Harmonikublaðið - 01.05.2013, Qupperneq 26

Harmonikublaðið - 01.05.2013, Qupperneq 26
HARMONIKUDAGURINN í FÉLAGSHEIMILINU Á ÞINGEYRI4. MAÍ 2013 Harmonikudagurinn sem Samband íslenskra harmonikuunnenda ákvað að halda árlega, var haldinn í umsjá Dýra- fjarðardeildar í Harmonikufélagi Vestfjarða en deildin nefnirsigHarmonikukarlarnirog Lóa og nú síðar með styrkri aðstoð okkar góðu söngkonu Eddu Arnholtz og hljóm- borðsleikarans snjalla Lína Hannesar á Þingeyri, en Dýrafjarðardeildin hefur séð um framkvæmd Harmonikudagsins frá upp- hafi með góðri aðstoð félaga og áhuga- fólks úr nærliggjandi byggðarlögum. Harmonikudagurinn 4. maí rann upp og ekki var veðrið hagstætt til ferðalags, hífandi rok, rigning og slyddubylur til fjalla og því læddist að manni ótti um að veðrið myndi draga úr áhuga fólks til ferðalags, enda fréttist það síðar að svo hafi verið. En nú sannaðist máltækið kunna „þegar neyðin er stærst þá er hjálpin næst“. Þannig var að 40 manna hópur ferðafólks frá Reykjavík, sem stundar fjallaferðir, var staddurá HótelNúpi. Fólkið hafði búiðsig út og lagði af stað til göngu á Lambadalsfjall en varð að snúa við vegna veðursins. Undirritaður var svo heppinn að hitta nokkra úr ferðahópnum er þau komu að Núpi rétt fyrir hádegið hálf vonsvikin út af veðráttunni og sagði ég þá við formann ferðahópsins að nú væri ekkert annað að gera en að skella sér á skemmtun Harmon- ikudagsins sem væri kl. 15:00 nú í dag, í félagsheimilinu á Þingeyri. Þessu var vel tekið og þegar komið var að setningu skemmtunarinnarvarorðinn húsfyllirm.a. fyrir komu ferðahópsins svo og að sjálf- sögðu frá heimabyggð og nærliggjandi byggðarlögum. Dagskráin hófstáávarpi formannsHarmon- ikufélags Vestfjarða, Karitasar Pálsdóttur. Mæltist henni vel að vanda, lýsti starfi félagsins og hvatti félagsmenn sem og aðra samkomugesti að standa vörð um áfram- hald ogvelgengni harmonikutónlistarinnar. Næst kom fram stóra bandið þ.e. Harmon- 26 ikukarlarnir og Lóa, í bandinu eru vanalega ellefu harmonikuleikarar, en nú var skarð fyrir skildi því þrír úr hópnum voru fjar- verandi þar á meðal sjálfur meistarinn og stjórnandi hópsins frá upphafi Guðmundur Ingvarsson, en með góðri og styrkri aðstoð þeirra Eddu og Lína Hannesar, sem hér áður ergetið.tókst bandinu ágætlega aðskila sínu hálftíma prógrammi. Næst steig á pall Baðstofubandið. Hér er um að ræða nokkuð sérstætt fyrirbæri sem þarf skýringarvið. Upphaflega kombandið fram á Harmonikudeginum sl. ár en var þá ekki fullskipað sem nú erorðið. Þannigvar að þrenn hjón úr Harmonikufélagi Vest- fjarða hafa komið saman nokkrum sinnum og gripið í tiltæk hljóðfæri sér til skemmt- unar. Nöfn manna og hljóðfæra eru þannig: Sigurður Fr. frá Þingeyri ogÁsvaldurá Núpi leika á diatóniskar harmonikur, Frosti frá Súðavík leikur á kassat- rommu, Sigurða kona Sig- urðar Fr. leikur á þvotta- bretti, Björg kona Frosta leikur á skeiðar og Gerða kona Ásvaldar leikur á hristur. Var þetta heldur sjaldheyrð hljóðlist sem kom frá bandi þessu, en af viðbrögðum fólks var auð- heyrt að það hafði gaman af þessu uppátæki. Næsta atriði var að Árni Brynjólfsson bóndi á Vöðlum í Önundarfirði steigá svið með nikkuna á barmi. Sagði hann á skemmtilegan hátt í tali og tónum, af glímu sinni við stóru nikku föður síns allt frá átta ára aldri og sfðar er hann eignaðist eigin harmoniku. Þess má geta að Brynjólfur faðir Árna var vinsæll og þekktur harmonikuleikari á dansleikjum hérí nærsveitum íyfirfjörutíu árum miðbiksíðustu aldar. Ennfremurvar hann kirkjuorganisti við góðan orðstír í heimabyggð og víðar um langt árabil. Árni fetaði í fótspor föður síns hvað dans- músikina varðar, stofnaði ásamt félaga sínum Birki Þór frá Hrauni á Ingjaldssandi danshljómsveit er þeir nefndu Rokkbændur og stóðu þeir félagar fyrir dansleikjahaldi í heimabyggð og víðar um árabil við almennar vinsældir. Árni stofnaði síðan, ásamt konu sinni Ernu, danshljómsveiterþau nefndu Hjónabandið og hafa þau skemmt fólki á dansleikjum í heimabyggð ogvíða um land með Ijúfum söng og spili um langt árabil, notið mikilla vinsælda og eru enn að. En núvarkomiðað næstaatriði. Árni kall- aði fram hóp ungmenna sem kalla sig Vaðlabandið, en það samanstendur af Baðstofubandið. Mynd: Karítas Pálsdóttir nánasta ætt-og venslafólki hans og er hann stjórnandi þess. í bandinu eru sex manns, tvær stúlkur syngja, hljóðfærin eru harmonika tromma, gítar, banjó og fiðla. Sérstaka athygli vakti fiðluleikarinn, korn- ungstúlka systurdóttirÁrna semlék undra- vel á fiðluna og það sem meira er, fiðlan er smíðuð af fósturföður hennar, Jóni Sig- urðssyni á Þingeyri, sem er listilega flinkur hljóðfærasmiður. Vaðlabandið gerði stormandi lukku og greinilegt að áheyrendur kunnu vel að meta þessa Ijómandi vel frambornu músikveislu. Nú var komin stóra stundin, stórspila- meistararnir frá ísafirði stigu á sviðið en þeir eru, eins ogvið félagar þeirra f H. Vest. köllum þá, nefndir B.M.V. tríóið eða bandið og eru þeir Baldur Geirmunds, Magnús Reynir, Villi Valli og Hólmgeir Baldursson. Allir eru þessir menn bráðflinkir músik- meistarar og töfruðu þeir nú fram danslög af öllum gerðum, enda þusti fólk á dans- gólfið og var dansað af fullum krafti þrátt fyrir lítið gólfpláss. Fór nú saman gæði, gleði og góður andi og að lokinni þriggja kortera spila- og danslotu og marguppldappaða beiðni um meira spil brast á lokalagið og hljómsveitinni þakkað fyrir frábæra skemmtun með þéttu og sterku lófaklappi. Síðasta atriði á þessari ágætu skemmtun var að allir hljóðfæraleikarar er fram komu á samkomunni stigu á svið og léku uppá- haldslag okkar í Dýrafjarðardeild Harmon- ikufélags Vestfjarða, „Nú blika við sólar- lag“ og þannig lauk þessari prýðisgóðu samkomu. Að lokum vil ég fyrir hönd Harmonikufélags- Vestfjarða og Dýrafjarðardeild H.V. þakka öllum samkomugestum kærlega fyrir kom- una sömuleiðis kærar þakkirtil allra þeirra fjölmörgu sem komu á svið og skemmtu bæði með söng og spili. Sérstakar þakkir til þeirra sem sáu um undirbúning fyrir samkomuna, þeirra Sigurðar Fr.Jónssonar og Bernharðar Guðmundssonar svo og til Jóns Sigurðssonar húsvarðar sem lánaði magnara og hátalarakerfi og sá um stillingu þess meðan á hljómflutningi stóð af sinni alkunnu smekkvísi. Síðast og ekki síst er konunum í kvenfé- laginu Von á Þingeyri færðar kærar þakkir fyrir kaffiveitingar ásamt þeirra rómaða meðlæti, vöfflum með rjóma og sultu, sem samkomugestir kunnuvelað metaognutu í bland við alla músikveisluna. Hér með er lokið frásögn af skemmtana- haldi á Harmonikudeginum á Þingeyri sem heppnaðist í alla staði vel. Ásvaldur I. Gudmundsson ritari Harmonikufélags Vestfjarda A

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.