Harmonikublaðið - 01.05.2013, Síða 3
Harmonikublaðið
ISSN1670-200X
Ábyrgðarmaður:
Friðjón Hallgrímsson
Espigerði 2
108 Reykjavík
Sími568 6422, fridjonoggudny@internet.is
Prentvinnsla:
Héraðsprent, Egilsstöðum, www.heradsprent.is
Netfang: print@heradsprent.is
Forsíða:
Keppendur í Harmonikumeistaranum 2013.
Meðal efnis:
- Viðtalvið Halldór Þ Þórðarson
- Frá Harmonikufélagi Selfoss
- Harmonikan í leikskólum landsins
- Fréttir og hugleiðingar úr Húnaþingi
- Af Eyfirðingum
- Nikkólína enn ung í anda
- Harmonikumeistarinn 2013
- Um tónlistarferil Páls á Krossi
- Minning - Rafn Jónsson
- Norsk heimsókn á „Nú er lag“
- Frá Harmonikufélagi Héraðsbúa
- Harmonikudagurinn á Breiðumýri
■ Tónleikaferð 2012
-Vetrarstarf F.H.U.R.
-Jólaskemmtun Harmonikufélags Þingeyinga
- Frostpinnar að vestan Vals úr Breiðfirðingabúð
- Harmonikudagurinn á Þingeyri
Auglýsingaverð:
Baksíða 1/1 síða kr. 23.000
i/2síða kr. 15.000
Innsíður 1/1 síða kr. 18.400
1/2 síða kr. 11.500
1/4 síða kr. 6.700
1/8 síða kr. 4.600
Smáauglýsingar kr. 2.500
RITSTJÚRASPJALL
Önnur harmonikukeppni Sambands
íslenskra harmonikuunnenda fór fram 13.
apríl síðastliðinn í sal Tónlistarskólans í
Garðabæ. Áður en keppnin fór fyrst fram
fyrir þremur árum, höfðu farið fram
umræður á aðalfundum sambandsins og
sýndist sitt hverjum. Undirritaður hélt fram
þeirri skoðun að mótið þyrfti að fara fram
áriega, þannig að hefð gæti skapast. Hann
var þar f minnihluta og meirihlutinn sam-
þykkti síðan að halda mótið á þriggja ára
fresti. ítengslum við þetta kemurýmislegt
upp í hugann þegar síðasta keppni er
skoðuð. Þegar keppnin 2010 var haldin
sendu átta kennarar keppendur. Þeir
störfuðu víða um landið. Einn kennari var
á Akureyri, Húsavík, Hellu og Flúðum.
Fimm kennarar voru á höfuðborgarsvæð-
inu. Þessir átta kennarar sendu þrettán
keppendur. Þróunin sem menn þóttust sjá
hér fyrir þremur árum hefur kannski ekki
orðið nákvæmlega sú sem vonast var eftir.
í ár tóku níu keppendur þátt, þar af átta
frá einum og sama kennaranum. Þetta eru
ótrúlegar tölur. í vetur var haft samband
við sömu kennara og síðast, en samkvæmt
þeirra upplýsingum voru aðstæður núna
allt aðrar. Nemendur ýmist hættir eða
önnum kafnir við annað. Það liggur sem
sé Ijóst fyrir að án nemenda Helgu Krist-
bjargar hefði
„Harmonikumeist-
arinn“ 2013 ekki
verið haldinn. Það
ersmá huggun að
eftir þrjú ár gæti
Hetga verið að
kenna, svo fremi
sem hún verður
ekki komin í fram-
haldsnám erlendis.
Þá gætu fleiri ungir kennarar hafa bæst í
hópinn, en nokkrir eru vel á leið komnir í
námi. Á síðastliðnum árum hafa nokkrir
menntaðir harmonikukennarar starfað hér
á tandi, en eftir að Fjodorov bræðurnir
hurfu á braut ásamt Hrólfi Vagnssyni hefur
þessi hópurþynnstverulega. Efsvotilvið-
bótar verður erfiðleikum háð að tengja
tónlistarskólana betur við harmoniku-
félögin er sannarlega vá fyrir dyrum. Þó
áhugi einhvers kennara hafi horfið með
keppninni 2010 á það ekki að verða til
þess að keppni sé alfarið hætt. Hafi áhugi
fólks á keppninni dvínað þarf að skoða
hvað gera þarf til að vekja áhugann og
jafnvel skoða hvort of langt sé á milli
keppna.
Friðjón Hallgrímsson
IFRETTUM VAR ÞETTA HELST
Skitafrestur efnis fyrir næsta blað
eri. sept. 2013.
Stjórn S.Í.H.U. nöfn, netföng,
heimilisföng og símanúmer:
Formaður:
Gunnar Kvaran alf7@mi.is
Álfalandi 7, 108 Reykjavík
S: 568-3670 / 824-7610
Varaformaður:
Elísabet Halldóra Einarsdóttir
elisabete@heima.is
Suðurhúsum 6,112 Reykjavík
S: 587-3179 / 864-8539
Ritari:
Sigrún B. Halldórsdóttir sbh@talnet.is
Breiðabólstað, 371 Búðardalur
S: 434-1207 / 861-5998
Gjaldkeri:
Sigurður Eymundsson koltrod21@simnet.is
Koltröð 21, 700 Egilsstaðir
S: 471-1333 / 893-3639
Meðstjórnandi:
Frosti Gunnarsson hansdottir@simnet.is
Vallargötu 3, 420 Súðavík
S: 456-4928 / 895-1119
Varamaður:
Aðalsteinn ísfjörð unnas@simnet.is
Forsæti íob, 550 Sauðárkrókur
S: 464-15AI / 894-1541
Varamaður:
Filippía Sigurjónsdóttir 8208834@internet.is
Hólatúni 16, 600 Akureyri
S: 462-5534 / 820-8834
Aðalfundur SÍHU verður haldinn að Hótel
Hamri íBorgarfirði helgina 20.-22. septem-
ber í haust. Það eru Harmonikuunnendur
Vesturlands sem bjóða til fundarins. Á Hótel
Hamri er dágóður salur, þar sem vel er hægt
að slá upp balli að hætti harmonikuunn-
enda. Þetta verður sfðasti aðalfundurinn
fyrir næsta Landsmót sem haldið verður á
Laugum í Reykjadal sumarið 2014.
Harmonikuunnendur Vesturlands sem sfð-
ustu ár hafa haldið sitt sumarmót í Fannahlíð
verða að færa sig í ár. Þeir verða í félags-
heimilinu Miðgarði, sem er nánast í göngu-
færi frá Akranesi. Þar mun aðstaða vera ekki
síðri en í Fannahlíð.
Þrjátíu Norðmenn frá Brpnnpy Trekkspill-
klubb hafa boðað komu sína til íslands. Hér
er um að ræða 15-20 spilara með ásamt
fylgifiskum, sem ætla að dvelja á íslandi í
eina viku. Hluta tímans dvelja þeir í Hótel
Borgarnesi og taka þátt í„Nú er lag á Varma-
landi“, um verslunarmannahelgina. Þar
munu þeir leika á dansleikjum ogtónleikum
ásamt harmonikuunnendum úr Reykjavík
og víðar.
Héraðsbúar sem undanfarin ár hafa haldið
sitt sumarmót í Svartaskógi hafa nú ákveðið
að söðla um og færa sig nær þéttbýlinu. Þeir
verða í Fellabæ um verslunarmannahelgina.
Þar er dansstaðurinn í göngufæri ogfleira
aðeins í armlengd frá gestunum.
Harmonikumót það sem stjórn SÍHU hafði
jafnvel hugsað sér að halda í sumar ÍÁrbliki
í Miðdölum, eins og f fyrra verður látið bíða.
Ekki þótti ástæða til að halda mótið, þar
sem talið var að það gæti jafnvel orðið til
að skaða harmonikumót félaganna á svæð-
inu. Miðað við þær hugmyndir hefðu þá
verið harmonikumót fjórar helgar í röð á
vesturhluta landsins.
Sigurður Harðarson f Félagi harmonikuunn-
enda í Reykjavík hefur sett saman mynda-
síðu, sem er öllum aðgengileg. Þar er að
finna Ijósmyndir, sem Sigurður, sem er mjög
góður Ijósmyndari, hefur tekið í gegnum árin
og kennir þar margra grasa. Hann og kona
hans Harpa Ágústsdóttir eru miklir dansarar
og útilegufólk, samkvæmisljón í bestu merk-
ingu orðsins. Sigurður hefur þó alltaf tíma
til að taka myndir. Þarna má sjá ríflega tíu
ár af skemmtunum FHUR og fleiri félaga.
Tengingin er www.harmoniku-unnendur.
com.
Bergmann Óli Aðalsteinsson sem sigraði
Harmonikumeistarann 2013 verður tekinn
tali í haustblaðinu.
3