Harmonikublaðið - 01.05.2013, Qupperneq 18
TÓNLEIKAFERÐ 2012 - JÓN ÞORSTEINN REYNISSON
í maí 2012 fór ég í hringferð um landið sem mun verða mér
ógleymanleg fyrir margra hluta sakir. Tilefnið var að halda
tónleika fyrir landsmenn og safna með því bæði reynslu og
örlitlum fjármunum fyrir væntantegt nám í Det Kongelige Danske
Musikkonservatorium um haustið. Með í för voru kærastan
Raketog Borsini harmonikan en þærgegndu báðarveigamiklu
hlutverki í ferðinni. Rakel sem áður hafði hannað atlt sem
varðaði auglýsingar, tónleikadagskrá og vefsíðu, gegndi hlut-
verki miðasöludömu, bókhaldara og alhliða aðstoðarkonu
harmonikuleikarans. Harmonikan sá svo nokkurn veginn um
rest. Auglýstir voru 17 tónleikar á 14 dögum og myndi ég byrja
og enda hringinn í mínum skagfirsku heimahögum.
Miðvikudaginn 2. maí hélt ég upphafstónleika ferðarinnar í
Hofsósskirkju. Það var byrjað af krafti, en ég spitaði megnið
af prógramminu tvisvarþví um helmingurtónleikagesta mætti
hálftíma of seint vegna villu í auglýsingu sem borin var inn á
öll heimili í firðinum. Það var þvf gott að fá hvíld daginn eftir.
Föstudaginn 4. maí keyrðum við til Siglufjarðar þar sem hin
volduga kirkja bæjarins beið í öllu sínu veldi. Einu sinni áður
hafði ég spilað í Siglufjarðarkirkju og líkaði það afar vel og
ekki varð ég heldur fyrir vonbrigðum f þetta skiptið.
Laugardaginn 5. maí hélt ég tónleika ísalnum Hömrum í Menn-
ingarhúsinu Hofi kl. 14. Ég hitti þvf miður ekki vel á með tíma-
setningu því að á sama tíma var Harmonikufélag Eyjafjarðar
með tónteika annars staðar í bænum ítilefni af harmonikudeg-
inum. Að tónieikum loknum keyrði ég austur f Breiðumýri þar
sem ég spilaði um kvöldið. í húsið mættu áheyrendur sem
búnir voru að hlusta á harmonikutónlist allan daginn. Þingeysk
þrautseigja.
Sunnudaginn 6. maí keyrðum við til Egilsstaða og spitaði ég f
Egilsstaðakirkju kl. 14. Eftir tónleika héldum við svo áfram í
örlítilli snjókomu til Eskifjarðar þar sem tónleikar í Menningar-
miðstöðinni á Eskifirði voru á dagskrá kl. 17. Ég get fullyrt að
það hús er eitt af bestu tónleikahúsum á landinu.
Mánudaginn 7. maí tókum við daginn snemma og keyrðum af
stað áleiðis til Hafnar í góðu veðri enda löng leið framundan
og margt fallegt að skoða. Á Höfn hittum við beint inn á nem-
endatónleika tónlistarskólans þar sem mér var boðið að taka
eitt lag í lokin til að auglýsa tónleikana mína sem ég hélt í
Hafnarkirkju um kvöldið.
Þriðjudaginn 8. maí tókum við aftur daginn snemma og nýttum
hann til að skoða það sem hið faltega Suðausturland hefur
upp á að bjóða. Tókum við okkur góðan tíma við jökulsárlón
og skelltum okkur í siglingu. Áfram lék veðrið við hvurn sinn
fingur. Um kvöldið spilaði ég ÍVfkurkirkju.
Miðvikudaginn 9. maí sváfum við út og skelltum okkur svo í
smá skokk um staðinn. Það var gott að fá ferskt sjávarloftið í
lungun, maður var endurnærður þegar við héldum ferð okkar
áfram. Um kvöldið spilaði ég í Safnaðarheimilinu á Hellu og
eftir gott eftirtónleikaspjall keyrðum við svo áfram í Reykholt
þar sem við gistum yfir nóttina.
Fimmtudaginn 10. maí notuðum við að mestu leyti til afslöpp-
unar í góðu yfirlæti gestgjafanna. Um kvöldið hélt ég svo
tónleika f Skálholtsdómkirkju, sem er ekkert annað en stór-
mögnuð upplifun, ótrúlegt tónleikahús.
Föstudaginn 11. maí voru áætlaðir tónleikar í Ytri-Njarðvíkur-
kirkju. Það er skemmst frá því að segja að tónleikagestir voru
3 talsins. Það hafði nefnilega fyrirfarist auglýsing sem átti að
birtast íVíkurfréttum og því fátt um aðrar auglýsingar á svæð-
inu, réttara sagt engin. En þessir þrír gestir voru ómetanlegir
og ber ég þeim miklar þakkir fyrir að mæta.
Laugardaginn 12. maí hélt égtónleika ÍTónbergiáAkranesi kl.
14. Það var alveg ný upplifun fyrir mig að spila í því húsi og
frábrugðið öllu því sem ég hef áður prófað, en þar er hægt að
stilla hljómburð í gegnum tölvu. Þvínæst var ferðinni aftur
haldið til Reykjavíkur og leikið í Fríkirkjunni í Reykjavík um
kvöldið.
Sunnudaginn 13. maí keyrðum við í bálhvössu veðri yfir f
Borgarnes þar sem ég spilaði í Borgarneskirkju kl. 16. Að þeim
loknum keyrðum við áfram áleiðis til Búðardals þar sem ég
ætlaði að spila í Hjarðarholtskirkju kl. 20:30. Misskilningur
hafði orðið með tímasetningu og þvf ekki búið að kveikja upp
í kirkjunni fyrr en klukkutíma fyrir tónleika. Hitastig innandyra
því lágt. Gestirnir 3 settust á fremsta bekk og var nálægðin slík
að þeir hefðu ekki þurft nema að teygja sig fram úr sætinu til
þess að snerta harmonikuna. Við vorum því ekki nema 5 í
kirkjunni, ég, Rakel og gestirnir. Þetta skapaði hinsvegar ótrú-
lega sérstaka og notalega stemningu sem ég mun aldrei gleyma.
Mánudaginn 14. maí var komið að næstsíðustu tónleikunum
og voru þeir haldnir í Hvammstangakirkju. Eftir tónleika
keyrðum við svo áfram norður á Sauðárkrókogvartilfinningin
góð að vera komin aftur heim.
Þriðjudaginn 15. maí spilaði ég svo lokatónleika þessarar fyrstu
tónleikaferðar minnar um landið í Frímúrarasalnum á Sauðár-
króki. Tónleikarnir heppnuðust vel og var tilfinningin frábær
að þeim loknum að hafa lokið við þetta markmið sem við settum
okkur. Kvöldið var svo fullkomnað þegar kom í Ijós að fyrir
tilstuðlan Rakelarogmömmu minnarvoru léttarveitingaróvænt
f boði fyrir tónleikagesti og mig.
Þessi ferð var stórskemmtileg og mögnuð lífsreynsla, en einnig
mikill lærdómur. Allur undirbúningur ferðarinnar var eitthvað
sem ég var að fást við í fyrsta skipti og mun ég gera margt
öðruvísi næst þó svo að margt hafi heppnastvelíþetta skiptið.
En mest um verð þykir mér hinsvegar sú reynsla sem ég öðlað-
ist sem tónlistarmaður.
Að lokum vil ég þakka öllum þeim sem studdu mig og hjálpuðu
í þessari ferð. Það fjölmarga fólk sem kom á tónleikana og
einnig það sem á annan hátt styrkti mig bæði með orðum og
gjörðum. Án þeirrar hjálpar hefði þetta aldrei verið mögulegt.
Kærar þakkir til ykkar allra
.Jón Þorsteinn Reynisson, harmonikuleikari.
18