Harmonikublaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 14
Úrdráttur úr skýrslu stjórnar S.Í.H.U.
fyrir starfsárið 2009-2010
Góðir aðalfundarfulltrúar
Frá sfðasta haustfundi SÍHU sem við
héldum íboði Harmonikufélags Héraðsbúa
í Hótel Svartaskógi er þetta helst. Stjórn
sambandsins hefur haldið reglulega fundi
á starfsárinu, flesta í sfma utan þess að við
hittumst í Reykjavík og á Breiðumýri. Utan
þessara fundar hafa stjórnarmenn verið í
símasambandi eftir þvf sem þótt hefur
þurfa. Bæði aðal- og varamenn hafa setið
stjórnarfundi.
Síðasti aðalfundur okkar var mjög gagn-
legur, umræður um málin góðar. Þar
ræddum við um Unglingalandsmót sem
harmonikuakademían hafði haldið haustið
áður og almenn ánægja var með. Á síðasta
aðalfundi leit allt útfyrirað glæsilegt ung-
lingalandsmót yrði haldið af Harmoniku-
félagi Reykjavíkur og mikill hugur í fund-
armönnum um að halda þessum mótum
gangandi. Það fór svo að vonir okkar brugð-
ust og ungmennamótið var ekki haldið,
sérstaklega vegna þess að veikindi gengu
yfir og skráningar engan veginn í samræmi
við þær væntingar sem HR og SÍHU höfðu
og mótið því slegið af. Ég vil samt á þessari
stundu þakka Harmonikufélagi Reykjavfkur
fyrir góðan og vandaðan undirbúning þó
hann færi fyrir lítið.
Við skrifuðum öllum aðildarfélögum varð-
andi það hvort að þau vildu standa fyrir
unglingalandsmóti í haust en aðeins barst
svar frá einu félagi og það því miður í þá
veru að þetta gæti félagið ekki gert, ekkert
heyrðist frá öðrum félögum. Stjórn SÍHU
varþví nokkurvandi á höndum. Áttum við
að fara að ieita að mótshaldara, etv. aka-
demíunni eða að fara að halda mótið sjálf?
Þetta ræddum við fram og aftur og kom-
umst að þeirri niðurstöðu að það væri
aðalfundar að ákveða hvað ætti að gera
og því ræðum við þetta mál síðar á fund-
inum.
Égerennþá þeirrarskoðunarað þessi mót
eigi að vera framkvæmd af aðildarfélög-
unum, ef félögin geta þetta ekki þá held ég
að best sé að viðurkenna vanmátt okkar
og þá er þetta mót betur komið hjá öðrum
aðilum sem etv. hafa áhuga á þvíað skapa
grundvöll fyrir unga harmonikuleikara til
að sýna sig og sjá aðra. Um leið er þá svo
komið að við erum ekki fær um skapa unga
fólkinu tækifæri til að hittast og
spila hvertfyrirannað. Þarmeð
er líka farin ein besta leiðin til
þess að fá nýtt fólk í félögin
okkar.
Á sfðasta aðalfundi voru lagðar fram til-
lögur nefnda er störfuðu milli aðalfunda.
Tillögurnarvoru að mínu viti allargóðarog
umræður talsverðar. Mörgu var vfsað til
stjórnar til skoðunar og framkvæmda og
mun ég gera nokkra grein fyrir því.
Harmonikudagurinn: Fram kom tillaga um
að færa hann fram f október en fundurinn
ákvað að halda hann áfram í maí ár hvert
og svo var gert. Ötlum félögum var skrifað
varðandi harmonikudaginn og kynningar
á harmonikunni í grunnskólum og leik-
skólum og ég veit til þess að þetta hafa
nokkurfélöggert. Vonandi hefurþetta haft
þau áhrif sem til var ætlast að afla okkur
nýrra félaga, koma hljóðfærinu frekar á
framfæri og efla starf félaganna.
Meðal þess sem rætt var á síðasta aðal-
fundi voru fjármál og var þar talað um
tónleika og dansleiki til fjáröflunar, útgáfu
geisladiska, harmonikukeppni meðalyngra
fólks.
Stjórn SÍHU skipaði nefnd til að skipuleggja
ogsjá um harmonikukeppni ogvoru íþeirri
nefnd Friðjón Hallgrímsson formaður og
með honum Valmundur Pálsson og Gunnar
Kvaran, sem svo fengu fleiri til að leggja
hönd á plóginn við framkvæmdina. Þessi
keppni gekk mjög vel að mínu mati og ég
vil þakka öllum sem að þessu komu, bæði
framkvæmdaaðilum, dómurum og kepp-
endum. Undir sérstökum lið á fundinum
verður fjallað nánar um þessa keppni.
í tengslum við þetta mót var haldinn fjár-
öflunardansleikur í Breiðfirðingabúð. Þar
mætti fjöldi manns og urðu af þessu sam-
komuhaldi talsverðar tekjur. Þar lögðu
margirfram mikla vinnu við skipulagningu
ogspilamennsku sem ég kann þeim bestu
þakkir fyrir.
Ennfremur var talað um útgáfu á geisla-
diskum meðt.d. landsmótslögum frá upp-
hafi eða efni frá félögum. í þessu máli
hefur lítið verið gert, kannski dálítið hæpið
að fá lögin spiluð inn í sjálfboðavinnu eins
og lagtvartil og stúdíovinna all dýr og sala
diska óviss svo ekki sé meira sagt en engin
ástæða til að gefa þessa hugmynd upp á
bátinn að svo komnu máli.
Harmonikublaðið hefur komið útíár undir
stjórn Gunnars Kvaran varaformanns SÍHU
en aðrir stjórnarmenn aðstoðað eftir
föngum en þar ber hæst Melkorku sem sér
um fjármál og Sigrúnu sem sér um próf-
arkalestur blaðsins. Á síðasta aðalfundi
var samþykkt að reyna að efla blaðið og
reyna að fjölga áskrifendum. í þessu hefur
nokkuð áunnist og eru áskrifendur í kring
um 560 talsins núna.
í fyrra kynntum við nýja heimasíðu sam-
bandsins og nú hefur henni verið breytt
frekar og vonandi enn til batnaðar. Rætt
hefurverið um frekari samþættingu blaðs-
ins og heimasíðunnar og er það f frekari
skoðun. Við stjórnarmenn teljum að notkun
á heimasíðunni þurfi að aukast og vera
vettvangur skoðanaskipta, auglýsinga og
með úrdrátt úr blaðinu og myndum úr starfi
svo nokkuð sé nefnt og við vonum að fund-
urinn hafi einhverjar hugmyndir um frekari
notkun. Nokkuð hefurverið um kynningar
á viðburðum á vegum félaganna.
Nú góðir fundarmenn verðum við að taka
okkur á og nota þau hjálpartæki sem við
höfum til að kynna starf okkar þvi að síða
sem ekkert er notuð og breytist ekki neitt
dag frá degi er tilgangslítil en þetta er
a.m.k.að hlutatilíokkarhöndum. Eftilvill
væri hægt að skoða eftirfarandi hluti.
• Setja einstök lög sem tilbúin eru á heima-
síðuna, þannigað hala mætti þau niður
gegn vægu gjaldi
• Þeir sem þegar hafa gefið út diska gætu
haft þá til sölu á heimasíðunni, bæði
hefðbundna sölu ogeinsá sama háttog
á tónlist.is
• Hafa tengil inn á tónlist.is
• Eretv. hægtfá inni á tónlist.is með harm-
onikutónlist, kannske sem sérvalflokk
Ég held einnig að við eigum að gera sem
flestum kleift að skrifa inn á síðuna.
Hvað varðar að koma harmonikunni betur
á framfæri í fjölmiðlum þá er það heist að
segja að þau mál hafa verið rædd fram og
aftur en einna helst náðist einhver árangur
í sambandi við keppnina Harmonikumeist-
arann. Fjölmiðlamenn telja að við séum
ekki mjög dugleg að koma á framfæri því
sem við erum að gera og kannski er eitt-
hvað til í að það sem við erum að gera sé
ekki spennandi fjölmiðlaefni. Því miður
heyra svæðisútvörpin sögunni til og því
erfiðara um alla kynningu.
Næsta Landsmót verður haldið 2011 af
Harmonikufélagi Rangæinga og mun
Jóhann Bjarnason formaður kynna hvað er
að gerast í þeim málum á fundinum. í
samræmi við samþykkt sfðasta aðalfundar
á fulltrúi stjórnar þar sæti og er það Gunnar
Kvaran ogSigrún Halldórsdóttirvaramaður
hans.