Harmonikublaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 16

Harmonikublaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 16
GEISLADISKUR MEÐ ÖRVARI KRISTJÁNSSYNI Nýlega er kominn út geisladiskur með Örvari Kristjánssyni þar sem hann leikur 18 sígild og vinsæl lög. Med Örvari leika á þessum geisladiski frábærir hljóðfæra- leikar og má fullyrða að þetta sé einn vandaðasti diskur sem Örvar Kristjánsson hefur leikið inn á. Örvar hefur í gegn um árin haft einstakt lag á að setja saman lögá plötur oggeisladiska sem hafa orðið vinsæl meðal aðdáenda hans. Á næsta ári fagnar Örvar þeim áfanga að það eru 60 ár síðan hann kom fyrst fram opin- berlega og lék fyrir dansi. Af þvf tilefni fannst EG TÓNUM heiður að fá að gefa út þennan frábæra disk. ÞaðerTónn, hljóðversem sá um upptöku á lögunum ogum dreifingu á disknum sér Zonet. Diskurinn erfáanlegur hjá útgefanda og í helstu verslunum er selja geisladiska. Einnig er hann fáanlegur á öllum verslunum hjá Olís. CAPRICE - Jón Þorsteinn Reynisson Jón Þorsteinn Reynisson hefur gefið út geisladisk sem inniheldur klassísk tónverk spiluð á harmoniku. Diskurinn ber nafnið Caprice og inniheldur verk eftir Boéllmann, Paganini, Scarlatti, Mozart, Beethoven, Chopin, Vivaldi, Bach ogWagner. Þetta eru nokkur tfðindi ftónlistarlífi hérá landi því þetta mun vera fyrsti diskurinn sem gefinn er út á íslandi sem inniheldur eingöngu klassíska tónlist sem flutt er á harmoniku. Diskurinn verður fáanlegur í öllum helstu tónlistarverslunum landsins fyrir jólin. Jón Þorsteinn Reynisson frá Mýrakoti er fæddur 1988. Hann hóf tón- listarnám fimm ára gamall og þá á blokkflautu, en síðan á píanó og harmoniku sjö ára. Fram til 14 ára aldurs lærði hann jöfnum höndum á píanó og harmoniku eftir það hefur nikkan átt hug hans allan. Hann mun hafa verið átta ára þegar hann lék einleik á harmonikuna með Sinfón- íuhljómsveit íslands á tónleikaferð hennar um Skagafjörð. Árið 1999 sigraði hann í hæfileikakeppni ungra harmonikuleikara sem haldin var á vegum Harmonikufélags Reykjavfkur. Jón Þorsteinn hefurverið mjög virkur í tónlistarlífi Skagafjarðar og víðar, bæði haldið tónleika einn og eins með öðrum tónlistarmönnum. Hér er afbragðs harmonikuleikari á ferð sem á vonandi eftir að láta meira að sér kveða á næstu árum. Þessi geisladiskur er án efa mikill fengur bæði fyrir unnendur klassískrar tónlistar og harmonikunnar. Nýrhljómdiskursem inniheldur fjórtán lög eftir tónlistarmanninn ástsæla, Baldur Geirmundsson, kemur íverstanir um miðjan desember. „Þetta eru allt lög eftir sjálfan mig sem hafa safnast saman í gegnum árin,“ segir Baldur sem er betur þekktur sem BG. Honum til fulltingis eru Samúel Einarsson sem spilar á bassa, Jón Hallfreð Engilbertsson á gítar og sonur hans Hólm- geir á trommur auk þess sem Baldur spilar sjálfur á hljómborð og harmoniku. Þá fær hann einvalalið söngvara til að flytja lögin en það eru þau Mar- grét Geirsdóttir, Ingibjörg Guð- mundsdóttir, BenediktSigurðs- * son, Karl Geirmundsson og Svanfríður Arnórsdóttir. EinnigsyngurAgnes Marzellí- usardóttir bakrödd í einu lagi. Á disknum verða að finna fjórtán lög og stefnt er að þvf að hann komi út um miðjan desember. Baldur Björn Geirmundsson fæddist að Látrum í Aðalvík 15. október 1937. Á sjötugsafmæli hans fyrir þremur árum var hann útnefndur bæjarlistamaður ísafjarðarbæjar en hann hefur í árafjöld verið áberandi á tónlistarsviði ísafjarðar og nágrenni og spilað með ótal tónlistar- mönnum. Þá hafa mörg lög hans orðið mjög þekkt og má sem dæmi geta lagið Góða ferð sem um 11.000 manns hafa nú séð á www.youtube.com. £1 H BACH CHOHN na TtEW® «**«*»» 1 iL H W »K| BTrfW \t\auh ‘CARUTTl ,^„^1 Sfc) viol\RT t'/f « (A'rot«nil Sjfltynition 16

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.