Harmonikublaðið - 01.05.2013, Page 6
flestir fóru þangað. En síðan þá hefégspilað
víða á dansleikjum, með ýmsum góðum
spilafélögum. Fyrr á árum voru dansleikir
yfirleitt fram undir morgun, eða bara eins
lengi og fólk hafði úthald til að dansa. Það
var ekki spurt um úthald hljóðfæraleikar-
anna. Einu sinni fór ég til að spila á dansleik
á Ingjatdssandi seinni part sumars sennilega
upp úr 1980. Við vorum þrír spilafélagarnir,
ég, Jón Benediktsson og Ragnar Ingi Aðal-
steinsson. Um langan og hrjóstrugan veg
var að fara, en merkilegt nokk þá komumst
við þangað á Fiat Uno allir þrfr og öll hljóð-
færin. Það eru meðmæli með Fiat Uno.
í annað sinn var ég beðinn að spila á balli
að Reykhólum. Færðin var leiðinleg, mikill
lausasnjór. Ég fékk Lárus Jensen til að keyra
mig, hann átti góðan bfl. Á bakaleið höfðu
fallið amk. tvö snjóflóð í Gilsfirðinum,
þannig að færðin var ekki glæsileg. Lárus
var laginn og náði að láta bflinn mala sig
hægt og rólega f gegn um höftin og heim
komst ég um ellefuleytið um morguninn og
fór beint f fjárhúsin að sinna gegningum.
Hins vegar hafði Ólaffa kona mfn skroppið
á kvenfélagsfund að Orrahóli í sömu sveit
kvöldið áður og var ennþá veðurteppt þar,
þó innansveitar væri!
Hverja telur þú framtíð harmonikunnar?
Ég er bjartsýnn á framtíðina. Það er fullt af
góðum hljóðfæraleikurum í Dölum og frá-
bært ungt fólk að koma upp um allt land
sem mun auka vegsemd og virðingu hljóð-
færisins. Það erframtíðin.
Að lokum?
Þetta hefur verið mikið og gefandi starf í
gegn um tíðina og margar skemmtilegar
minningar tengjast tónlistinni. Ég vona að
tónlistarstarf í Dölum og landinu blómgist
áfram um ókomin ár.
Það var svo hérna um árið þegar Nikkólína
var að koma sér fyrir á tónleikasviðinu á
landsmótinu í Reykjanesbæ, taugar margra
voru þandar, stress og allir töluðu í einu.
Þá sagði Pétur Bjarnason, sem var kynnir,
við mig að hér ættu við orð Nóbelsskálds-
ins: Þetta endar allt einhvern veginn, þótt
sumir efist um það á tímabili.
Við kveðjum Halldór og þökkum fyrir
spjallið. Lokaorðin gefa ástæðu til bjart-
sýni. FH
FRÁ HARMONIKUFÉLAGISELFOSS
Hljómsveit HFS
Af starfsemi Harmonikufélags Selfoss er helst að nefna að
haldnir voru haust- og vordansleikir, nú síðast 20. apríl. Var
sá dansleikur vel sóttur. Einnig hafa félagsmenn heimsótt
flestalla leikskóla sem fyrirfinnast á Selfossi og nágrenni.
Einnig hefur verið farið á elliheimili og hjúkrunarstofnanir og
spilað fyrir vistmenn. Alls staðar var gerður góður rómur að
og allir skemmtu sér konunglega, börn og fullorðnir.
Nýlega er kominn út geisladiskur frá félaginu. Diskurinn heitir
Vangaveltur eftir samnefndu lagi Þorsteins Guðmundssonar
(Steina Spil). Á diskinum er mjög fjölbreytt efni, fslenskt og
erlent, flutt af hljómsveit félagsins og nokkrum einleikurum.
Birgir Hartmannsson leikur eigið lag, Kvöld við Úlfljótsvatn.
Frfmann Helgason leikur Horft í eldinn, en það lag samdi Helgi
Eyjólfsson faðir Frímanns. Guðmundur ÆgirTheodórsson leikur
Tarantella France. Útsetningar velflestra laganna á diskinum
gerði Helgi E. Kristjánsson, sem einnig annaðist upptökur,
hljóðblöndun og frágang disksins.
Næsti viðburður félagsins verður svo útileguhátíð í Básnum í
Ölfusi helgina 7.-9. júní næstkomandi.
Birgir Hartmannsson
Frímann Helgason
Guðmundur Theodórsson
6