Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.05.2007, Side 2

Fréttir - Eyjafréttir - 17.05.2007, Side 2
2 Fréttir / Fimmtudagui i i. maí 2007 Sýningin Sjóræningjar og kristnir þrælar Tyrkjaránsins: Forsetinn viðstaddur opnunina Sýningin - Sjóræningjar og kristnir þrælar - ferðir og örlög fómar- lamba Tyrkjaránsins, var opnuð formlega í Vélasalnum á þriðjudag. Sýningin er samstarfsverkefni Listahátíðar og Vestmannaeyja- bæjar og hönnuður sýningar er Ólafur Engilbertsson, sýninga- hönnuður. Heiðursgesdr við opnunarathöfnina voru forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson og Helgi Tómasson, ballettdansari og danshöfundur en hann ólst hér upp til sjö ára aldurs. Við athöfn- ina fluttu Spilmenn Rikínis valin sönglög úr íslenskum handritaarfi frá dögum Tyrkjaránsins. Elliði Vignisson, bæjarstjóri, bauð gesti velkomna og færði Helga Tómassyni gjöf í tilefni heimsóknarinnar til Vestmannaeyja. Ólafur Ragnar Grímsson flutti ávarp og vék að þeim dramatísku atburðum sem áttu sér stað í Vestmannaeyjum, bæði þegar Tyrkjaránið átti sér stað og síðan í eldgosinu á Heimaey. Ólafur sagði við hæfi að setja upp sýningu sem tengdist Tyrkjaráninu og að enn væru átök milli trúar- bragða. Enn væru færðar mann- fórnir í nafni trúar og átaka þar sem vísað væri til ólíks trúarlegs veruleika. Þess vegna væri safn í Vestmannaeyjum, sem helgað væri Tyrkjaráninu, mikilvægt á okkar tímum og forvitnilegt, ekki bara fyrir okkur Islendinga heldur líka fyrir þá erlendu gesti sem hingað koma. Ólafur Engilbertsson er hönnuður sýningarinnar og á gólfinu er kort sem sýnir leiðina sem sjóræningj- urnir fóru með þrælana og svo leið Ólafs Egilssonar prests á Ofanleiti til baka en hann var sendur til að afla fjár til að leysa út þrælana. Síðan er sýnd leið Guðríðar Símonardóttur og samferðafólks hennar en aðeins tókst að leysa hluta fólksins sem var herleiddur. Þá eru ýmsar upplýsingar um ránið og persónur sem tengjast því á sýningunni sem og myndir eftir börn sem sýna í hvaða Ijósi þau sjá þessa atburði. Þorsteinn Helgason, fræðimaður, flutti fróðlegt erindi um Tyrkjránið en hann hefur m.a. gert þætti um þessa atburði fyrir sjónvarp. Spilmenn Rikínis fluttu valin ÓLAFUR Engilbertsson, hönnuður sýniningarinnar, ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni og íleiri góðum gestum við opnun sýningarinnar sönglög úr íslenskum handritaarfi frá dögum Tyrkjaránsins og þar á meðal eftir sr. Jón Þorsteinsson prest á Kirkjubæ en hann var, eins og kunnugt er, líflátinn í Tyrkja- ráninu. Kristín Jóhannsdóttir, menningar- fulltrúi, var mjög ánægð með sýninguna og sagði mikilvægt að hún væri unnin í samráði við Listahátíð. Sýningin mun standa fram í júlí og verða opin um helgar fyrst um sinn. Bæjarbúar eru hvattir til að skoða sýninguna sem verður væntanlega hluti af safni sögunnar um Tyrkjaránið. Spilmenn Rikínis fluttu valin sönglög úr íslenskum handritaarli frá dögum Tyrkjaránsins og þar á meðal eftir sr. Jón Þorsteinsson prest á Kirkjubæ en hann var, eins og kunnugt er, Iíflátinn í Tyrkjaráninu. Helgi Tómasson ballettdansari vitjar æskustöðvanna í Eyjum: Afskaplega skemmtilegt að koma hingað „Ég man ekki eftir að hafa komið til baka eftir að ég flutti héðan til Reykjavíkur en þá var ég sjö eða átta ára gamall," sagði Helgi Tómasson ballettdansari en hann kom til Eyja í tilefni af opnum sýningar á vegum Listahátíðar og Vestmannaeyjabæjar um Tyrkjaránið. „Ég bjó í húsi við Hilmisgötu en þegar ég kom þar við í dag bjóst ég við að sjá einnar hæðar hús en það er búið að byggja aðra hæð ofan á þannig að ég hefði ekki þekkt mig þar. Fyrst bjó ég uppi á Ásavegi og ég man að mér fannst Ásbyrgi mjög stórt og mikið hús.“ Helgi man ekki sérstaklega eftir krökkum sem hann lék sér við þegar hann bjó sem barn í Eyjum. „Ég man eftir krökkum sem bjuggu í Ásbyrgi, þau voru eldri en ég og trúlega hefur stelpan passað mig. Ég Elliði Vignisson, bæjarstjóri færir Helga Tómassyni gjöf í tilefni heimsóknarinnar til Vestmannaeyja held hún hafi verið kölluð Dúlsa og strákurinn Stebbi en þetta getur verið rangminni." Helgi segist ekki hafa mikla teng- ingu við Vestmannaeyjar þar sem hann var svo ungur þegar hann flutti héðan. „Ég man eftir klett- unum og bænum, man hvar Sam- komuhúsið var og gamla apótekið. Bærinn er samt stærri í minningunni en hann er. Það er skemmtilegt og gaman að koma hingað með konu mína og syni og fá tækifæri til að sýna þeim staðinn þar sem ég átti heima mín fyrstu ár.“ Helgi sagði athyglisvert að sjá hvað hefði gerst í gosinu og afskaplega gaman heyra í Spilmönnum Rikínis sem fluttu valin sönglög úr íslenskum hand- ritaarfi frá dögum Tyrkjaránsins, í Stafkirkjunni. „Það er afskaplega skemmtilegt að koma hingað. Loksins kom tækifærið og það þurfti forseta til að reka á eftir mér en það hefur verið afskaplega gaman að koma í hans fylgd til Eyja.“ Dagar lita og tóna: Haukur Gröndal og Maggi Eiríks mæta í ár Ekki bregðast aðstandendur Djasshátíðarinnar, Dagar lita og tóna, sem er orðinn fastur liður í menningarlífí Vestmannaeyja um hverja hvítasunnu. Hermann Einarsson, for- maður Listvinafélagsins, sem hefur veg og vanda af hátíð- inni, segir að nú verði tvö meginbönd, Kvartett Hauks Gröndals og Blúsband Magnúsar Eiríkssonar. Einnig verður nýstirni í djassöng kynnt til sögunnar og heima- menn láta til sín heyra. „Með Hauki eru Ásgeir Ásgeirsson á gítar, Þorgrímur Jónsson á bassa og Erik Quick á trommur. Þeir ætla að leika gamla og góða klassíska djassinn sem er virkilegt til- hlökkunarefni,“ sagði Hermann. I Blúsbandi gítarsnillingsins, Magnúsar Eiríkssonar, eru Pálmi Gunnarsson söngvari sem plokkar bassann, Agnar Már og Gunnlaugur Briem á trommur. „Með þeim kemur ung og glæsileg söngkona, Hrund Ösk. Einnig verður kynnt til sögunnar nýstirni í djasssöng, Sigríður Thorlacius sem er langt komin í námi í skóla FÍH auk þess sem hún er í klassískum söng. Undirleikari hjá henni er Ásgeir Ásgeirsson gítarleikari.“ I ár verða heimamenn meðal listamanna sem troða upp á hátíðinni og er það í fyrsta skipti í nokkur ár. „Það er blásarakvartett sem skipaður er kennurum og nemendum Tónlistarskólans sem ætla að leika fjórar raddir á sex hljóðfæri.“ Hermann segir að tónleik- arnir verði að venju á laugar- dags- og sunnudagskvöld og hefjast klukkan níu bæði kvöldin. „Við teljum okkur bjóða upp á fjölbreytta dagskrá eins og áður og allt er þetta listafólk í fremstu röð hér á landi á þessu sviði,“ sagði Hermann að lokum tltgefandi; líyjasýn elif. 480378-0549 - Vostmannaeyjnm. Uitstjóri: Ómar Oarðarssou. Blaðamenn: Guðbjöig Sigurgeirsdóttir og Jiilíiis Ingason. fþróttir: Jiilius lngason. Ábyrgðarmenn: Ómar (íardarsson & Gisli Valtýsson. JVentvinna: Byjiusýn/ Eyjapreut. Vestmanniu'yjiim. Aðsetur ritstjómar: Straudvegi 47. Simar: 481 l.'IOO & 481 3310. Myndriti: 481-1393. NetfangAafpóstnr: frettir@eyjiafrottir.is. Veffang: bttp/Avww.eyjafrettir.is FRÉTl'IK koinii út iilln fimmtudagii. Blaðið er sell i áskrift og eiimig i lausasölu á Kletti, Tvistin....... Vöruval, Herjólfi, iniigliafiiarversliininni, Krónunni, ísjakanum, verslnn 11-11 og Skýlinu i Friðarliöfn.. FRÉHTER eru prentnðar i 3000 eintökum. FRÉ'iTilt eru aðilar uð Samtökiun biejar- og liéraðsfréttablaöa. El'tiiprentun, liljóðritun, notkiin ljósmynda og annað er óbcimilt nema beimilda sé getið.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.