Harmonikublaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 24

Harmonikublaðið - 01.05.2013, Blaðsíða 24
ÓlafurTh. Ólafsson Höfundur Vals íBreiðfirdingabúð er ÓlafurTh. Ólafsson listamaður á Selfossi, sem fædd- ist í Reykjavík 3. október 1936. Lagið samdi hann árið 1955 en það hefur ekki birst áður á prenti. Vals íBreiðfirðingabúð hefur náð nokkrum vinsældum og heyrist oft í útvarpi hins hugsandi manns. Þegar Ijúflingurinn Gfsli Brynjólfsson lék inn á hljómdisk sinn á Selfossi árið 2008 þótti tilheyra að valsinn eftir góðvin hans yrði með, enda lagið sérlega fallegt. ÓlafurTh. hefurleikið á harmoniku um árabilogvareinn afstofnendum Harmon- ikufélags Selfoss árið 1991, en þangað flutti hann 1965. Frægð hans og frami liggja þó í öðru en tónsmíðum. Hann er myndlistarmaður af bestu gerð og hefur sem slíkur komið að mörgu sem varðar harmonikuunnendur og félög þeirra. Þá hefur hann haldið ótal sýningar á verkum sínum. ÓlafurTh. er kvænturSigrúnu Gyðu Sveinbjörnsdótturogeiga þau þrjár dætur og einn son, en annan son misstu þau fyrir sjö árum. Ótafur Th. Ólafsson. 24 Ritstjórinn

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.