Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 17.05.2007, Side 6

Fréttir - Eyjafréttir - 17.05.2007, Side 6
6 Fréttir / Fimmtuaagur 17. maí 2007 Útvegsbændur halda ráðstefnu um forvarnir á sjó og landi Hvað gerðist, hvernig gerðist það og hvað var öðruvísi en venjulega? -Eru spurningar sem þarf að spyrja þegar slys verða Frétt Júlíus G. Ingason Julius@eyjafrettir.is Útvegsbændafélag Vestmannaeyja hélt á mánudaginn ráðstefnu um for- varnir á sjó og á landi. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, formaður félagsins, opnaði ráðstefnuna en í máli hans kom fram að tilgangur fundarins væri að opna fyrir umræður um slys og forvarnir, sérstaklega þegar litið er til vinnu- bragða úti á sjó og líka almennt í fiskvinnslu. Reynt hefði verið að kalla sem llesta til, úr sem flestum geirum sem snúa að sjávarútvegnum en rúmlega þrjátíu manns sátu fundinn. Fyrirlesarar voru þeir Halldór Halldórsson, forvarnafulltrúi Alcan, Reynir Guðjónsson frá VIS, Sigurður Jónsson frá TM, Hjörtur Kristjánsson frá Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja, Haukur Jónsson frá Lífeyrissjóði Vestmannaeyja, Ingi- mundur Valgeirsson, frá Slysa- varnaskóla Landsbjargar og Sveinn Hjörtur Hjartarson frá LÍU. Arnar Sigurntundsson stýrði svo um- ræðum og fyrirspurnum í lok fund- arins. Um 63% slasaðra á sjó eru undirmenn Sveinn reið á vaðið en í máli hans kom fram að slysum á sjómönnum fer fækkandi og þá sérstaklega banaslysum. Algengustu slysin á sjó eru fallslys ýmiss konar eða rúm 25% slysa á sjó. Næstalgengust eru slys við vindur og stungur ýmiss konar koma þar skammt á eftir. Flest slysin verða um borð í fiskiskipum og flest verða þau þegar unnið er við veiðar eða 71% allra slysa á sjó. Undirmenn á þilfari eru í mestri slysahættu eða 63% þeirra sem slasast á sjó og eru þeir helst á aldrinum 34 til 50 ára, sem líklega er nærri lagi að vera meðalaldur sjó- manna í dag. Helst verða slys milli kl. tíu og ellefu árdegis, milli tvö og þrjú síðdegis og fjögur og fímm síðdegis. Helstu skýringar á þessu væru vaktaskipti sem ættu sér stað á þessu tímabili. RÚMLEGA þrjátíu manns sátu fundinn. Þá kom fram í máli Sveins að áætluð meðalgreiðsla, vegna slysa sjómanna, var árið 2002 um níu milljónir króna en í dag væru sömu greiðslur um fimm milljónir. Líta til álvers í forvarna- starfmu í máli Sigurgeirs Brynjars, í upphafi l'undarins, kom fram að lykilatriði fyrir fundahöldunum hafi verið að fá Halldór Halldórsson frá Alcan en álverið hefur náð einstaklega góðum árangri í forvörnum gegn vinnu- slysum. Fyrirlestur Halldórs var forvitni- legur, sérstaklega þegar hann bar saman tölur áður en tekið var föstum tökum á forvörnum og til dagsins í dag. I álverinu í Straumsvík er rík áhersla lögð á öryggisstjórnun og forvarnir á vinnustað. Unnið er eftir alþjóðlegum stöðlum, EHS, sem stendur fyrir umhverfi, heilsa og öryggi. Halldór sagði að fyrirtæki á bandarískum fjármálamarkaði væru í síauknum mæli að átta sig á mikil- vægi þess að vinna eftir öryggis- stöðlum þar sem það bæði sparaði fjármuni og byggi til betri vöru, sem aftur skapaði meiri viðskipti. Halldór sagði að auk þess sem mikil áhersla væri lögð á öryggi hjá Alcan þá ættu sömu reglur við verk- taka sem vinna fyrir fyrirtækið. „Svo tökum við núna þátt í verkefn- inu Hjólað í vinnuna, hjá ISI. Starfsmenn okkar, sem taka þátt í verkefninu, eru orðnir vel þekktir í Hafnarfirði þvf við létum alla fá hjálma og vesti svo þeir kæmust á sem öruggastan hátt til vinnu. Þetta er lítið dæmi um það hvemig unnið er að öryggi starfsmanna," sagði Halldór. Hann bætti því við að þótt unnið væri eftir alþjóðlegum stöðlum hefði reynst nauðsynlegt að aðlaga kerfið að íslensku starfsumhverfi. Þá væri afar mikilvægt að grand- skoða hvert tilvik fyrir sig með þremur spumingum, hvað gerðist, hvernig gerðist það og hvað var öðruvísi en venjulega? Með því væri ekki verið að leita að sökudólgi að slysi, heldur reynt að finna ástæður fyrir því að slysið varð. I framhaldi af því væri mikilvægt að starfsmenn tækju þátt í að hanna verklagsreglur á vinnustaðnum, að þær væm ekki hannaðar af fólkinu við skrifborðið heldur þeim sem vinna þau ákveðnu störf sem um ræðir. Halldór tók fram að mikill árangur hefði náðst síðan hann hóf störf sem öryggisfulltrúi hjá Alcan í Straums- vík. „Árið 1997 var að meðaltali eitt alvarlegt vinnuslys á viku og ég á stuttum tíma orðinn sérfræðingur í móttöku sjúkrabíla. En nú, tíu árum síðar, höfum við náð alvarlegum vinnuslysum niður í eitt á ári,“ sagði Halldór. Um 85% slysa vegna mannlegra mistaka Ingimundur Valgeirsson, frá Slysa- vamaskóla Landsbjargar hélt einnig forvitnilegan fyririestur en í máli hans kom fram að 80 til 85% allra slysa á sjó mætti rekja til mannlegra mistaka. Þá fór hann yfir mikilvægi þess að hafa öryggisstjómunarkerfi og tók sem dæmi Herjólf þar sem mjög öflugt öryggiskerfi væri. Hann rakti þróun öryggishandbóka og handbóka skipverja en þær skipta miklu í öryggisstjórnunar- kerfi skipa. Þær henti jafn vel fyrir stór sem smá skip. Hann bætti því við að í fyrirtækjum í landi væri oft að finna öryggisfulltrúa, öryggis- kerfi og unnið væri hættumat og spurði svo af hverju slíkt hið sama ætti ekki við um fiskiskipaflotann. Boltanum er rúllað af stað með fundi Útvegsbændafélagsins. Flest- ir fyrirlesaranna hrósuðu ÚV fyrir að vekja athygli á málinu og hvöttu félagið til að halda áfram á sömu braut. juiius@eyjafrettir.is Menning: Karlakór Eyjafjarðar í heimsókn Löggan eltir veiðiPjófa: Ólöglegar veiðar með útrunnið veiðkort Lögreglan í Vestmannaeyjum er með til rannsóknar tvö mál er varða meint brot á lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum. Grunur leikur á að í tveimur tilvikum hafi skotveiði verið stunduð af nálægt fugla- bjargi, annars vegar við Stórhöfða og hins vegar við Smáeyjar. Jafnframt kom í ljós að annar þessara aðila sem þarna áttu hlut að máli var með útrunnið veiðikort og vill lögreglan í framhaldi af því minna veiðimenn á að endurnýja veiðikortin. sín. Karlakór Eyjafjarðar er ungur kór, tíu ára gamall. Hann hefur alltaf verið á léttu nótunum og oft fiutt lög sem ekki eru sungin af öðrum kórum. Kórinn hefur gefið út einn disk, Gestaboð. Hann er nær uppseldur. Ein utanlandsferð er að baki, en þá fór kórinn til Danmerkur við mikinn fögnuð innfæddra. Þá hafa verið farnar margar ferðir innanlands, þar á meðal gríðarlega vel heppnuð ferð til Grímseyjar síðastliðið vor þar sem með voru í för níutíu manns. Nú er kórinn á leið til Vestmannaeyja þar sem sungið vérður laugardaginn 19. maí í sal Hvítasunnukirkjunnar. Lögin sem kórinn flytur eru allt frá poppi að hefðbundnum karlakórslögum, eða öfugt. Kórinn hefur staðið fyrir skemmtikvöldum með landsþekktum hagyrðingum, meðal annars í Súlnasal Hótel Sögu og Sjallanum á Akureyri. Félagar í kórnum hafa verið um 40 og vel skipað í hverja rödd. Þetta er í fyrsta sinn sem flestir kórfélagar og fylgifiskar koma til Eyja og hlakkar fólk afskaplega til. Stjómandi Karlakórs Eyjafjarðar er Petra Björk Pálsdóttir Kosningarnar: Eygló fyrst frambjóðenda EYGLÓ stingur atkvæði sínu í kjör- í Alþingiskosningunum á laugardaginn voru kjörstaðir opnaðir klukkan níu um morg- uninn. í Vestmannaeyjum eru tvær kjördeildir í Bamaskóla Vestmannaeyja. Jakob Ólafsson var fyrstur til að kjósa í Eyjum og Eygló Harðardóttir, Framsókn, var fyrst frambjóð- enda til að kjósa.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.