Harmonikublaðið - 01.05.2013, Side 10
HARMONIKUMEISTARINN 2013
Keppnin um Harmonikumeistarann 20i3fórfram íTónlistarskóla
Garðabæjar laugardaginn 13. apríl. Til keppninnar hafði verið
boðað með dágóðum fyrirvara, en þrátt fyrir það var þátttakan
minni en vonast hafði verið til.
Til keppninnar mættu níu keppendur. Fimm íyngsta flokknum
og fjórir í miðflokki. Að þessu sinni skráðu sig engir í efsta flokki
og olli það miklum vonbrigðum. Fyrir þremur árum voru þrettán
þátttakendur í þremur flokkum. Kynjaskipting var nokkuð jöfn
núna, fimm piltar og fjórar stúlkur. Sú breyting var frá þeirri keppni
að nú sáu keppendur alfarið um lagavalið, en engin skyldulög
komu frá keppnisstjórninni. Þetta var gert til að auka á fjöl-
breytnina í lögunum, en það getur verið þreytandi að hlusta á
sama lagið íannað hvert skipti, heila keppni. Til að dæma keppn-
ina voru fengnir þeir Einar Guðmundsson, Reynir Jónasson og
Sigurður Alfonsson, Sigurður forfallaðist á síðustu stundu og
hljóp þá Reynir Sigurðsson í skarðið. Allt eru þetta valinkunnir
heiðursmenn.
Sigurvegari varð 15 ára gamall Reykvíkingur, Bergmann Óli Aðal-
steinsson, eftir jafna keppni. Bergmann Óli lékfyrst Ungverskan
dans nr. 5 eftir Brahms og síðan Czardas eftir Monti. í yngri
flokknum sigraði 11 ára gamall Suðurnesjamaður, Sigmar Frið-
riksson, nemandi German Khlopin í Keflavík. Sigmar lék ítalska
þjóðlagið Santa Lucia og Oh Susanna eftir Foster. Var sigur hans
nokkuð öruggur. Milli sextíu og sjötíu áhorfendur mættu og
skemmtu sérvel við að fylgjast með þessum ungu harmoniku-
leikurum spreyta sigá sviði í alvöru keppni.Sigurvegararnirfengu
áletraðan skjöld auk viðurkenningarskjals fyrir þátttökuna, sem
allir keppendur fengu. Það var skemmtilegt að fylgjast með kepp-
endunum ungu. Þeir tóku þessu af mismikilli alvöru, en ekki fór
á milli mála að allir gerðu sitt besta. Verður fróðlegt að fylgjast
með þeim í framtíðinni.
Eins og áður sagði kepptu fjórir í miðflokknum þ.e. 13-16 ára.
Þrír af þeim voru með íyngsta flokknum 2010. Þá voru tveir kepp-
endur í miðflokki og þrfr í elsta flokknum. Sú breyting sem orðið
hefur á þessum þremur árum er hins vegar alvarlegt mál, sem
þarfnast skoðunar. í keppninni 2010
sendu átta kennarar þrettán nemendur.
Nú sendu tveir kennarar níu nemendur,
þar af annar þeirra Helga Kristbjörg Guð-
mundsdóttir átta. German Khlopin sendi
einn. Keppendum hafði sem sagt fækkað
um fjóra, en kennurum, sem sendu kepp-
endur, um sex. Þarna er á ferðinni þróun,
sem ekki lítur allt of vel út. Það er þó örlítil
huggun að samkvæmt upplýsingum kenn-
ara, eru margir nemendur í tónlistar-
skólum, sem vonast má eftir í næstu
keppni.
Harmonikumeistarinn 2013, Bergmann Óli Aðalsteinsson tekur vid sigurlaununum.
Sigurvegarinn íyngri en tólfára flokknum Sigmar Fridriksson tekur við sínum sigur-
launum. Myndir: Sigurður Harðarson
Hér fylgir listi yfir alla keppendur og keppnislög þeirra.
12 ára ogyngri Lög Höfundar
Breki Halldórsson Bachmann James Bond Monty Norman
Fram í heiðanna ró Þjóðlag
Freyja Þórisdóttir Krummavísur The Can Can íslenskt þjóðlag
Tinna Chloé Kjartansdóttir Stóra Skrúðgangan Palmer-Hughes
Vieni sul mar ítalskt þjóðlag
Katla Steinþórsdóttir The caissons go rolling along Vive l’amour. E.C.Gruber
Sigmar Friðriksson Santa Lucia ítalskt þjóðlag
Oh Susanna Steven Foster
13-16 ára Lög Höfundar
Iðunn Pálsdóttir Stef úr Ungverskri Rapsodíu nr. 2 F. Lizt
Pachelbel canon Johann Pachelbel
Runólfur Bjarki Arnarsson Indifference E. Murena
Czardas Mont
Ingimarjónsson La Cucaracha Þjóðlag
Bergmann Óli Aðalsteinsson Comedians’ dance G. Kabalevsky
Ungverskur dans nr. 5 J. Brahms
Czardas Monti
10