Reykjavík


Reykjavík - 23.02.2013, Blaðsíða 10

Reykjavík - 23.02.2013, Blaðsíða 10
23. febrúar 201310 Bílasmiðurinn hf, Bídshöfða 16, 110 R. S-5672330 www.bilasmidurinn.is Nýtt Nýr Recaro Young Sport 9–36 kg Útsölustaðir: BabySam Móðurást Fífa Brimborg Akureyri Bílabúð Benna - Dekkjaþjónusta Tangarhöfða 8 • Sími: 590 2045 Skiptib.: 590 2000 • www.benni.is Mætum vetri á réttum dekkjum Jeppa- og fj órhjóladekk í miklu úrvali umboðsmenn um land allt Jeppa- og  órhjóladekk Lágmarkslaun lögbundin, hækkun skattleysismarka, lækkun skatta Eins og Ísland er byggt upp í dag, þá eru það samtök atvinnu-lífsins, sem sjá að mestu um samninga um kaup og kjör. Höfundi finnst persónulega, að það megi auð- vitað velta því fyrir sér, hvort að það sé eðlilegt að þvinga fólk í sérstakt verkalýðsfélag, sem hafi einkarétt á velferð þess, þótt það ráði litlu sem engu í félaginu? Í lýðræðisþjóðfélagi ætti það að vera hverjum og einum frjálst að velja sér sitt félag eða þá að velja að standa utan þeirra. Það sama á líka við um lífeyrissjóðina, en það er furðulegt, að eigendur þeirra fari ekki með stjórn þeirra, heldur samtök atvinnulífsins, sem þurfa ekki að svara einum eða neinum um gjörðir sínar eins og dæmin sanna. Mér finnst líka að ríkisvaldið eigi að skipta sér sem allra minnst af kjarasamningum, en ríkið getur þó komið á góðu fordæmi til þess að tryggja þeim lægst launuðu lágmarks framfærslu. Lágmarkslaun og hækkun skattleysismarka XG Hægri grænir, flokkur fólksins, hefur sett sér að rétta kjör þeirra, sem verst eru settir ef hann verður kosinn til þess. Stefnan er að lögleiða hér lágmarkslaun, sem enginn launa- greiðandi má fara niður fyrir. Hug- myndin í dag er, að þetta lágmark fyrst um sinn verði kr. 240.000 á mánuði eða ca 1.400 krónur á tímann og að skattleysismörk verði einnig hækkuð eða í kr. 200.000 á mánuði. Þá vill flokkurinn afnema tekjutengingar Tryggingastofnunar ríkisins fyrir þá, sem þær þyggja, enda finnst honum þær óheiðarlegar og að fólk eigi að fá að njóta ráðdeildar sinnar eða dugn- aðar og sjálfsbjargarviðleitni. Almenn lækkun skatta og lækkun tryggingargjalds Flokkurinn vill einnig einfalda skatt- kerfið, sem er orðið æði flókið á köflum, svo venjulegt fólk fær varla skilið. Flokkurinn kallar stefnuna flatan 20/20, en í því felst að tekju- skattur á allt og alla verði flatur 20% og virðisaukaskattur 20% á allt nema matvæli, sem verði áfram 7%. Þessu markmiði vill flokkurinn ná fram í þrepum á 4 árum. Þá vill flokkurinn lækka tryggingargjald á fyrirtæki niður í 3% strax og styðja þannig við þau og möguleika þeirra til þess að ráða fólk í vinnu. Hægri grænir er flokkur fólksins Ofangreint verður fjármaganð með endurheimtum blóðpeninga hrægammanna, lækkun 100 millj- arða vaxtakostnaðar ríkissjóðs, réttri forgangsröðun og sparnaði annars staðar, eins og ég hef áður lýst í öðrum skrifum mínum. XG vill að hið op- inbera verði minnkað og að fólkið í landinu fái meira til sín og haldi meiru eftir. Hið opinbera á að þjóna fókinu, en ekki öfugt. Við eigum auðvitað að halda sameiginlegum kostnaði við rekstur ríkisins í því lágmarki, sem dugar fyrir velferð lítillar rúmlega 300 þúsund manna eyþjóðar, en ekki vera að glenna okkur um og of og reyna að líkjast þeim, sem stærri og vold- ugri eru. Höfundur er Kjartan Örn Kjartansson fyrrverandi forstjóri Stefnan er að lögleiða hér lágmarkslaun, sem enginn launagreiðandi má fara niður fyrir. seltjarnarnes: Fiðlan í forgrunni Guðný Guðmundsdóttir og Elisabeth Zeuthen Scnheider, sem eru meðal fremstu fið- luleikara Norðurlanda verða með tón- leika á morgun í Seltjarnarneskirkju ásamt píanóleikaranum Richard Simm. Áherslan verður á norræna tónlist, en efnisskráin verður fjölbreytt með verkum fyrir einleiksfiðlu, fiðludúó með og án píanóleiks. Sem kunnugt er, var Guðný fyrsti konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands í 36 ár, eða frá 1974 til 2010. Hún helgar sig núna tónleikahaldi og kennslu. Elisabeth Zeuthen Schneider er einn þekktasti fiðululeikari Danmerkur og hefur verið aðstoðarkonsertmeistari Konunglegu dönsku sinfóníuhljóm- sveitarinnar og Sinfóníuhljómsveitar danska ríkisútvarpsins. Hún kennir nú við Konunglegu listaakademíuna. Richard Simm er kennari og með- leikari við tónlistardeild Listaháskóla Íslands. Tónleikarnir hefjast klukkan 16. Margar gerðir af búningasilfri. Þetta er ódýrasta mynstrið. Allt sem þarf á upphlutinn, settið frá 90.530, kr. Allar upplýsingar um hefð og gerðir búninga eru veittar á staðnum. Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160. Sérverslun með kvensilfur

x

Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.