Harmonikublaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 5

Harmonikublaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 5
medal áfangastaða hafa verið Hof í Öræfum, Borgarfjörður eystri, Skúlagarður í Keldu- hverfi, Reykjanes við ísafjarðardjúp, Þórs- höfn, Hrísey, Grímsey og lengst höfum við farið til Færeyja árið 2000, en þá var Harm- onikufélagið Nikkólína og Harmonikufélag Rangæinga einnig með í för. Þetta hafa verið afskaplega skemmtileg ferðalög og margir frábærir tónlistarmenn verið með í hópnum í gegnum tíðina. Það sem oft er eftirminni- legast er þó þær einstöku móttökur sem við sveitafólkið höfum oft fengið eins og t.d. í Grfmsey þegar okkur var öllum boðið í siglingu umhverfis eyna í bátum heimamanna með afar skemmtilegri leiðsögn. EinnigstjórnaðiégSöngfélaginuVorboðanum í þónokkur ár og fleiri samkórum og söng- hópum og núna stjórna ég kór eldri borgara í Dölum. Svo verður að nefna karlakórinn Frosta, sem stofnaður var til að syngja á árshátíð til fjáröflunar fyrir lítið frystihús í sveitinni. Það þurfti að gera við frystivélarnar og ekki digur sjóður til að kosta viðhaldið, en frystihúsið var hið mesta þarfaþing. Því var ákveðið að halda bara árshátíð og fjár- hagnum var bjargað það árið. Þannig var rekstur frystihússins ekki ríkisstyrktur heldur tónlistarstyrktur. Harmonikufélagið Nikkólína var stofnað 7. nóvember 1981, við vorum 10 stofnfélagar. í dag eru félagarnir held ég rúmlega 50. Ég held að ég hafi mætt á flest landsmót SÍHU, á þau fyrstu bara til að njóta dagskrárinnar en svo tók Nikkólína í fyrsta sinn þátt í tónleikum harmonikufélaganna á fjórða landsmótinu að Laugum í Þingeyjarsýslu 1990 og allar götur síðan. Stundum undir minni stjórn en stundum annarra. Á meðan ég kenndi á harmoniku var sérstaklega gaman að geta fengið nemendurna til að taka þátt í starfi Nikkólínu og spila með á landsmótum. Því miðurerenginn nemandi á harmoniku núna við tónlistardeild Auðarskóla, áður Tónlistar- skóla Dalasýslu. Það er mjög miður og ósk- andi að úr því rætist sem fyrst. Fyrsta hljóðfærið? Fyrsta hljóðfærið mitt var harmonika sem ég keypti þegar ég var íTónskóla þjóðkirkjunnar árið 1953,15 ára. Þetta var Orfeo 120 bassa og kostaði 3.950 krónur. Ég átti til rúmlega 4.000 krónur inni á sparisjóðsbók þannig að ekki var mikið eftir af sparnaðinum þegar búið var að greiða fyrir harmonikuna. Ég spurði Sigurð Birkis hvort ég mætti æfa mig á harmonikuna eftir eyranu og hann sagði það upplagt, þá gæti ég látið kirkjukórinn dansa þegar ég væri búinn að æfa hann. Ég fór svo í nokkra harmonikutíma hjá Magnúsi Péturs- syni píanóleikara 1957, hann kenndi hjá Karli Jónatanssyni. Svo var ég orðinn svo blankur að ég fór á vertíð í Grindavík, en harmonikan fylgdi með þangað. Ég hef bara átt 4 harmon- ikurum ævina. Núna á égZeroSette harmon- iku sem er mjög hljómfalleg og skemmtileg. Fyrsta ballið sem ég spilaði á var á Staðar- felli 1955, sama kvöld var ball á Laugum og 5 Halldór á fullu í heyskap sumarið 2012 Hversu lengi sinntir þú tónlistarkennslu í Dölum? Tónlistarskóli Dalasýslu var stofnaður 1976 og ég var beðinn að taka að mér stunda- kennslu strax á fyrsta starfsárinu, þá kenndi ég á Laugum þar sem var heimavistarskóli fyrir sveitirnar. Fljótlega fór ég einnig að kenna eldri nemendum í félagsheimilinu að Staðarfelli, það voru nokkrir góðbændur úr sveitinni sem höfðu áhuga á að auka tónlistarkunnáttu sína. Það var mjög skemmtilegur tími, en auðvitað var þetta mjög tímafrekt vegna þess að vetrarsam- göngurvoru ofterfiðará þessum árum. Ég var svo fastráðinn tónlistarkennari frá 1984 önnur tónlistariðkun? Á nýársdag 1957, tæplega 19 ára gamall, spilaði ég f fyrstu messu sem organisti í Staðarfellskirkju, þetta eru þá núna orðin rúmlega 56 ár í starfi þar. Spilaði reyndar stopult fyrstu árin vegna annarra starfa, meðal þeirra sem leystu mig af við orgelið þá var Guðbjörg Helga systir mín og Sigríður Halldórsdóttir á Orrahóli. Svo bættist Hvammskirkja við um 1962, þá Dagverðar- neskirkja og á tímabili spilaði ég einnig í Skarðskirkju. í dag er ég organisti í öllum 7 kirkjum Dalaprestakalls. Kirkjukórinn varfyrsti kórinn sem égstjórn- aði, en í gegnum tíðina hafa þeir verið Spilað með Nikkólínu á Jörvagleði og kenndi þá bæði íBúðardalogá Laugum og síðan skólastjóri tónlistarskólans frá 1994-2008, en þá varð ég sjötugur og hætti vegna aldurs. Að vísu kenndi ég stunda- kennslu áfram í þrjá vetur í viðbót. Mín aðalkennsluhljóðfæri voru harmonika, píanó, orgel og trommur, en svo var ég líka með hópa í blokkflaututímum seinni árin, það var frumraun mín í blásturshljóðfæra- leik. margir. Má nefna Þorrakórinn, honum hef ég stjórnað frá stofnun hans 1962 og er enn að. Kórinn var upphaflega stofnaður til að skemmta á þorrablóti Fellsstrendinga, en síðan varstarfsemin aukin ogi982 varfarið í fyrstu söngferðina af mörgum, eftir sauð- burð var haldið norður íÁrnes ÍTrékyllisvík á Ströndum þar sem haldin var kvöld- skemmtun með kórsöng og gamanmálum og á eftir var svo harmonikudansleikur. Þessi ferð tókst svo vel að síðan hefur kór- inn og hljómsveit ferðast víða um land,

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.