Reykjavík - 11.01.2014, Blaðsíða 6
Einkarekið Apótek
Lágt lyfjaverð - góð þjónusta
6 11. janúar 2014REYKJAVÍK VIKUBLA
Ð
Helga Sörensdóttir fæddi fyrsta barn ársins á heimili sínu í Garðabæ:
Fyrsta barn ársins fæddist heima
„Ég tók hana strax i fangið og hún tók brjóstið um leið. Naflastrengurinn
var klipptur tveimur tímum síðar,“ segir Helga Sörensdóttir. Dóttir hennar,
rúmlega viku gömul, var fyrsta barnið sem fæddist hér á landi árið 2014.
Helga fæddi dótturina heima hjá sér í Garðabænum, með aðstoð Krist-
bjargar Magnúsdóttur, heimafæðingaljósmóður.
Sú stutta kom í heiminn klukkan 26
mínútur í 6 á nýársnótt. Hún vó rúmar
13 merkur (3.270 grömm) og var mæld
50,5 sentimetra löng.
Helga á einnig dótturina Amelíu Líf
Bjarkadóttur sem er fimm ára og fékk
að sjá litla systur þegar hún vaknaði á
nýársmorgun.
Beið fram yfir miðnætti
Blaðamaður fékk að hitta mæðgurnar
í vikunni og heyra um fæðingu fyrsta
barnsins á árinu.
„Þetta gekk bara rosa vel. Aðdrag-
andinn var langur, en allt fór á fullt um
tíuleytið á gamlárskvöld,“ segir Helga.
Hún hafi náð að horfa á skaupið með
hálfu auga, en hríðirnar voru byrj-
aðar. „Þetta var samt skemmtilegasta
skaup sem ég hef séð,“ segir Helga
hlæjandi. „Ég þrjóskaðist svo við
fram yfir miðnættið svo dóttirin gæti
klárað sprengjurnar sínar og við vorum
komnar heim um eittleytið.“
Ljósmóðir á sparifötum
Helga segir að amman Bryndís Þóra
Jónsdóttir, hafi svæft Amelíu Líf, og
síðan hafi hún tekið upp símann. „Ég
hringdi í Kristbjörgu sem hentist til
mín í sparifötunum,“ segir Helga.
Hún lýsir aðdraganda fæðingarinnar
þannig að hún hafi framan af nóttu
verið í laug inni í stofu. Dótturina
fæddi hún hins vegar standandi, sem
fyrr segir á sjötta tímanum, en þá var
Áslaug Hauksdóttir, heimafæðinga-
ljósmóðir einnig komin til aðstoðar.
Dóttirin „flaug út“
„Ég var orðin svo máttlaus i fótunum
að það þurfti að halda mér uppi þar
sem ég stóð, svo Kristbjörg bókstaflega
greip stúlkuna þar sem hún „flaug“ út
í einni hríð! En ég tók hana svo strax
i fangið og hún tók brjóstið um leið,“
segir Helga. Naflastrengurinn var
klipptur tveimur stundum síðar, en
það gerði amman, Bryndís Þóra.
„Tilfinningin var ólýsanleg,“ segir
Helga. „Mig minnir að ég hafi sagt
„glætan“ nokkuð oft,“ segir Helga
brosandi. „Ég var eiginlega steinhissa
að sjá þessa litlu manneskju.“
Mæðgur á bleiku skýi
Helga segist ekki hafa fengið nein
verkja- eða deyfilyf við fæðinguna.
Og hún hafi heldur ekki stuðst við
öndunaræfingar. „Þetta var bara
harkan.“
Eldri dóttirin Amelía Líf rumskaði
hins vegar ekki við fæðinguna. Hún
vaknaði ekki fyrr en ljósmæðurnar
voru farnar og búið að ganga frá öllu.
En hvað finnst stóru systur um litla
barnið?
„Sú stutta tjáði mer i fyrradag að hún
væri ástfangin af litlu systur. Svo hún
er á sama bleika skýi og mamman,“
segir Helga.
„Taka enga óþarfa sénsa“
Hvað varð til þess að þú ákvaðst að fæða
heima?
„Það kom bara ekkert annað til
greina hjá mér. Mér finnst ekkert
sjúklegt við fæðingar og finnst ekki
að þær eigi heima inni á sjúkrahúsi
undir venjulegum kringumstæðum.
Auðvitað er gott að geta leitað þangað
ef eitthvað kemur upp á eða maður
þarfnast hjálpar. Og á Reykjavíkur-
svæðinu eru allir svo nálægt sjúkrahúsi
að það er alveg hættulaust að ætla að
gera þetta heima hjá sér. Það er svo
stutt í hjálpina ef þarf, og við eigum svo
brilljant ljósmæður sem maður getur
treyst að taki enga óþarfa sénsa.“
Ómetanleg reynsla
Helga segir að fyrir fæðingu Amelíu
Lífar hafi einnig verið á áætlun að fæða
heima, en það hafi ekki gengið í það
sinn. „Við þurftum hjálp, svo hún kom
í heiminni uppi á spítala,“ segir Helga.
Upplifuninni af því að fæða heima og
á spítala verði ekki jafnað saman. Hún
hafi heldur dapra reynslu af spítaladvöl-
ini, til dæmis vegna þess að manni
hennar hafi verið vísað úr húsi, „hent
út og heim,“ þremur klukkustundum
eftir fæðinguna.
„Það er bara svo geggjað að geta
skriðið uppi sitt eigið rúm með nýja
hnoðrann sinn og farið í sína eigin
sturtu og vera í sínu umhverfi,“ segir
Helga með áherslu. „Þetta er ómetanlegt
að mínu mati.“
Spítalinn neyðarúrræði
Helga segir að í undirbúningi heima-
fæðingar verði sambandið við ljósmóð-
urina innilegra. „Maður kynnist henni
meira persónulega og heimsóknirnar
eru lengri, en undirbúningurinn hjá mér
var í rauninni ekki mikið meiri.“
Hún bætir því við að fyrir sér sé
heimafæðing ekki val heldur sjálfsagður
hlutur. „Mér finnst spítalinn ekki vera
valkostur, heldur neyðarúrræði.
- Hvernig upplifir þú umræðuna um
heimafæðingar?
„Það fer svolítið eftir þvi við hvern
maður talar, í hvaða átt umræðan fer.
Mér finnst að það sé aðallega fólk sem
ekki á börn, eða fólk sem hefur ekkert
lesið um fæðingar sem heldur að heima-
fæðingar séu hættulegar.
Nú er sigið á seinni hluta heimsóknar
blaðamanns til litlu fjölskyldunnar í
Garðabæ, en ein spurning verður að fljóta
með. Er litla stúlkan komin með nafn?
„Já, en það verður ekki gert opinbert
fyrr en i nafngiftarveislunni,“ segir
Helga Sörensdóttir hlæjandi að lokum.
Helga Sörensdóttir er þrítug,
sjálfstæð móðir, og býr í
Garðabænum. Hún lærði
matreiðslu, og hefur starfað
á ýmsum veitingahúsum.
Hún starfar nú í Réttarholts-
skóla og eldar skólamat.
„Vaktavinnan á veitinga-
stöðunum passar ekki mjög
vel við móðurhlutverkið,“
segir Helga.
Móðir og dóttir.
amelía Líf er ástfangin af litlu systur.