Harmonikublaðið - 01.05.2013, Qupperneq 7
HARMONIKAN
ILEIKSKOLUM LANDSINS
Gudrun Guðjonsdottir, HialmarÞorJóhann
inarsdottir
Eftir
me
engy
Við óskuðu
lísabetH. I
1
lumyið einn frjálsan
að $nerta harmon-
ir að börnin lærðu
aráðuren við kæmum svo allirgætu
danssporum og hreyfingum
dans og að honui
ikuborðið og
lögin.textanaog
notið sín.
Við fengum á annan tugharmonikuleikara frá Félagi harmonikunn-
enda f Reykjavík og Harmonikufélagi Reykjavíkur til liðs við okkur
og höfum þegar heimsótt u.þ.b. 40 teikskóla, í Garðabæ, Hafnar-
firði, Kópavogi, Mosfellsbæ, Reykjavík og Seltjarnarnesi. Petta
var mjög ánægjuleg stund fyrir alla og sums staðar voru auglýst
harmonikuböll á teikskólunum. Börnin tóku vel undir í söng og
dönsuðu með og gleði skein á hverri brá. Mörg þeirra vissu að
Samband íslenskra harmonikuunnenda (S.Í.H.U.) er með verkefni
í gangi sem nefnist „Harmonikan í leikskólum landsins". Þetta
byrjaði árið 2009 þegar Harmonikufélag Reykjavíkur gerði samn-
ingvið Félagsstarfið í Gerðubergi um þátttöku íverkefninu „Kyn-
slóðirnar saman í Breiðholti“ og tóku nokkrir félagar í H.R. þátt f
því. Guðrún Guðjónsdóttir og Hjálmar Þ. Jóhannson héldu svo
áfram og heimsóttu fleiri leikskóla en sáu fljótt að þetta væri þeim
ofviða. Á haustfundi S.Í.H.U. á Laugum í Sælingsdal 2012 kom
tillaga frá Guðrúnu Guðjónsdóttur um að S.Í.H.U. tæki að sér að
kynna harmonikuna á leikskólum landsins. Sú tillaga var samþykkt
samhljóða. Formaður S.Í.H.U. Gunnar Kvaran brást heldur betur
vel við enda hafði hann ásamt nemanda sínum, Bergþóru Jóns-
dóttur, heimsóttnokkra leikskóla. Gunnarkynntist þvíverkefninu
og gerði sér Ijóst gildi þess að kynna harmonikuna á leikskólum
því „lengi býr að fyrstu gerð.“ í byrjun janúar bað hann undirritaðar
að hafa umsjón með þessu verkefni og hittumst við yfir kaffibolla
í janúar og lögðum á ráðin um framkvæmdina.
Fyrsta verk okkar var að semja bréf sem við sendum öllum for-
mönnum harmonikufélaganna í lok janúar og þar var verkefnið
kynnt og sagt frá kveikjunni að því. Við báðum um ábendingar
þar sem bréf til leikskólastjóra yrði sent u.þ.b. viku síðar. Engar
athugasemdirvoru gerðarsvo við sendum bréftil leikskólastjóra
um land allt. Við buðum þessar heimsóknir til leikskólanna að
vori og hausti, þeim að kostnaðarlausu og lögðum áherslu á að:
Við teljum harmonikuna menningararf sem ekki megi glatast í
tölvuheiminum. Samræmd dagskrá var í boði fyrir allt landið:
Skósmfðadansinn (Fyrst á réttunni), Óti skans, Karl gekk út um
morguntíma (fingrapolki) og Kátir voru karlar, með viðeigandi
Leikskolabörn i leikskolanum Vmagerdi
hljóðfærið héti harmonika. Þau pössuðu líka velað við spiluðum
öll lögin sem þau höfðu æft. Allir harmonikuleikararnir höfðu mikla
ánægju af heimsóknunum enda eru börnin og starfsfólkið miklir
gleðigjafar og börnin svara eins og þeim einum er lagið. Á nokkrum
leikskólum var skipt í tvær deildir og þá spilað fyrir yngri og eldri
deild sama dag.
Formenn landsbyggðarfélaganna sáu um framkvæmdina úti á
landi. Þar óskuðu margir leikskólar eftir heimsóknum og harmon-
ikuleikarar víða um land hafa orðið við þeim beiðnum. Þar sem
ekki eru starfandi félögvarfundinn harmonikuleikari sem bjarg-
aði málum. Við höfum fengið fréttir af góðum undirtektum á
landsbyggðinni og almenn ánægja er þar með þetta framtak. Víða
má sjá umfjöllun um heimsóknirnar í bæjarblöðum og á sfðum
leikskólanna.
Áætlað er að verkefnið haldi áfram í haust og þá verður bætt við
fleiri lögum. Við viljum nota tækifærið og koma þakkarkveðjum
til ykkar allra sem hafa komið að verkefninu.
Með harmonikukvedju frá okkur,
Elísabet H. Einarsdóttir og Guðrún Guðjónsdóttir.
Guðrún Guðjónsd
harmonikuna
leikskólabarn að athuga
7