Reykjavík - 05.04.2014, Síða 12
REYKJAVÍK, Bíldshöfða 9,
KÓPAVOGUR, Smiðjuvegi 4a, græn gata
HAFNARFJÖRÐUR, Dalshrauni 17
REYKJANESBÆR, Krossmóa 4, SELFOSS, Hrísmýri 7
AKUREYRI, Furuvöllum 15, EGILSSTAÐIR, Lyngás 13
www.bilanaust.is Gæði, reynsla og gott verð!
EX
PO
-
w
w
w
.ex
po
.is
Sími: 535 9000
GÆÐAVÖRUR
FYRIR BÁTINN!
Smurolíur og neyslugeymar á betra verði í apríl.
VERSLANIR
SJÖ
MEÐ MIKIÐ
VÖRUÚRVAL
BASARINN
Nyt ja m a r kaðu r A u st u r ve r i
MIKIÐ ÚRVAL AF GÓÐUM, ÓDÝRUM BÓKUM
SKÁLDSÖGUR, ÆVISÖGUR,
BARNABÆKUR, LJÓÐ.. .
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 11-18
LAUGARDAGSOPNUN KL. 13-18
Flottar kökur
í afmælið
• Dóra og Diego
• Skylanders
• Bratz
• Spiderman
• Star Wars
• Hulk
• Disney prinsessur
• Monster High
• Tísku Barbie
• Litla hafmeyjan
• Strumparnir
og margt fleira
Skoðið úrvalið!
Iðnbúð 2 Garðabæ 565 8070
okkarbakari.is
facebook.com/okkarbakarí
5. apríl 201412 REYKJAVÍK VIKUBLA
Ð
SveitarStjórnarkoSningar 2014
VI
KU
BL
AÐREYKJAVÍK Auglýsingasíminn er 578 1190
Íbúasamtökin Betra Breiðholt boða
til fundar með frambjóðendum
- Fundur fyrir íbúa í Breiðholti með frambjóðendum til borgarstjórnarkosninga
verður haldinn í Gerðubergi miðvikudaginn 9. apríl kl. 19:30.
Íbúasamtökin Betra Breiðholt hafa staðið fyrir fundi fyrir kosningar síðan samtökin voru stofnuð 2006.
Það er fundur fyrir kosningar til Al-
þingis og borgarstjórnar og hefur þetta
nýst hverfinu vel. Það er nauðsyn-
legt fyrir svona fjölmennt hverfi að
fá skýrar línur um hvað er verið að
kjósa um og hvað frambjóðendur
leggja áherslu á. Frambjóðendur
verða að hitta íbúa og átta sig á því
að það eru íbúarnir sem ráða ferðinni
þegar upp er staðið. Íbúar geta spurt
frambjóðendur spurninga en í upphafi
fundar munu frambjóðendur svara
spurningum sem þeir hafa fengið
sendar til sín.Er þetta gert til að fá
sem mest út úr fundinum og jafnframt
eru þarna spurningar sem stjórn íbúa-
samtakanna telur að nauðsynlegt sé
að fá svör við. Með þessu fyrirkomu-
lagi geta frambjóðendur undirbúið
sig fyrir fundinn og er því engin af-
sökun fyrir því að svara ekki. Þetta er
jafnframt gert til að nýta tímann vel
og að frambjóðendur fari ekki að tala
um alla Reykjavík heldur einungis um
Breiðholtið og nágrenni.
Eftirfarandi spurningar fá fram-
bjóðendur og munu svara í upphafi
fundar:
1. Hvernig sérðu fyrir þér reglur þar
sem komið er í veg fyrir að hlutir
detti út af skipulagi án þess að það
sé kynnt? Er ekki eðlilegt að svona
breytingar séu kynntar / auglýstar
rétt eins og hverjar aðrar breytingar
á skipulagi? Munt þú beita þér
fyrir því? Hvernig er staðan með
göngubrúna okkar Breiðholts-
búa sem felld var út af skipulagi
eða með mislægu gatnamótin
Reykjanesbraut/Bústaðavegur?
Hver ber ábyrgð?
2. Nú er verið að skipta út umferðar-
ljósum á Breiðholtsbraut. Hvernig
verður því fylgt eftir að umferðar-
flæði náist á þessari leið þannig að
umferð haldi réttum hraða svo hún
geti haldið áfram án þess að lenda
á rauðu ljósi?
3. Hvenær á að ljúka við Stekkj-
arbakkann? Leiðin frá Höfðabakka
og niður á Reykjanesbraut.
4. Hvenær á að setja hita í brekkuna
efst í Höfðabakkabrekkuna þar
sem hann kemur að Vesturhólum?
Munt þú beita þér fyrir þessu?
5. Hvenær verður trukkastæðið lagt
af á móts við Seljabraut 62-84?
(Dagsetning takk).
6. Innan ÍR eru 9 deildir. Munt þú
beita þér fyrir því að bæta núver-
andi aðstæður iðkenda þeirra til
íþróttaæfinga og keppni og ef svo
er með hvaða hætti?
Fyrir hönd Íbúasamtakanna
Betra Breiðholt
Höfundur er
Helgi Kristófersson,
formaður Íbúasamtakanna
Betra Breiðholt
Meiri sanngirni – aukið réttlæti
Dögun er skilgetið afkvæmi efnahagshrunsins á haust-dögum 2008, þegar frjáls-
hyggja og skefjalaus græðgiskapítal-
ismi voru næstum búin að kollkeyra
hið unga íslenska lýðveldi. Þar skall
hurð nærri hælum, eins og máltækið
segir. Í framhaldi af þessu varð til
hreyfing sem nú heitir Dögun.
Þrátt fyrir að reynt sé að segja okkur
að kreppan sé búin, er það nú svo að
það er ekki rétt. Enn glímir fjöldi fólks
við afleiðingar Hrunsins, í formi at-
vinnuleysis, lakari lífskjara, fátæktar
og skorts. Sú kaupmáttarskerðing sem
fylgdi hruninu er enn til staðar. Það
að kreppan sé búin passar því alls ekki
fyrir alla íbúa þessa lands.
Dögun, samtök um sanngirni,
réttlæti og lýðræði, bauð fram í síð-
ustu kosningum til Alþingis og nú
er komið að framboði Dögunar til
borgarstjórnar í Reykjavík, en kosið
verður í lok maí.
Í stefnu Dögunar segir meðal annar
að tilgangur þessa stjórnmálaafls sé
að ...,,stuðla að betra samfélagi, sem
hefur umburðarlyndi, réttlæti, heiðar-
leika, siðgæði og lýðræði að leiðar-
ljósi."
Dögun vill einnig samfélag sem
byggir á virkni og ábyrgð þegnanna
...,,óháð aldri, búsetu, kyni, efnahag,
kynþætti, trúarbrögðum, fötlun, kyn-
hneigð, stöðu eða uppruna."
Óréttlæti og misskipting er nokkuð
sem eru þyrnar í augum Dögunar,
en Dögun telur að mjög margt megi
betur fara til þess að hinir ýmsu hópar,
sem hafa farið illa út út hremmingum
síðastliðinna ára, hljóti betri lífskjör.
Allir þegnar samfélagsins eiga rétt á
því að njóta góðs lífs, óháð efnahag
og fleiri slíkum þáttum.
Frambjóðendur Dögunar vilja því
stuðla að betra lífi, meiri sanngirni,
auknu réttlæti, gagnsæi og auknu lýð-
ræði í okkar ágæta samfélagi. Oddi-
viti okkar, Þorleifur Gunnlaugsson,
hefur gríðarlega þekkingu og reynslu
af samfélagsmálum á breiðum grund-
velli. Hann hefur einnig hugsjónir
sem leiða til réttalátara og sann-
gjarnara samfélags.
Til að ná Þorleifi inn í borgarstjórn
Reykjavíkur, þarf Dögun atkvæði þitt
í Reykjavík. Merktu x við Dögun í
borgarstjórnarkosningunum núna í
vor.
Höfundur er
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson
stjórnmálafræðingur og skipar
5.sætið á lista Dögurnar í borgar-
stjórnarkosningunum í vor.