Harmonikublaðið - 01.05.2013, Page 9

Harmonikublaðið - 01.05.2013, Page 9
NIKKÓLÍNA ENN UNG í ANDA Þó Nikkólína sé komin vel á fertugsaldurinn er hún ung í anda og heldursínu striki. Haldið var upp á Harmonikudaginn með því að spila fyrir heim- ilismenn á Silfurtúni í Búðardal 9. maí á degi aldraðra. Starfsemin ívetur hefurverið með hefðbundnum hætti, æfingar á 2ja vikna fresti þegar því var við komið. Félagið hefur aðstöðu tilæfinga íhúsnæðiTónlistardeildarAuðarskóla ogá æfingunum er bæði spilað og spjallað og alltaf eru bornar fram veitingar. Ásmundur Einar Daðason þingmaður hélt upp á 30 ára afmæli sitt 20. okt sl. í Dalabúð og fékk Nikkólínufélaga til að halda uppi fjöri á dansleik eftir hefðbundin afmælisatriði og var þar mikið fjör og dansað af krafti. í veislunni var m.a. boðið upp á eiturgrænan drykk og tilgangurinn eflaust sá að snúa sem flestum til réttrar trúar. Sagan segir að sumir hafi pissað grænu í marga daga á eftir, allt upp ívikul! Nikkólína fer öðru hverju og spilar fyrir heimilisfólk á dvalar- heimilunum, en þau eru 3 á svæðinu: Hjúkrunarheimilið Fellsendi í Miðdölum, Silfurtún í Búðardal og Barmahlíð á Reykhólum. Nikkólínufélögum er ákaflega vel fagnað í þessum heimsóknum og er oft bæði dansað og sungið með. Jörvagleði, menningarhátíð Dalamannavarhaldin um sumarmálin með fjölbreyttri dagskrá ítali ogtónum ogmargskonarsýningum. Þar kom Nikkólína fram á kosningagleði í Dalabúð laugardaginn 27. apríl ásamt fjölda tónlistarfólks úr Dölum og ungu fólki úr Ólafsvík að ógleymdum Páli Óskari sem tók nokkur lög á kosn- ingagleðinni oghéltsíðan dansleiksíðar um kvöldið. Að lokinni setningu Jörvagleði á Sumardaginn fyrsta fóru nokkrir félagar úr Nikkólínu og spiluðu í Barmahlíð á Reykhólum, en þar var haldið upp á 25 ára afmæli dvalarheimilisins. Nú stendur yfir sauðburður í sveitum í Dölunum eins og um allt land. Á meðan liggja æfingar niðri því flestir spilarar tengjast sveitabúskapnum á einn eða annan hátt. En ekki má taka langt hlé því 14. - 16. júnf halda Nikkólína og Harmonikuunnendur í Húnavatnssýslum Harmonikuhátíd fjölskyldunnará Laugarbakka íMiðfirði. Af þvítilefni buðu Húnvetningarokkurá undirbúnings- fund í Ósbæ á Blönduósi 6. apríl og tóku þar höfðinglega á móti okkur með kaffiveitingum og síðar kvöldmat eftir fundinn. Nik- kólfna spilaði síðan fyrir dansi í 3 tíma og mættu þar félagar úr dansklúbbnum Hvelli og fólk frá Blönduósi og sveitunum f kring. Að loknu dansiballi buðu Húnvetningar síðan öllum viðstöddum í kaffi og meðlæti svo allir fóru saddir og sælir heim. Nikkólínu- félagar hlakka til að eiga góða helgi með vinum sínum Húnvetn- Nikkólína spilar fyrir heimilisfólk og gesti ítilefni Harmonikudagsins Gestir njóta veitinga á Silfurtúni í boði kvenfélagsins Þorgerðar Egilsdóttur Ríkarður, Halldðr, Jón, Melkorka og Jóhann. Á myndina vantarÁsgerðiJónsdóttur ingum og vona að sem flestir harmoniku- og dansunnendur sjái sér fært að mæta og skemmta sér með þessum góðu nágranna- félögum. Ásgerður og Melkorka. Gód stemning var á Silfurtúni á degi aldradra 9

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.