Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.05.2007, Side 4

Fréttir - Eyjafréttir - 17.05.2007, Side 4
4 Fréttir / Fimmtudagur i /. maí 2007 Úr bloggheimcim: Viðkvæmur Steinsrímur Joð Jæja, þá er feng- in niðurstaða. Stjórnin hélt velli þökk sé stórsigri Sjálf- stæðisflokksins. Framsókn fékk skell og hlýtur að hugsa sinn gang. Mín spá er sú að ríkisstjórnin sitji ekki áfram. Það er ekki annað hægt en að brosa út af viðkvæmni Steingríms Joð út af skopmyndinni sem birtist hjá ungum framsóknarmönnum í kosningabaráttunni. Er þetta ekki fullmikið væl hjá manni sem upp- nefnir aðra hvað eftir annað í ræðustól á Alþingi, kallar menn illum nöfnum. Er þetta ekki full- mikið hjá manni sem varið hefur óvægnar árásir ungra VG á Framsóknarflokkinn undanfarna mánuði? Enn og aftur kemur í ljós að vinstri menn telja sig mega nota öll „trix“ til að koma skoðunum sfnum á framfæri en ef aðrir svara í sömu mynt, þá kveinka þeir sér og heimta afsökunarbeiðni. Hlægilegt.... littp.V/svenko. blog. is/blog/svenko/ IBV kemur vel undan vetri í dag var fyrsti leikur meistara flokks karla í fyrstu deildinni, leikið var á Hásteinsvelli í sól og blíðu. Leikurinn var dæmigerður fyrsti leikur sumarsins mikið um mistök hjá báðum liðum, fyrra mark leiksins var vægast sagt umdeilt enda var línuvörðurinn sá eini á vell- inum sem sá boltann fara yftr línuna. Staðan í hálfleik var 0-1 fyrir Þór. Þegar aðeins voru 7 mínútur eftir af leiknum fékk IBV vítaspyrnu sem Bjarni Hólm nýtti vel. í heild fannst mér ÍBV liðið koma vel undan vetri en Ijóst að greinilega vantar góðan framherja lil að klára færin. Að mínu mati hefði ÍBV átt að vinna leikinn með 3 til 4 mörkum enn það gengur bara betur næst. Áfram ÍBV. http://georg. blog. is/blog/georg/ Eyjamaður vikunnar: Væri til í að hitta Bill Clinton Karlalið IBV spilaði sinn fyrsta leik í sumar þegar liðið tók á móti Þór frá Akureyri á sun- nudag. Fyrirliði IBV í þessum leik var Bjarni Hólm Aðalsteins- son en hann bar fyrirliðabandið í fyrsta sinn í þessum leik. Og hann bætti um betur og skoraði eina mark IBV í leiknum og tryggði sínu liði eitt stig. Bjarni er því Eyjamaður vikunnar. Nafn: Bjarni Hólm Aðalsteinsson. Fæðingardagur: 5. október 1984. Fæðingarstaður: Keflavík. Fjölskylda: Sveinhildur ísleifs- dóttir, móðir og faðir minn er Aðalsteinn Smári Valgeirsson. Yngri systir mín heitir Harpa Hrund, 18 ára og bróðir minn ísleifur, 27 ára. Draumabfllinn: Lexus, nýja týpan. Uppáhaldsmatur: Steiktur fiskur í raspi, með kokteilsósu og vel stap- pað saman. Versti matur: Hrogn eða eitthvað álfka, það er algjör viðbjóður. Uppáhalds vefsíða: www.fotbolti.net, ibv.is og ibvfan.is. Hvaða tónlist kemur þér í gott skap: Öll tónlist nema argasta Bjarni Hólm Aðalsteinsson er Eyjamaður vikunnar þungarokk. Aðaláhugamál: Allar íþróttir yfir höfuð. Hvaða mann/konu myndir þú vilja hitta úr mannkynssögunni: Bill Clinton. Fallegasti staður sem þú hefur komið á: Seyðisfjörður og Vestmannaeyjar auðvitað. Uppáhalds íþróttamaður og íþróttafélag: Eg á mér eiginlega engan uppáhaldsíþróttamann en uppáhaldsíþróttafélögin eru Huginn og ÍBV. Ertu hjátrúarfullur: Nei, ekkert svoleiðis. Stundar þú einhverja íþrótt: Já, fótbolta, kíki stundum í golf. Uppáhaldssjónvarpsefni: 24 og Prison Break. Hvort er skemmtilegra, vera aftast eða fremst: Þetta eru svo ólíkar stöður. Þegar maður er fremst þá getur maður djöflast aðeins meira en þegar maður er aftast þá verður maður að vera passívur. Það er vonlaust að gera upp á milli þessara tveggja. Hefurðu áhuga á því að spila í markinu: Eg var náttúrurlega í markinu í yngri flokkunum þannig að það er aldrei að vita nema maður skelli sér í markið. Kemst IBV upp í úrvalsdeild í haust: Ekki spuming. Það kemur ekkert annað til greina. Eitthvað að lokum: Lifum í sátt og samlyndi. Kirkjur bcejarins: landakirkja Fimmtudagur 17. maí: Kl. 14.00. Guðsþjónusta. Kirkjudagur eldri borgara. Fólk úr Félagi eldri borgara sér um ritning- arlestra og bænir. Eftir messu verða kaffiveitingar í boði Kvenfélags Landakirkju. Sunnudagur 20. maí: Kl. 11.00. Guðsþjónusta. Kór Landakirkju syngur létta sumar- sálma undir stjóm Guðmundar H. Guðjónssonar. Sr. Guðmundur Öm prédikar og þjónar fyrir altari. Hvítasunnukirkjan Fimmtudagur 17. maí Kl. 20.30 Lofgjörðarsamkoma. Fögnum úpþstigningardegi. Föstudagur 18. maí Kl. 20.00 Unglingakvöld. Laugadagur 19. maí Kl. 20.30 Brauðsbrotning. Sunnudagur 20. maí Kl. 13.00 Samkoma, ræðumaður Jonah D. Long, leikmaður ÍBV. Vitnisburðir og mikill söngur, bamastarf meðan á samkomu stendur. Heitt á könnunni eftir samkomu. Aðventkirkjan Laugardagur Kl. 10.00 Biblíurannsókn. Nýfozddir Vestmannaeyingar: Svea María Bergsteinsdóttir fæddist á sjúkrahúsi Suðurnesja 8. október 2006. Foreldrar em Bergsteinn Jónasson frá Múla og Drífa Gunnarsdóttir frá Vatnsdal. Með Sveu Maríu á myndinni móðursystir hennar, Inga Rós og systir Sveu, Hulda Ósk. Fjölskyldan er búsett í Njarðvík. Matgazðingur vikunnar: „ísskápurinn er í eldhúsinu, vinur!“ Ég hef verið að velta því fyrir mér hvað félagar mínir í Nei-hópnum hafa verið að gera í dálki eins og matgæðingi vikunnar. Því ég held að sumir í hópnum séu rétt farnir að rata í eldhúsið heima hjá sér. Hér fylgir stutt saga því til staðfestingar. Ég var staddur í afmæli hjá einum úr hópnum og allir sestir við borðið þegar frúin á heimilinu segir: „Jakob minn, viltu fara fram í ísskáp og ná í salat skálina fyrir mig?“ Jakob stendur upp hálfvandræðalegur, þá segir systir hans: „Jakob minn, ísskápurinn er í eldhús- inu vinur!“ Það eru nokkur ár síðan þetta gerðist og enn í dag er ég að þakka systur hans fyrir að redda vini mínum úr þessum vandræðum. Satay kjúklingur 4-6 kjúklingabringur 4 hvítlauksrif 1- 2 tsk. rifm engiferrót 'A haus hvítkál/rauðkál 2 rauðlaukar 1 dós minimais 1 dós bambus 1 dós Water chestnuts 2 dósir sataysósa I dós kókosmjólk 12-18% 2- 3 dl vatn ca 200 gr spergilkál Saxið allt grænmetið niður, mýkið hvítlaukinn og engiferið. Rúnar Svan Vöggsson er matgœðingur vikunnar Því næst er kjúklingurinn skorinn í bita, léttsteiktur og öllu grænmetinu bætt við, svissað þar til allt er orðið mjúkt. Síðan er sataysósunni, kókósmjólkinni og vatni bætt við eftir smekk. Þetta er síðan látið malla í ca. 15 mín. Borið fram með basmati brísgrjónum, fersku salati og smábrauðum. Verði ykkur að góðu. Ég skora á nýútskrifaðan meistarakokkinn Einar Bjöm Árnason að vera nœsti matgœðingur vikunnar. Það er ekki ósjaldan sem maður hefur bragðað á Ijúffengum réttum sem hann hefur eldað. Og ekki ónýtt aðfá ein- hver töfrabrögð frá honum hér. Hlcitavelta: Krakkarnir safna Þegar sól hækkar á lofti fara böm bæjarins að eyða meiri tíma úti. Einhverjir leika sér, aðrir fara í fótbolta og svo em hinir sem er umhugað um þá sem minna mega sín. Þessir krakkar söfnuðu samtals 12.821 kr. með hlutaveltu sem rennur til Rauða krossins. Gott framtak hjá þeim. Sandra og Kristín söfnuðu 3171 kr. Ingi, Valur og Alexander söfnuðu 2250 kr. Dagbjört, Birta og Eva söfnuðu 7400 kr. IÞróttir: Samskip styrkja ÍBV Skrifað var undir styrktarsamning Samskipa við IBV til næstu þriggja ára á sunnudag, í tengslum við viðureign heima- manna á Hásteinsvelli við Þór frá Akureyri í 1. deild karla í knattspymu. Samningurinn felur í sér að Samskip verða einn af helstu styrktaraðilum meistaraflokks og 2. flokks karla í knattspymu næstu þrjú árin; á keppnistímabil- inu sem nú er nýhafið og árin 2008 og 2009. Samningurinn gerir ÍBV kleift að efla starfsemi sína enn frekar og á móti öðlast Samskip rétt til að kynna starfsemi sína í tengslum við leiki og starfsemi JORUNDUR Jörundsson, framkvæmdastjóri innan- ÍBV. landssviðs Samskipa og Viðar Elíasson, formaður knattspyrnudeildar IBV, handsala samninginn.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.