Harmonikublaðið - 01.05.2013, Page 2
AVARP FORMANNS
Kæri harmonikuunnandi.
Ég óska ykkur öllum gleðilegs sumars með
von um að það verði okkur öllum farsælt og
gjöfult. Veturinn er að baki og þar sem ég
veit að vetrarstarfið hjá harmonikufélög-
unum um allt land hefur verið fjölbreytt og
skemmtilegt er það von mín að sumarstarfið
verði enn fjölbreyttara.
Af starfi stjórnar sambandsins er það helst
að frétta að stjórnin hefurfundað reglulega
ogverið ígóðu sambandi. Þessir fundir okkar
hafa verið árangursríkir og ýmis verkefni
komið upp sem stjórnin hefur þurft að taka
að sér.
Fyrst skal nefna æfingabúðir ungmenna
okkar er halda átti að Reykjum í Hrútafirði
um miðjan september 2012. Því miður gat
ekki orðið af því þar sem þátttaka var ekki
næg. Það er vissulega áhyggjuefni okkar í
stjórninni að það virðist sem að þessi góða
hugmynd að gefa unglingunum okkartæki-
færi á að hittast, spila saman og njóta
kennslu nái ekki til harmonikukennaranna
og tónlistarskólanna í landinu. Að vísu er
þarna um töluverðan kostnað að ræða fyrir
þátttakendur og er það von okkar að þegar
betri tímar koma með blóm í haga þá verði
hægt að endurvekja þessar samverustundir
að Reykjum. Stjórnin lagði á sig töluverða
vinnu og gerði sitt besta til að af þessum
æfingabúðum gæti orðið. Send voru út boð
á alla formenn félaganna, alla harmoniku-
kennara og tónlistarskóla um að nýta þetta
tækifæri og senda nemendur til þessara
æfingabúða en því miður kom allt of lítið út
úr þessari vinnu okkar.
Stjórnin hefur fylgst vel með vetrarstarfi
aðildarfélaganna og er gaman að vita til þess
hvað starfið hefur verið öflugt hjá mörgum
félögum ívetur. Mörgfélaganna hafastaðið
fyrir reglulegu dansleikjahaldi ásamt því að
halda tónleika og fleira. Þó verður að segja
að það er eitt í starfinu sem staðið hefur upp
úr í vetur, en það er framkvæmd á tillögu
þeirri er Guðrún Guðjónsdóttir lagði fram á
síðasta aðalfundi um að kynna harmonikuna
í leikskólum landsins. Þetta verkefni var sett
í gang af fullum krafti í byrjun árs og send
voru boð til allra félaganna um að taka þátt
og tókst ótrúlega vel að fá alla til að vinna
að þessu. Ég veit að það hefur verið farið í
50 - 60 leikskóla á höfuðborgarsvæðinu og
má áætla að búið sé að fara í um 100 leik-
skólaá landinuöllu. Undirritaður hefur tekið
þátt í þessu verkefni og er ótrúlegt hvað
börnin skemmta sér við harmonikutónlistina.
Þær stöllur Guðrún Guðjónsdóttir og Elísabet
Einarsdóttir, varaformaður sambandsins,
hafa stjórnað þessu verkefni af mikilli alúð
og áhuga og eiga þær mikinn heiður skilið.
Sérstaklega ber að þakka Guðrúnu fyrir
þessa frábæru hugmynd og að koma henni
í framkvæmd.
Ákveðið var á stjórnarfundi að verða við ósk
Jóns Þorsteins Reynissonar um að veita
honum námsstyrk, en hann stundar nám í
harmonikuleikíKaupmannahöfn.Viðvonum
að sú upphæð er honum var veitt komi
honum að góðum notum.
Harmonikukeppni S.Í.H.U. var haldin laugar-
daginn 13. apríl 2013 íTónlistarskólanum í
Garðabæ. Stjórn sambandsins fékk Friðjón
Hallgrímsson til að sjá um framkvæmd
keppninnar ogfórst honum það vel úr hendi.
Ákveðið var að keppa í þremur aldurshópum,
12 ára ogyngri, 13 til 16 ára og 17 ára og eldri.
Þátttaka í tveimur yngri flokkunum var góð
en því miður verður að segja að einhver
undarleg sjónarmið kennara er kennt hefur
okkar bestu ungmennum í elsta flokki urðu
til þess að enginn af þessum góðu spilurum
skráði sig til keppninnar. Þetta voru mikil
vonbrigði fyrir alla er stóðu að keppninni og
verður að segja að þessi afstaða þessa
annars ágæta kennara verður honum ævar-
andi til vansa. Hvers eiga þessir frábæru
nemendur hans að gjalda? Þeirri spurningu
getur enginn svarað nema hann sjálfur. Eitt
er víst að með þessari framkomu leggur
hann ekki sitt af mörkum til að kynna harm-
onikuna. Keppnin tókst með ágætum ogvoru
keppendur íyngri flokkunum til mikils sóma
með góðum ogvönduðum harmonikuleik.
Harmonikudagurinn verður haldinn um allt
land laugardaginn 4. maíoger þaðvon okkar
að félögin sjái sér fært að spila sem víðast
og að hljóðfærið okkar fái sem besta kynn-
ingu. Sumarhátíðarnar fara í gang ein af
annarri og án nokkurs vafa verður glatt á
hjalla á þessu hátíðum.
Það er von mín að allir harmonikuunnendur
komi til með að eiga gleðilegt harmoniku-
sumar og að tónar nikkunnar fái að hljóma
sem víðast.
Gleðilegt sumar.
Gunnar Ó. Kvaran, formadur
Harmonikusafn
Ásgeirs S. Sigurðssonar
býður öldruðum harmonikum farsælt ævikvöld á
Byggðasafni Vestfjarða.
Sími: 456 3485 og 844 0172.
Netfang: assigu@internet.is Veffang: www.nedsti.is
2