Reykjavík


Reykjavík - 11.01.2014, Side 6

Reykjavík - 11.01.2014, Side 6
Einkarekið Apótek Lágt lyfjaverð - góð þjónusta 6 11. janúar 2014REYKJAVÍK VIKUBLA Ð Helga Sörensdóttir fæddi fyrsta barn ársins á heimili sínu í Garðabæ: Fyrsta barn ársins fæddist heima „Ég tók hana strax i fangið og hún tók brjóstið um leið. Naflastrengurinn var klipptur tveimur tímum síðar,“ segir Helga Sörensdóttir. Dóttir hennar, rúmlega viku gömul, var fyrsta barnið sem fæddist hér á landi árið 2014. Helga fæddi dótturina heima hjá sér í Garðabænum, með aðstoð Krist- bjargar Magnúsdóttur, heimafæðingaljósmóður. Sú stutta kom í heiminn klukkan 26 mínútur í 6 á nýársnótt. Hún vó rúmar 13 merkur (3.270 grömm) og var mæld 50,5 sentimetra löng. Helga á einnig dótturina Amelíu Líf Bjarkadóttur sem er fimm ára og fékk að sjá litla systur þegar hún vaknaði á nýársmorgun. Beið fram yfir miðnætti Blaðamaður fékk að hitta mæðgurnar í vikunni og heyra um fæðingu fyrsta barnsins á árinu. „Þetta gekk bara rosa vel. Aðdrag- andinn var langur, en allt fór á fullt um tíuleytið á gamlárskvöld,“ segir Helga. Hún hafi náð að horfa á skaupið með hálfu auga, en hríðirnar voru byrj- aðar. „Þetta var samt skemmtilegasta skaup sem ég hef séð,“ segir Helga hlæjandi. „Ég þrjóskaðist svo við fram yfir miðnættið svo dóttirin gæti klárað sprengjurnar sínar og við vorum komnar heim um eittleytið.“ Ljósmóðir á sparifötum Helga segir að amman Bryndís Þóra Jónsdóttir, hafi svæft Amelíu Líf, og síðan hafi hún tekið upp símann. „Ég hringdi í Kristbjörgu sem hentist til mín í sparifötunum,“ segir Helga. Hún lýsir aðdraganda fæðingarinnar þannig að hún hafi framan af nóttu verið í laug inni í stofu. Dótturina fæddi hún hins vegar standandi, sem fyrr segir á sjötta tímanum, en þá var Áslaug Hauksdóttir, heimafæðinga- ljósmóðir einnig komin til aðstoðar. Dóttirin „flaug út“ „Ég var orðin svo máttlaus i fótunum að það þurfti að halda mér uppi þar sem ég stóð, svo Kristbjörg bókstaflega greip stúlkuna þar sem hún „flaug“ út í einni hríð! En ég tók hana svo strax i fangið og hún tók brjóstið um leið,“ segir Helga. Naflastrengurinn var klipptur tveimur stundum síðar, en það gerði amman, Bryndís Þóra. „Tilfinningin var ólýsanleg,“ segir Helga. „Mig minnir að ég hafi sagt „glætan“ nokkuð oft,“ segir Helga brosandi. „Ég var eiginlega steinhissa að sjá þessa litlu manneskju.“ Mæðgur á bleiku skýi Helga segist ekki hafa fengið nein verkja- eða deyfilyf við fæðinguna. Og hún hafi heldur ekki stuðst við öndunaræfingar. „Þetta var bara harkan.“ Eldri dóttirin Amelía Líf rumskaði hins vegar ekki við fæðinguna. Hún vaknaði ekki fyrr en ljósmæðurnar voru farnar og búið að ganga frá öllu. En hvað finnst stóru systur um litla barnið? „Sú stutta tjáði mer i fyrradag að hún væri ástfangin af litlu systur. Svo hún er á sama bleika skýi og mamman,“ segir Helga. „Taka enga óþarfa sénsa“ Hvað varð til þess að þú ákvaðst að fæða heima? „Það kom bara ekkert annað til greina hjá mér. Mér finnst ekkert sjúklegt við fæðingar og finnst ekki að þær eigi heima inni á sjúkrahúsi undir venjulegum kringumstæðum. Auðvitað er gott að geta leitað þangað ef eitthvað kemur upp á eða maður þarfnast hjálpar. Og á Reykjavíkur- svæðinu eru allir svo nálægt sjúkrahúsi að það er alveg hættulaust að ætla að gera þetta heima hjá sér. Það er svo stutt í hjálpina ef þarf, og við eigum svo brilljant ljósmæður sem maður getur treyst að taki enga óþarfa sénsa.“ Ómetanleg reynsla Helga segir að fyrir fæðingu Amelíu Lífar hafi einnig verið á áætlun að fæða heima, en það hafi ekki gengið í það sinn. „Við þurftum hjálp, svo hún kom í heiminni uppi á spítala,“ segir Helga. Upplifuninni af því að fæða heima og á spítala verði ekki jafnað saman. Hún hafi heldur dapra reynslu af spítaladvöl- ini, til dæmis vegna þess að manni hennar hafi verið vísað úr húsi, „hent út og heim,“ þremur klukkustundum eftir fæðinguna. „Það er bara svo geggjað að geta skriðið uppi sitt eigið rúm með nýja hnoðrann sinn og farið í sína eigin sturtu og vera í sínu umhverfi,“ segir Helga með áherslu. „Þetta er ómetanlegt að mínu mati.“ Spítalinn neyðarúrræði Helga segir að í undirbúningi heima- fæðingar verði sambandið við ljósmóð- urina innilegra. „Maður kynnist henni meira persónulega og heimsóknirnar eru lengri, en undirbúningurinn hjá mér var í rauninni ekki mikið meiri.“ Hún bætir því við að fyrir sér sé heimafæðing ekki val heldur sjálfsagður hlutur. „Mér finnst spítalinn ekki vera valkostur, heldur neyðarúrræði. - Hvernig upplifir þú umræðuna um heimafæðingar? „Það fer svolítið eftir þvi við hvern maður talar, í hvaða átt umræðan fer. Mér finnst að það sé aðallega fólk sem ekki á börn, eða fólk sem hefur ekkert lesið um fæðingar sem heldur að heima- fæðingar séu hættulegar. Nú er sigið á seinni hluta heimsóknar blaðamanns til litlu fjölskyldunnar í Garðabæ, en ein spurning verður að fljóta með. Er litla stúlkan komin með nafn? „Já, en það verður ekki gert opinbert fyrr en i nafngiftarveislunni,“ segir Helga Sörensdóttir hlæjandi að lokum. Helga Sörensdóttir er þrítug, sjálfstæð móðir, og býr í Garðabænum. Hún lærði matreiðslu, og hefur starfað á ýmsum veitingahúsum. Hún starfar nú í Réttarholts- skóla og eldar skólamat. „Vaktavinnan á veitinga- stöðunum passar ekki mjög vel við móðurhlutverkið,“ segir Helga. Móðir og dóttir. amelía Líf er ástfangin af litlu systur.

x

Reykjavík

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjavík
https://timarit.is/publication/1086

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.