Reykjavík - 23.02.2013, Side 4
23. febrúar 2013
Færri innbrot, meira ofbeldi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sent frá sér tölur um afbrot í janúar. Þar kemur fram að inn-
brotum fækkaði um 18% á svæðinu í
janúar miðað við sama mánuði í fyrra
og þjófnuðum fækkaði um 5%. Hins
vegar fjölgaði eignaspjöllum um 5% og
ofbeldisbrotum fjölgaði um 7,5% miða
við janúar 2012. Þá fækkaði umferðar-
slysum um 10,5% milli ára.
Sé miðað við markmið embættis-
ins og tölur ársins 2013 bornar saman
við sama tímabil á árunum 2010 til
2012, sést að þjófnuðum fækkaði um
fimmtung, innbrotum um 36%, eigna-
spjöllum um 15%, ofbeldisbrotum um
4% og umferðarslysum um 19%.
Haltu áfram að læra svo lengi sem þú lifir
Í þriðja geðorðinu felst hvatning um að halda áfram að læra út lífið. Það hefur jákvæð áhrif á geðheilsuna
að vilja læra meira og halda áfram að
þroskast. Með opnum huga verður
auðveldara að sjá lausnir á vanda-
málum og þannig verður auðveldara
að takast á við þau vandamál sem upp
koma. Með því að horfa á nýjungar
opnum huga skapast einnig tækifæri
til að þroskast og efla sterku hliðarnar
og það stuðlar bæði að velgengni og
vellíðan. Það stuðlar að eigin þroska
að halda áfram að læra svo lengi sem
maður lifir. Ekki þykir eftirsóknavert
að staðna og þröngsýni telst síður en
svo til kosta. Til að koma í veg fyrir
stöðnun er mikilvægt að tileinka sér
víðsýni og takast á við lífið með já-
kvæðum og opnum huga.
Viljinn til að vera betri í dag en í
gær er drifkraftur persónulegs þroska.
Þröngsýni og andstaða við að temja
sér nýjungar hindrar þroska og sá
sem þannig hugsar forðast yfirleitt að-
stæður sem honum finnast ögrandi og
hann missir þar af leiðandi af tækifæri
til að þroskast.
Þeir sem hafa mikla reynslu á ein-
hverju sviði telja oft að þeir geti lítið
lært af öðrum. Langskólagengið fólk
telur til dæmis oft að það geti lítið lært
af þeim sem eru minna menntaðir og í
því er fólgin ákveðin þröngsýni. Það er
t.d. hægt að læra margt af fólki sem býr
yfir mikilli reynslu þó það hafi styttri
skólagöngu en maður sjálfur. Einnig
er hægt að læra margt af börnum. Þau
hjálpa okkur oft og tíðum að koma
auga á það sem mestu máli skiptir í
lífinu og kenna öðrum að meta það.
Sýn barna á heiminn er oft bæði skýr-
ari og betri en þeirra sem eldri eru og
því mikilvægt að vera opinn fyrir því
sem þau segja og læra af þeim.
Margir eiga einnig erfitt með að
læra af þeim sem standa þeim næstir,
s.s. foreldrum, maka, systkinum og
vinum. En þetta er fólkið sem í flestum
tilfellum þekkir okkur best og því mik-
ilvægt að læra af því eins og öðrum. Af
þessu fólki getum við lært margt um
það hvernig við getum bætt okkur. Ef
við þorum að taka ábendingum þeirra
á jákvæðan hátt, í stað þess að líta á
þær sem aðfinnslur, verðum við betri
manneskjur fyrir vikið.
Mikilvægt er að láta ekki stolt eða
þrjósku koma í veg fyrir að við höldum
áfram að læra og þroskast. Það ber
vott um hugrekki, lítillæti og sjálfs-
öryggi að geta tekið við ábendingum
frá hverjum sem er og veitir okkur
tækifæri til að þroskast.
Kjarni með þessu orði:
• Enginn er fullkominn og öllum
verða einhvern tíma á mistök.
• Oft er það mikilvægt skref í átt
að velgengni að læra af eigin mis-
tökum.
• Eitt af því sem greinir þá ham-
ingjusömu frá þeim óhamingju-
sömu er viðhorf þeirra til eigin
mistaka og mótlætis í lífinu.
4
geðoRð 3 af 10
Höfundur er
Dóra Guðrún Guðmundsdóttir
sálfræðingur og höfundur
bókar um geðorðin 10
Færri nemendur þurfa
stuðning í stærðfræði
Færri nemendur í 3.bekk í grunn-skólum Reykjavíkur þurfa stuðn-ing í stærðfræði samkvæmt
niðurstöðum úr svokallaðri stærð-
fræðiskimun sem lögð var fyrir þriðju-
bekkinga síðastliðið vor. 4,3% þurfa
sérstakan stuðning, en það er tveimur
prósentustigum lægra hlutfall en árið á
undan og lægsta hlutfallið á fimm ára
tímabili, frá 2007 til 2012. Langflestir,
eða 96% nemenda, teljast samkvæmt
þessari skimun ólíklegir til að þurfa
sérstakan stuðning í stærðfræðinámi.
Af þeim sem tóku prófið náðu 76%
settu viðmiði í fyrsta þrepi skimunar-
innar, 14% náðu öðru þrepi og því
heldur ekki líklegir til að þurfa sér-
stakan stuðning. Um 10% nemenda
fóru í gegnum alla skimunina og varð
niðurstaðan að liðlega 4% þurfa á sérs-
tökum stuðningi að halda í stærfræði-
náminu.
„Árangur hefur batnað á lang-
flestum sviðum, líðan nemenda er
betri, einelti hefur minnkað og ánægja
foreldra er meiri. Það má þakka öfl-
ugum og metnaðarfullum kennurum
fyrir sinn þátt í þessum árangri. Góðir
kennarar skapa gott skólastarf og reyk-
vískir kennarar setja velferð og fram-
farir nemenda sinna í fyrsta sæti“, segir
Oddný Sturludóttir formaður skóla- og
frístundaráðs.
v i k u b l a ð
Auglýsingasíminn er 578 1190
Netfang: auglysingar@fotspor.is.
00000
w w w. v e i d i k o r t i d . i s
Eitt kort
35 vötn
6.900 kr
FLEIRI VÖTN ÓBREYTT VERÐ
Skólavörðustígur 18
Frábærar húfur með endurskini
SALON REYKJAVÍK
NÝJA LÍNAN VOR-SUMAR 2013
HAUTE COIFFURE FRANÇAISE
ER KOMIN Í HÚS, VERIÐ VELKOMIN
SALON REYKJAVÍK GRANDAGARÐI 5 101 REYKJAVÍK
OPIÐ MÁN - FÖS: 9 - 18 LAU: 10 - 13 SÍMI: 56 85 305