Harmonikublaðið - 01.12.2010, Qupperneq 21

Harmonikublaðið - 01.12.2010, Qupperneq 21
Allir koma heim. var rætt á fundinum og fundarmenn sáttir við fundinn þvf þó hann hafi verið svotítið langur leiddist engum. Hverjum fundarmanni voru gefin tvö glös með merki Félags harmoniku- unnenda Reykjavík. Valmundur og Helgi Kristjáns harm- onikuunnendahirðarhljómflutnings- tækjamaður komu fyrir tækjunum í salnum, Hreinn Vilhjálmsson huhhft- maðurfékkfríað þessu sinni. Hátíð- arkvöldverður hófst upp úr klukkan sjö. Þarvarboriðfram: humarsúpa, hægeldað lambakjöt og heimalag- aður ís að hætti Hótel Arkar. Var þetta mjög Ijúffengur matur en undirritaðri láðist að kalla fram kokk og þjónustulið en þau fengu þakk- arkveðjur daginn eftir. SÍHU færði formanni FHUR fallegan blómvönd sem þakklætisvott fyrir framkvæmd þingsins og formaður kallaði Val- mund gjaldkera og Friðjón skemmti- nefndarformann á svið en þeir voru sérlegir aðstoðarmenn formanns. Brandarar og gamanmál voru flutt með frjálsum framlögum. Dansinn byrjaði fyrir klukkan tíu og léku margir góðir mótsgestir fyrir dansi sem dunaði til klukkan tvö. Allir fóru alsælir heim eftir góða helgi með frábærum félögum. Hafið þökkfyrir góðar samverustundir. Virðingarfyllst, Elísabet H Einarsdóttir formaður FHUR Harmonikumessa í Árbæjarkirkju athöfninni var flutt lag og Ijóð eftir hana sem heitir Minningarbrot og annað eftir bróður hennar Jóhann Bjarnason við Ijóð Sólveigar Sigurðardóttur er nefnist Vöggu- vísa, en þau systkin Sigrún ogjóhann voru fædd og uppalin að Árbakka íÁrbæjarsókn. Jóhann var einn harmonikuleikaranna en Á fögrum sumardegi þann 6. júní sl. var haldin harmoniku- messa í Árbæjarkirkju í Holtum. Það voru nokkrir félagar úr Harmonikufélagi Rang- æinga sem sáu um undirleik og tónlistar- flutning ásamt kór kirkjunnar og sóknar- presturinn sr. Halldóra J. Þorvarðardóttirþjón- aði fyrir altari. Félagarnir höfðu fengið inni fsafnaðar- heimili kirkjunnar til æfinga yfirveturinn og vildu þakka fyrir sig með einhverju móti og þá kom upp þessi hugmynd að spila í messu; - harmonikumessu. Af því tilefni þótti við hæfi að minnast lát- ins félaga, Sigrúnar Bjarnadóttur og í aukhansvoru það þeirHannes Birgir Hannesson, Grétar Geirsson og Bragi Gunnarsson léká gítar. Athöfnin var gleðileg og gef- andi í alla staði og það er ánægjulegt þegar vel tekst til að flétta saman það fjölbreytta menningarstarf sem iðkað er íheimabyggð. Af þvíhafa allir ávinning og það styrkir og eflir menningu og trúarlíf héraðs- ins. Að aflokinni guðsþjónustu, kaffisopa og spjatli héldu kirkjugestir heimleiðis léttir í lundu og endurnærðir í sál og sinni eftir góða messuferð. Halldóra J. Þorvarðardóttir 'L almonikusatn ÁSGEIRS S.SIGURÐSSONAR býður öldruðum harmonikum farsælt ævikvöld á Byggðasafni Vestfjarða, ísafirði. Símanúmer: 456-3485 og 863-1642 * -------------------------------------- ' 7T. ' 21

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.