Harmonikublaðið - 01.12.2010, Page 15

Harmonikublaðið - 01.12.2010, Page 15
Það erskoðun mín að við séum ekki nægi- lega dugleg að viðurkenna það sem vel er gert og sjálfboðaliðastörf eins og mikið er um í okkar félagsskap verða oft útundan og vekja ekki verðskuldaða eftirtekt en stjórn SÍHU mun halda áfram að viðurkenna þá sem okkur þykir hafa skilað góðu starfi. Valið er oft erfitt og um það má sjálfsagt deila eins og allt annað sem gert er. Ég sagði á síðasta aðalfundi að við hefðum nokkrar áhyggjur af stöðu félaganna og landssambandsins og því miður finnst mér að við höfum ekki náð nægilegum árangri þó að um Ijósa punkta sé að ræða í starf- seminni. Á þessum fundi á að kjósa aðila í stjórn sambandsins. Ég hvetfólktil þessað bjóða fram krafta sína i stjórn SÍHU ogtelaðfólk sem kemur sjálfviljugt til starfa muni líklegt til afreka og góðra hluta, Ég hvet formenn og fulltrúa til þess að taka umræðu um þá þætti sem hér hefur verið fjallað um, sérstaklega er nauðsyn að ræða fjármál, málefni landsmóta, útgáfumál og hvert skal stefna, því að það er klárlega verkefni þessa fundarað móta stefnu sem stjórn á að koma í framkvæmd fram að næsta aðalfundi eftirár. Öll umræða ertil bóta og skiptir sköpum um framtfð sam- bandsins og félaganna. Nú hefur verið drepið á helstu þætti starfs- ins hjá stjórn SÍHU og vil ég þakka með- stjórnendum mínum fyrirgott samstarfsvo og stjórnum aðildarfélaga fyrir gott sam- starf á liðnu starfsári. Fari svo að einhverjir stjórnarmenn gefi ekki kostásértiláfram- haldandi starfa vil ég nota þetta tækifæri til að þakka þeim samstarfið og vel unnin störf. Við erum stödd á aðalfundi og á honum eigum við að móta starf komandi starfsárs þannig að stjórn landssambands- ins viti hver ervilji félaganna og geti reynt að vinna þeim vilja brautargengi. Fyrir hönd stjórnar SÍHU jónas Þór Jóhannsson formaður Landsmót S.Í.H.U. Hellu á Rangárvöllum 30. júní - 3. júlí 2011 Landsmót harmonikufélaga verður haldið á Hellu dagana 30. júní til 3. júlí næsta sumar í boði Harmonikufélags Rangæinga. Félagið hefur skipað lands- mótsnefnd sem mun stjórna undirbúningi ogframkvæmd mótsins. Hana skipa Jóhann Bjarnason, Valur Haraldsson, Guðrún Arnbjörg Óttarsdóttir, Haraldur Konráðsson og Hannes Birgir Hannesson. Fulltrúi SÍHU í nefndinni er Gunnar Kvaran og Sigrún Halldórsdóttirtil vara. Undir- búningur gengur vel en í mörg horn er að líta við skipulagningu svona stórviðburðar. íþróttahúsið á Hellu verður vettvangur landsmótsins, en þar er mjög góð aðstaða. Af þessu tilefni verður sett upp nýtt hús- vagnastæði í nágrenni íþróttahússins, það er ætlað þeim er þurfa rafmagn, annars er húsvagnastæði á árbakkanum og svo er einnig tjaldstæði við Árhús. Það er um ýmsa gistimöguleika að ræða á Hellu og nágrenni, en rétt er að hafa vaðið fyrir neðan sig og panta gistingu tímanlega. Helstu gististaðir þar eru Gistihúsið Mosfell (Fosshótel) sími: 487-5828, þareru 35 her- bergi með baði og 18 herbergi án baðs. Harmonikufélagið hefur samið um 25% afslátt um landsmótshelgina. Hellirinn, þar er gisting í fjórum fullbúnum heilsárs- húsum, sími: 487-5171 eða 868-3677 og svo Árhús, þar eru 28 smáhýsi, stórt tjald- stæði og góð aðstaða fyrir húsbíla, sími: 487-5577. Einnig er mikið af bændagistingu í nágrenni Hellu. Það er búið að velja landsmótslagið, það er Nesjavallapolki eftir Jóhann Bjarnason, útsett af Grétari Geirssyni. Nótur verða sendar til félaganna bráðlega. Þetta lag eiga allir að spila saman sem oftast á mótinu. Bréf verður einnig sent til félaganna fljót- lega þar sem þau eru beðin að tilkynna þátttöku á landsmótið, bæði varðandi spilamennsku á tónleikum og dansleikjum. Við vonum að félögin svari því bréfi fljótt og vel. Föstudagskvöldið 1. júlí verður pöbbastemming í Árhúsum og dansað í Kansl- aranum, en svo verður stór- dansleikur í íþróttahúsinu á laugardagskvöldið að vanda. Verið erað kanna möguleika á að hafa einnig unglinga- dansleik á Hvolsvelli og þá myndi yngri kynslóðin spila þar. Ekki er búið að ákveða hversu langan tfma félögin fá á tónleikum en þar verður Ifka bryddað upp á ýmsum nýjungum. Dagskráin verður annars fjölbreytt, tónleikar fyriralla aldurshópa þarsem bæði eldri og yngri spilarar leika listir sínar. Lögð verður áhersla á að allir finni eitthvað við sitt hæfi og lands- mótið verði sannkölluð fjölskytduhátíð. Það er kannske ekki hægt að lofa góðu veðri, en tvö síðustu árin hefur veðrið leikið við Hellubúa þessa helgi. Viljum við hvetja sem flesta til að taka helgina frá og koma og skemmta sér á landsmóti með okkur. Hvað sem því Ifður mun Harmonikufélag Rangæinga taka á móti ykkur með útbreiddan faðminn og sól í hjarta á lands- mótinu komandi sumar. Hittumst heil. Jóhann Bjarnason formaður Sími: 695-5370

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.