímalegri svítu eftirfranska tón- skáldið Frank Angelis. Svítan sýndi Helgu upp á sitt besta, hún hafði fullt vald á hljóð- færinu og sjálfu verkinu sem varsnilldarlegt og hressilega blæbrigða- og tilfinningaríkt. Lokaverkið, Rassypucha eftir Gridin, er „ virtúósa “stykkisem hún fluttimeð afburða nákvæmni. Það vartæknilega fullkomið og mjög músíkalskt. Sú kunnátta ogfærnisem Helga býr þegaryfir er mjög, mjög áhrifa- mikil. “ Fyrsti spilatíminn haustið 1995. Jóla - nemendatónleikar íLHÍ2008. Verðlaun úrStyrktarsjóði Halldórs Hansen. Hvernig kom það til? Síðastliðinn september hlaut ég styrk úr Styrktarsjóði Halldórs Hansens að upphæð 400.000 kr. ásamt Andra Birni Róbertssyni, bassabarítón. Styrkt- arsjóðurHalldórs Han- sen starfar undir væng Listaháskólans og veitir árlega styrki til tón- listarnema sem hafa að mati sjóðsstjórnarnáð framúrskarandi árangri ásínusviði. Þettaerþví ekki sjóður sem hægt er að sækja um að fá styrk úr. Sjóðurinn var formlega stofnaður 2004 og þetta er í sjö- undasinnsemveitteru verðlaun úr honum. Gert er ráð fyrir að styrkþegar hafi lokið háskólanámi á grunn- stigi. Af þessu tilefni var boðið til hátíðar- dagskrár f Sölvhóli, sal Tónleikar í Hömrum, sal Tónlistarsköla ísafjarðar árið 2007. Listaháskólans, þar sem tilkynnt var um verðlaunahafa sjóðsins þetta árið og að sjálfsögðu komum við Andri fram á sam- komunni. Þetta er gífurlegur heiður og mikil viður- kenning fyrir mig. Með þessu sannast að þetta fólk hefur trú á manni og það er mikil hvatning. Hvað hefur þú verið að gera í sumar? ísumar eins og undanfarin sumur starfaði ég hjá ferðaskrifstofunni Vesturferðum við að kynna og leika íslenska tónlist fyrir farþega skemmtiferðaskipa sem heimsóttu ísafjörð. Vesturferðir bjóða upp á nokkrar mismunandi kynningar- og rútuferðir um svæðið ogégvar hluti afvinsælustu ferð- inni „Life and Culture of ísafjörður" eða Líf og menning. Ég spilaði yfirleitt í Hólskirkju í Bolungarvík sem er falleg kirkja, yfir hundrað ára gömul. Þetta vakti lukku og ferðamennirnir voru áhugasamir um mig ogharmonikunaogégvarhissa hversu oft það leyndist harmonikuleikari í hópnum. Ekki skemmir svo fyrir að í þessari sömu menningarferð fá þessir útlensku ferða- menn frá öllum heimshornum að sjá hið mikilfenglega harmonikusafn Ásgeirs Sig- urðssonar í Neðstakaupstað, Byggðasafni Vestfjarða. Hver eru svo framtíðaráform þín? Þessa önnina hef égverið að kannaýmsar leiðirtil áframhaldandi náms. Égfórt.d. til Helsinki og ræddi við einn af harmoniku- kennurum Sibeliusarakademíunnar, Matti Rantanen, ogfórátónleika með nemendum hans. Annan aðalkennara skólans, Mika Váyrynen, hitti ég í strætó bara fyrir til- viljun. Égvelti þeim möguleika einnig fyrir mér að fara til St. Pétursborgar og var svo gott sem búin að fá þar inni, en sú hug- mynd var sett í salt vegna ýmissa örðugleika sem upp komu. Það er að mörgu leyti rosalega erfitt að standa einn í svona löguðu og að taka ákvörðun. Þar sem ekki eru margir sem hafa rutt brautina á undan mér hér á íslandi veit maður minna um hvað sé best að gera og hvert sé best að fara. Það er hættulegt að fara ekki beint í áframhaldandi nám því annars er hætta á að maður missi niður þol og að áhuginn dvíni. Ég vona að ég eigi eftir að finna út úr þessu og halda áfram að breiða út boðskap harmonikunnar. Ég kveð þessa ungu listakonu og veit að hún mun halda áfram að auðga fslenskt tónlistarlíf. Ásgeir S. Sigurðsson

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.