Reykjavík - 05.01.2013, Síða 6
5. janúar 20136
· Nautakjöt í ostrusósu
· Núðlur með grænmeti
· Kjúklingur í karrýsósu
· Djúpsteiktar rækjur
með súrsætri sósu
25 ÁR
Heimsent:
1.590 kr. + 900 kr. heimsendingargjald
MatuR
Andrea Guðmundsdóttir mat
gæðingur í Listaháskóla Íslands
býður lesendum Reykjavíkur
upp á forvitnilegar uppskriftir
frá öllum heimshornum.
Myndir: Ylfa Eysteinsdóttitr
Spánn
Gleðilegt nýtt ár! Hér kemur öðru-
vísi uppskrift af humarsúpu.
Við fjölskyldan erum á Spáni yfir
jól og áramót, eins og svo oft
áður og þetta var áramótasúpan
okkar. Þetta er humarsúpa med
hrísgrjónum og
kryddpylsu, sem er harla óvenju-
legt, en er sérstaklega gott.
Ég geri mér grein fyrir því að hér
er hráefnið miklu ódýrara en
heima,og þess vegna gat ég leyft
mér ad kaupa inn miklu meira
magn af humri.
Skeljarnar og reyndar allt á humr-
inum lét ég síðan sjóða niður,
lengi lengi.
Jæja hér kemur uppskriftin.
Fyrir fjóra
Olía og smjör, til ad steikja
uppúr
5 gulrætur, gróft saxaðar
3 stórir sellerístilkar
3 vænir laukar, gróft saxaðir
2 msk. tómapúrra
5 hvítlauksrif, röspuð
rúmlega 1 l. fiskikraftur (ten-
ingar og vatn)
hálf tsk. saffran
hálf tsk. karrí
hálf til ein tsk. chili duft, eftir
smekk
þrír bollar hvítvín
2 pelar rjómi
fullt, fullt af steinselju
hálf sítróna
salt og pipar
hálfur bolli hrísgrjón (Basmati)
sítrónubörkur
kryddpylsa, eftir smekk, skorin í
litla bita
Jæja, gulrætur, sellerí, laukur og
tómatpúrra eru steikt í olíunni og
smjörinu í smástund, ca. tíu mín. Þá
er hvítlaukurinn settur út í,
hvítvínið og fiskikraftslögurinn.
Þetta er látið malla og malla, ca.
klukkutíma.
Skeljarnar eru steiktar fyrst á pönnu
og síðan fer vatnið, steinseljan og
jafnvel meira hvítvín og sítrónan
(skorin í tvennt) út í. Leyfið þessu að
malla jafnlengi og súpugrunnurinn.
Í lokin eru grænmetið og skeljarnar
sigtað frá, krafturinn af skeljunum
fer saman við súpugrunninn.
Hrísgrjónin og kryddpylsan fara
þá út í og eftir ca. tíu mínútur fer
rjóminn út í. Saltið og piprið ef þarf.
Humarinn fer allra síðast út í. Súpan
er borin fram með ferskri steinselju
og sítrónuberki.
Góða skemmtun í eldhúsinu!
Áramóta-
súpan mín!