Reykjavík - 11.01.2014, Síða 8
11. janúar 2014REYKJAVÍK VIKUBLA
Ð8
Reykjavík – vikublað hefur fengið stóran hóp valinkunnra kvenna og
karla til að spá í málefni líðandi stundar með lesendum. Fólk víða að úr
samfélaginu mun setjast við Hringborðið og svara einni spurningu frá
ritstjórn. Í þessu fyrsta tölublaði ársins reynum við að horfa fram á veginn
og spyrjum einfaldlega: Hvað sérð þú fyrir þér að muni bera hæst á árinu
sem var að hefjast?
Hildur Knútsdóttir, rithöfundur
Samstaða um
stærsta málið
„Það fer náttúrulega eftir því hver
horfir hvað ber hæst, en ég held að
loftslagsbreytingar af mannavöldum
sé málefni sem mun réttilega krefjast
sífellt meiri athygli, enda er þörfin
fyrir aðgerðir brýn og verður bara
brýnni. Og það fer að koma að því að
við neyðumst öll til að horfast í augu
við þetta erfiða málefni og margir spá
því að árin 2014 og 2015 verði helguð
baráttunni um alþjóðlega samstöðu
um loftslagsmál.“
Þóra Kristín Þórsdóttir,
doktorsnemi í félagsfræði
Verkföll og
verðbólga
„Það sem ég held muni bera hæst á
árinu 2014 eru kjara- og vinnumál.
Nú í vor verða lausir kjarasamningar
hjá ýmsum stéttum, t.d. kennurum,
og vegna áframhaldandi niðurskurðar
hins opinbera sem bitnar á starfi ým-
issa stétta býst ég jafnvel við að sumar
þeirra nýti verkfallsleiðina til þess að
fá kröfur sínar uppfylltar. Þá óttast
ég að skuldaniðurfellingin muni skila
sér í aukinni verðbólgu, sem þýðir að
ávinningur kjarasamninganna verður
enginn. Þá hef ég áhyggjur af því að
aðhaldsleiðin sem ríkisstjórnin hefur
valið muni valda auknu atvinnuleysi
en einnig verður minna gert fyrir þá
atvinnulausu, því vinnumarkaðsúr-
ræðum fækkar mjög á árinu.“
Drífa Snædal, framkvæmdastjóri
Starfsgreinasambands Íslands
Misskipting
áberandi
„Það þarf ekki að vera mjög spá-
konulega vaxin til að segja fyrir um
sveitastjórnarkosningar á næsta ári
en ég tel ekki að úrslit þeirra boði
tímamótabreytingar á daglegu lífi
fólks. Hins vegar eru kjarasamningar
á hinum opinbera markaði lausir í upp-
hafi árs og þar gæti dregið til tíðinda
og verið hart barist. Aukin misskipt-
ing verður meira áberandi og sífellt
meira í umræðunni, bæði í tengslum
við kjarasamninga og næstu fjárlög.
Þá er ég ansi hrædd um að vandi heil-
brigðiskerfisins og húsnæðisvandi
fólks verði fyrirferðamiklir póstar í
fjölmiðlum.“
Pétur Örn Guðmundsson,
tónlistarmaður
Ábyrgð fylgi
gjörðum
„Það sem ég held að muni bera hæst á
næsta ári er hugsanlega tvennt.
Annars vegar umræða um heiðar-
leika og þar með trúverðugleika og
ábyrgð stjórnmálamanna og kvenna.
Að það líðist ekki lengur að stjórnmála-
menneskjur geti lofað og sagt hluti án
þess að ábyrgð fylgi þeim gjörðum.
Hitt er ofsafengin netumræða á lágu
plani og hvernig ómálefnaleg umræða
knýr ummælakerfi fjölmiðlanna áfram.
Ábyrgð fjölmiðla hlýtur að tengjast því.
Og í kjölfarið á því að fólk reyni að
hugsa sinn gang og láta ekki aðeins
eina hlið á einhverju máli móta sína
skoðun á því, heldur kynna sér báðar
hliðar og láta vera að dæma í dómstóli
götunnar.“
Unnur María Bergsveinsdóttir,
sagnfræðingur og sirkuslistakona
ESB heit kartafla
„Ég held að fyrirhuguð skuldaniður-
felling og velferð heimilanna verði
áfram aðalmálið árið 2014. Reyndar
er auðvelt að sjá fyrir sér að áherslu-
breytingar og uppstokkanir í kjölfar
nýlegra ríkisstjórnarskipta muni geta
af sér heitar umræður hvað ýmis þjóð-
mál varðar, sérstaklega velferðar- og
umhverfismál. Svo má ekki gleyma
hinni síheitu kartöflu sem er um-
ræðan um Evrópubandalagið og ólíka
sýn landsmanna á því í hverju sjálf-
stæði Íslands sé falið. Persónulega get
ég þó auðvitað ekki vonað annað en
að mál málanna verði Stóra Sirkus-
sumarið. Ég starfa með Sirkus Íslands
og við erum nýbúin að kaupa fyrsta
sirkustjald Íslandssögunnar. Í sumar
stefnum við á að ferðast með tjaldið
hringinn í kringum Ísland og gleðja
börn og fullorðna með frábærum sýn-
ingum og sirkusnámskeiðum í eigin
heimabyggð. Þeir töfrar sem leynast
undir tjaldhimninum geta lyft hverri
brún og hafið andann upp og út fyrir
hversdaginn!“
Lára Magnúsardóttir,
forstöðumaður Rannsóknarseturs
HÍ á Norðurlandi vestra
Átök um
Reykjavík
„Það er fyrirsjáanlegt að Sveitarstjórn-
arkosningar munu halda Íslendingum
við efnið fram á vor og að baráttan um
Reykjavík verður átakamikil. Fyrri
hluti sumars verður undirlagður af fót-
boltanum í Brasilíu, hvort sem manni
líkar betur eða ver. Í ágúst kemur svo í
ljós hvort Skotar kjósi sér sjálfstæði og
eftir því sem líður á árið verður grannt
fylgst með því sem gerist í Afganistan.
Annars verða umræður um útfærslur
á tilboði um skuldbreytingar fyrir al-
menning, Evrópusambandið og sér-
stakan saksóknara umræðuefni út árið.
Hvort Ríkisútvarpið verður í stóru
hlutverki ræðst af því hvaða stefnu nýr
útvarpsstjóri tekur.“
Grímur Atlason,
framkvæmdastjóri Iceland Airwaves:
Ríkisstjórnin
siglir í strand
„Við erum auðvitað að sigla á mjög
kunnuglegar slóðir. Virkjun, stemm-
ing, uppgrip, djamm og gleði. Held
reyndar að gamanið verði heldur
stutt - enda staða þjóðarbúsins með
þeim hætti að sukkið getur ekki staðið
lengi yfir. Ástandið er eins og á langt
gengnum alka - getur eiginlega ekki
drukkið og virðist heldur ekki geta
verið edrú.
Sveitarstjórnarkosningarnar verða
auðvitað spennandi - spái því reyndar
að framsókn missi verulegt fylgi - þó
svo að hafa ekki mikið fylgi miðað við
síðustu sveitarstjórnarkosningar. Sjálf-
stæðisflokkurinn réttir úr kútnum en
þó ekki í Reyjavík. Flokkurinn nýtur
þess að samstarfsflokkurinn ríkis-
stjórn er jafn illa mannaður og raun
ber vitni. Þeir sem tjá sig fyrir flokk-
inn hljóma eins og mestu óratorar
miðað við dreggjarnar sem tjá sig fyrir
Framsóknarflokkinn.
En það er líka von. Fólk mun átta sig
og ríkisstjórnin siglir í strand á árinu.
Og við tekur stjórn fólks sem lætur
sig hag þorra almennings varða í stað
örfárra. Það verða miklar breytingar
og kyrrð kemst á hina mjög svo tættu
þjóðarsál. Mikið hlakka ég til.“
hringborðið
Verkföll og vinnudeilur kynnu að vera framundan. Mikil óánægja er með
nýgerða kjarasamninga Sa og aSÍ.
Hlýnun jarðar hefur í för með sér
bráðnun íss við pólana. Hildur Knúts-
dóttir vonar að málið komist fyrir
alvöru á dagskrá.
„Við erum á leið á kunnuglegar
slóðir,“ segir Grímur atlason. norð-
lingaölduveita myndi þurrka upp
fossinn Dynk.
Kennarar eru óánægðir með kjör sín. Þeir eru ákveðnir í kröfugerð sinni, en
kjarasamningar þeirra losna á árinu.