Harmonikublaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 8
FRETTIR OG HUGLEIÐINGAR UR HUNAÞINGI
Nú líður óðum að hinum árlegu sumarhá-
tíðum hjá okkur harmonikuunnendum um
land allt.
Við Húnvetningar og Dalamenn hófum atvöru
undirbúning með fundi í byrjun aprílmán-
aðar, vegna fjölskylduhátíðinnar f Ásbyrgi.
Pessi fundur var með allra skemmtilegasta
móti, því Nikkólína bauðst til að koma til
okkar Húnvetninga á fund í Ósbæ og leika
síðan fyrir dansi á eftir. Við í H.U.H. eigum
nefnilega húsnæðið Ósbæ, að Þverbraut 1 á
Blönduósi, en Nikkólína hefur hreint frábæra
hljómsveit að bjóða. Það er skemmst frá því
að segja að úr þessu varð hin besta
skemmtun, fundur hófst um klukkan sex,
síðan borðuðum við saman að loknum fundi
klukkan sjö og fórum að dansa klukkan átta
og var dansað af miklum móð til klukkan
ellefu. Gestir okkar þetta ágæta kvöld voru
ásamt stórsveit Nikkólínu, félagar úr dans-
klúbbnum Hvelli f Skagafirði og tryggir dans-
félagar úr Húnaþingi. Þökkuðum við öllum
þessum góðu gestum fyrir komuna með
kaffihlaðborði á eftir.
Dagskráin íÁsbyrgi verðurmeð hefðbundnu
sniði 14.-16. júnf, það er stórsveit Nikkólínu
sem leikur fyrir dansi á föstudagskvöld. Kaffi
og skemmtidagskrá verður á laugardag og
hljómsveit Sveins Sigurjónssonar og ef til vill
einhverjir fleiri leika fyrir dansi á laugardags-
kvöldið.
Aðstaðan í Ásbyrgi er mjög góð, sturtur,
heitur pottur o.fl.
Annars er það að frétta af okkar litla félagi
H.U.H. að helsta starfsemin er rekstur
Ósbæjar, húsi H.U.H., sem byggist eingöngu
á sjálfboðavinnu og eljusemi örfárra félaga.
Við tókum einnig þátt í verkefninu Harmon-
ikan íleikskólum landsins, þar sem Jóhann
Viðar Aðalbjörnsson heimsótti leikskólana
á Húnavöllum, Blönduósi og Skagaströnd.
Jóhann Viðar hafði einnig með sér litlu nikk-
una sína og hjálpaði börnunum að spila á
hana. Heimsókn þessi tókst íalla staði mjög
vel, og kunnum við þeim er að henni stóðu
bestu þakkir fyrir.
En nú er sumarið loksins að birtast okkur,
eftir kaldan og langan vetur og væntum við
þess nú að fá gott sumar ekki aðeins veður-
farslega, heldur einnig hvað varðar okkar
frábæru harmonikuhátíðir um land allt.
Þessar hátfðir eru svo sérstakar, þar sem
allir þekkja alla og eru vinir, jafnvel áður en
þeir vita hvað fólkið heitir. Það eina sem
okkur vantar er að.unga fólkið komi til okkar
og kynnist því af eigin raun, hversu gefandi
og skemmtilegur félagsskapur þetta er. Af
því að því trúir enginn, nema sá sem kynnst
hefur því af eigin raun.
Þess vegna finnst mér eiga svo vel við þennan
félagsskap Ijóð Einars Kolbeinssonar, sem
ég læt fljóta hér með. Ljóðið heitir Vinir.
í garði lífsins gróa blóm,
sem glæða vorsins enduróm,
og göfga andans hlýja hljóm.
Hjartans efla rætur.
-Og blómstra síðan bæði daga og nætur!-
Þó að myrkrið sæki svart,
sölna blöðin þeirra vart,
áfram verða okkar skart.
Öllu böli hafna.
-í garði lífsins góðir vinir dafna!-
En blómin þurfa besta skjól,
þá brosa þau á móti sól.
öll sem þarna áður kól,
aldrei lifna aftur.
-Að eilífu er þrotinn þeirra kraftur!-
Því skal beðið vökva vel,
með virðingu ég albest tel.
Hlýlegt sýna hugarþel,
hjartans gleði fanga.
-í garðinum þá góðu blómin anga!-
Þannig getur lífsins leið,
lengst af verið okkur greið.
Eilfflega beðin breið,
birtu hjartað fylla.
-í kærleikshljóminn strengi okkar stilla!-
Einar Kolbeinsson, ortí desember 2001.
Sólveig Inga Friðriksdóttir
AF EYFIRÐINGUM
Frá því að vetrarstarfið byrjaði síðastliðið
haust hafa þríralmennirfélagsfundirverið
haldnir í húsinu okkar við Laxagötu. Á þeim
hafa félagar og gestir þeirra mætt til að
hlusta á harmonikutónlist, ræða saman og
gæða sér á kaffi og kökum. Félagarnir
skiptust á um að leika á hljóðfærin.
Leikfélag Akureyrar óskaði eftir samstarfi
við harmonikufélagið í október. í framhaldi
af því tóku sex félagar okkar þátt í leikritinu
Leigumorðingjanum, sem L.A. sýndi íleik-
húsinu í nóvember. í því var mikið leikið á
harmonikur og var aðsókn góð. Fyrir ára-
mót spiluðu nokkrir félagar þrjá laugardaga
í desember á Glerártorgi, eins og venja
hefurverið undanfarin ár.
Öðru hvoru í allan vetur hefur félagið staðið
fyrir heimsóknum í leikskóla bæjarins, þar
sem félagsmenn hafa skipst á um að kynna
harmonikuna og leikið fyrir börnin. Börnin
hafa fagnað þessum heimsóknum vel og
bæði sungið og dansað af krafti eftir hljóð-
fallinu.
Á vordögum fóru átta félagar að æfa kirkju-
tónlist, og tóku í framhaldi af því þátt í
harmonikumessu sem haldin var í Akur-
eyrarkirkju undir stjórn séra Svavars Jóns-
sonar. Við messuna var leikið undir sálma-
söng safnaðarins sem Petra Björk Pálsdóttir
stjórnaði. Harmonikufélagar léku einnig
fyrirdansi sem þjóðdansafélagiðVefararnir
stóðu fyrir undir messunni, en þeir fengu
söfnuðinn til að hreyfa sig í takt við tónlist-
ina. Góður rómur var gerður að þessari
nýbreytni og eru því líkur á að hún muni
verða endurtekin síðar.
Auk alls þessa hafa átta dansleikir verið
haldnir fvetur f Lóni við Hrísalund. Þeirhafa
að jafnaði verið vel sóttir. Síðasti dans-
leikurinn var á harmonikudaginn sem hófst
með tónleikum og kaffihlaðborði. Þar komu
fram þrjú ungmenni úrtónlistarskóla Akur-
eyrar ásamt kennara sínum, Ingva Vaclav.
í framhaldi af því léku nokkrir af félags-
mönnum okkar.
Filippía Sigurjónsdóttir
8